Páskasigling um Karíbahaf 30.mars 2012

Páskasigling um Karíbahaf 30.mars 2012

Páskasigling um Karíbahaf með Allure of the Seas - stærsta skemmtiferðaskip í heimi.

Orlando, og Fort Lauderdale - USA, Nassau - Bahamas, Charlotte Amalie - St. Thomas , Philipsburg - St. Maarten, St. , Fort Lauderdale og Orlando - USA.
Dagsetning: 30.mars - 11. apríl 2012.
Fararstjóri: Helga Lára Guðmundsdóttir

 

Ferðin hefst með beinu flugi til Orlandó þann 30. mars 2012 þar sem gist er fyrstu nóttina. Þá er ekið til Fort Lauderdale, en þaðan er siglt um Karabíska hafið og er fyrsti viðkomustaður skipsins Nassu á Bahamaeyjum. