Kína -Tíbet

Kína -Tíbet

Kína

Shanghai, Guilin, Yangshuo, Zhangjiajie, Tibet og Peking // Þessi ferð er uppseld!
14. -30. september 2011
Fararstjóri: Héðinn Svarfdal Björnsson

Spennandi ævintýra- og lúxusferð þar sem við heimsækjum Shanghai, siglum á Li-ánni  með útsýni til hinna sérstæðu kalksteinsfjalla í Guilin, göngum á Kínamúrinn, förum á Torg hins himneska friðar og að Forboðnu borginni í Peking.  Farið verður  í ævintýralegan leiðangur langt inn í Kína að sjá hið sérstæða landslag í Zhangjiajie og mikla náttúrufegurð á þeim stað sem kvikmyndin Avatar var tekin. Hápunktur ferðarinnar er svo Lhasa í Tíbet.

Góð ferð með þrautreyndum fararstjóra!

Flugið:
Útflug: Brottför Koma
14.sept FI 342 Keflavík 07:55 Helsinki 14.sept 14:20
14.sept AY 057 Helsinki 17:10 Shanghai 15.sept 07:10
Heimflug
30.sept AY 052 Peking 10:55 Helsinki 30.sept 14:25
30.sept FI 343 Helsinki 15:20 Keflavík 30.sept 15:55
Ferðatilhögun - leiðarlýsing:

Miðvikudagur 8.
Dagskrá og ferðatilhögun :

Miðvikudagur 14. september   Keflavík - Helsinki - Shanghai
Flogið frá Keflavík til Shanghai með viðkomu í Helsinki, Finnlandi. Flogið með Icelandair og Finnair. Lagt af stað frá Keflavík kl. 07:55 og áætluð lending á Pudong flugvelli í Shanghai  kl. 07.10 að staðartíma þann 15. september.

Fimmtudagur  15. september    Komið til Shanghai
Ekið frá flugvelli inn í Shanghai (30 km) og farið í skoðunarferð um á Pudong hlutann, þar sem skýjakljúfar gnæfa til himins. Hádegisverður á veitingastað í borginni og komið við á árbakkanum í hjarta borgarinnar, „Bund“ sem er eitt þekktasta svæði hennar. Innritun á hótel og síðdegið frjálst til hvíldar.
Kvöldverður og gisting á hótel Shanghai Ramada Gateway þar sem gist verður í 2 nætur.
Máltíðir: H, K

Föstudagur 16. september    Shanghai
Ekið frá hóteli kl. 08:30 að Yu Yuan-garðinum sem er einn þekktasti sígildi garðurinn í Kína, en hann er frá Ming-tímabilinu. Þar er hægt að fræðast um forna garðtækni Kínverja og einnig gefst áhugasömum tækifæri til að kíkja í fornminjaverslun á markaðnum við hlið garðsins. Eftir hádegisverðinn er haldið áfram til merkasta hofs borgarinnar, Jade Buddha Temple, sem kennt er við stóra styttu af Búdda sem höggvin er úr stórum jaði-steini. Ferðin endar svo á helstu verslunargötu borgarinnar, Nanjing Lu, og svo komið niður að árbakkanum að Bund, sem er eitt frægasta svæði borgarinnar. Komið til baka um kl. 17:00.
Máltíðir:  M, H

Laugardagur   17. september   Shanghai – Guilin
F
arið frá hóteli í Shanghai kl. 06:30, en brottför flugs FM9333 er kl. 08:35 og áætluð lending í Guilin kl. 10:50. Lent á Liangjiang International flugvelli og ekið að hótelinu (25 km). 
Sameiginlegur hádegisverður er í boði á veitingastað í bænum og síðdegis heimsækjum við sérstæðan helli, sem kallast Reed Flute Cave. Kvöldverður snæddur á kínverska veitingastaðnum Mifen Banquet, komið til baka um kl. 19:30. Gist á hótel Lijiang Waterfall í um nóttina.
Máltíðir:  M, H, K

Sunnudagur 18. september    Guilin - Yangshuo
Farið frá hóteli kl. 08:00. Dagurinn hefst á siglingu frá Guilin niður eftir á Li-fljótinu að bænum Yangshuo. Í siglingunni er frábært útsýni til sykurtoppafjallanna svokölluðu sem eru einkennandi fyrir landslagið í Guangxi-héraði. Hádegismatur um borð í skipinu. Við komu til Yangshuo er hægt að fara um miðbæinn áður en haldið er út í sveitirnar. Þar er komið við hjá kínverskum bændum og jafnvel bragðað á uppskerunni. Komið til baka um kl. 18:00. Kvöldverður og gisting á hótel Yangshuo Green Lotus í Yangshuo.
Máltíðir:  M, H,  K

Mánudagur 19. september    Yangshuo – Guilin
Frjáls dagur í Yangshuo, ekið til Guilin um kvöldið og gist þar um nóttina.
Máltíðir:  M

Þriðjudagur 20. september    Yangshuo - Guilin - Zhangjiajie
Farið frá hótelum kl. 07:50, en brottför flugs CA4381 er áætluð kl. 09:50 og lending í Zhangjiajie verður kl. 14:55. Frá Guangzhou er farið með CZ3381 kl. 19:45 og lent í Zhangjiajie kl. 21:10. Ekið á hótel Zhangjiajie Qinghe Jinjiang International þar sem gist verður næstu tvær nætur.
Máltíðir:  M,

Miðvikudagur 21. september   Zhangjiajie
Farið frá hóteli kl. 09:00 og ekið í Helong Marsai þjóðgarðinn, en í þjóðgarðinum eru fossar, brýr og bergsteinsstólpar sem mynda svokallaðan steinaskóg. Farið með kláfferju upp á fjallið Tianzi.  Eftir hádegisverð haldið til Yuanjiajie, sem er útsýnisstaður og þar má sjá 100 metra háa steindranga vaða í skýjum. Hápunktur dagsins er sennilega heimsóknin til Qiankun Peak, þar sem hluti kvikmyndarinnar Avatar var tekinn. Svo verður farið 330 metra niður fjallið með Bailong-lyftunni, sem er með glerveggjum og byggð utan á einn klettinn. Kvöldverður á kínverskum veitingastað. Komið til baka um kl. 19:30.
Máltíðir:  M, H, K

Fimmtudagur 22. september    Zhangjiajie-Chengdu
Farið frá hóteli kl. 08:30. Tökum kláf upp á fjallið til að sjá yfir þorpið Huangshizhai  (e. Yellow Stone) og er útsýnið þar ægifagurt. Eftir hádegisverð er tveggja tíma gönguferð meðfram kristaltærri á með útsýni til dulúðugra fjallatinda. Komið til baka um kl. 17:30 og kvöldverður snæddur á hóteli áður en farið er út á flugvöll og flogið með CA4378 kl. 23:00 og lent í Chengdu kl. 00:25. Gist um nóttina á hótel Crown Plaza.
Máltíðir:  M, H, K

Föstudagur 23. september    Chengdu - Lhasa
Farið frá hóteli kl. 8:00 og ekið að pöndurannsóknarsetrinu í Chengdu. Hádegisverður á veitingastað. Ekið á flugvöll þar sem brottför flugs CA4112 er áætluð 12.50 og lending í Lhasa kl. 15:00. Ekið á hótel og það sem eftir lifir dags frjálst til hvíldar og nýtist vel til að jafna sig á hinni miklu hæð, en Lhasa er í um 3.600 metra hæð yfir sjávarmáli. Kvöldverður á veitingastað.
Máltíðir:  M, H, K

Laugardagur   24. september   Lhasa
Frá hóteli verður farið kl. 9:30 í dagsferð í Potala höllina, fyrrum vetrardvalarastað Dalai Lama. Þetta er mikilfenglegt völundarhús og liggja gangar og tröppur milli ótal herbergja þar sem finna má listilega gerðar styttur, grafhvelfingar, veggmyndir og fornminjar. Göngum hjá Hvítu höllinni í Rauðu höllina þar sem fjöldi pílagríma býður til sölu silkitrefla, mynt eða jakuxasmjör til að brenna í helgidómnum, en upplifunin er ógleymanleg. Hádegisverður á veitingastað í nágrenninu.
Eftir hádegi verður farið í Tíbetsafnið, fyrsta stóra nútímalega safnið í Tíbet. Kvöldverður á veitingastað. Komið aftur á hótel um kl. 20:00.
Máltíðir:  M, H, K

Sunnudagur 25. september    Lhasa
Farið frá hóteli kl. 9:30 í dagsferð að Sera klaustrinu, sem er í úthverfi norðantil í Lhasa, en það er eitt af þremur helstu klaustrum Lhasa, og þar fara fram daglegar rökræður munkanna um búddisma og kenningar Búdda. Hádegisverður á veitingastað.
Farið í Norbulingka, en það þýðir fjársjóðsgarður. Norbulingka var reist sem sumarhöll fyrir Dalai Lama, en þjónaði síðar stjórnsýslu landsins. Þaðan verður haldið í teppaverksmiðju.
Kvöldverður snæddur á veitingastað. Haldið aftur á hótel kl. 20:00.
Máltíðir:  M, H, K

Mánudagur 26. september    Lhasa
Farið frá hóteli kl. 9:30 í dagsferð til Jokhang hofsins. Það er minna og viðráðanlegra en Potala klaustrið, en í þessu fjögurra hæða hofi með gyllta þakinu slær hjarta tíbetsks búddisma. Innfæddir biðja hér reglulega; jakuxasmjörslampar lýsa upp glæsilegar styttur, m.a. hinn hvíta Búdda sem Wen Cheng prinsessa færði Tíbetum að gjöf frá Kína á sjöundu öld. Hádegisverður á veitingastað.
Eftir hádegi verður farið á Barkhor götu, 1.300 ára gömul gata sem liggur hringinn um Jokhang hofið, en áður álitu Tíbetar hana götu hinna heilögu, og forðum gengu pílagrímar þennan svokallaða pílagrímahring. Kvöldverður á veitingastað. Haldið aftur á hótel kl. 20:00.
Máltíðir:  M, H, K

Þriðjudagur 27. september    Lhasa - Peking
Frjáls tími að morgni. Kl. 15:25 verður flogið með CZ3184, og áætluð lending kl. 20:50 í Peking. Ekið á Swissotel Hongkong & Macau Center til hvíldar.
Máltíðir:  M, H, K

Miðvikudagur 28. september   Peking
Farið frá hótelum kl. 08:30. Dagurinn hefst á Torgi hins himneska friðar, sem má með sanni segja að sé í hjarta Peking. Frá torginu er svo gengið í gegnum „Forboðnu borgina“,  fyrrum keisararíki innan Peking sem almenningi var meinaður aðgangur að á öldum áður. Hádegisverður á kínverskum veitingastað. Eftir matinn skoðum við nýja óperuhúsið (klárað 2007), Sumarhöllina, þar sem m.a. er að finna marmarabátinn hennar XiCi, og svo loks fallegar perlur. Kvöldverður á veitingastaðnum Quanjude Jinxin, sem hefur ekta Peking önd á boðstólum. Komið til baka á hótel kl. 20:30.
Máltíðir: M, H,K

Fimmtudagur 29. september    Peking
Farið frá hótelum kl. 08:30. Ekið að Kínamúrnum (hluti nefndur Badaling) og hann skoðaður í návígi. Þetta ótrúlega byggingarverk var reist fyrir yfir 2.000 árum og árið 2007 var það sett í hóp sjö nýju undra veraldar. Múrinn er alls um 6.400 kílómetra langur og er talið að á bilinu 2-3 milljónir manna hafi látist á þeim fleiri tugum ára sem það tók að reisa múrinn. Drjúgur tími fer í skoðunar- og gönguferðir á múrnum, en eftir hádegisverð er ekið aftur til Peking og farið í skemmtilega Rickshaw hjólavagnsferð. Kvöldið frjálst.
Máltíðir:  M, H

Föstudagur 30. september    Peking – Helsinki – Keflavík
Farið frá hótelum kl. 07:55 og ekið út á flugvöll, en áætluð brottför er með Finnair kl. 10:55.
Millilent í Helsinki og áætluð lending í Keflavík kl. 16.30 sama dag.
Máltíðir:  M


Verð á mann:

Tvíbýli
567.000 kr. * og 15.000 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta: 577.000 kr.

Einbýli
659.800 kr.* og 15.000 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta: 669.800 kr.

Innifalið í verði ferðar:
  • Flug til og frá Kína
  • Allt innanlandsflug í Kína
  • Flugvallaskattar
  • Gisting á 5* hótelum (sjá lista)
  • Ferðir skv. ferðatilhögun
  • Íslenskur fararstjóri
  • Máltíðir samkvæmt ferðalýsingu:

M= morgunverður
H = hádegisverður
K= kvöldverður

Gisting:
2 nætur á 5* Shanghai Ramada Gateway Hotel  15 -17.sept
2 nætur  á 5* Guilin Lijiang Waterfall Hotel  17. – 18. sept og 19. - 21.sept
1 nótt á  5*Green Lotus Hotel Yangshuo 18.- 19.sept. *)
2 nætur á 5* Zhangjiajie Qinghe Jinjiang International  Hotel  21. – 22. sept.
1 nótt á 5* Crown Plaza Hotel  22. - 23.sept
4 nætur  á 5* í Lhasa 23. – 27.sept
3 nætur  á 5* Beijing Swissotel  í Peking  27. – 30.sept

*) Farangur er skilinn eftir á hóteli í Guilin og ferðast með handfarangur til  Yangshuo

Ekki innifalið:
Vegabréfsáritun
Þjórfé (reiknað með 10.000 krónum á mann )
Drykkir

Lágmarksþátttaka í þessa ferð er 20 manns

 
 

Kína - hótel í sérferð 14. - 30. september 2011 

 

Öll hótelin í þessari ferð eru góð 5 stjörnu hótel. Í ferðalýsingu er hlekkur inná heimasíðu hvers hótels þar sem hægt er að skoða lýsingu og myndir. Skoða ferðalýsingu.

(+)nánar

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar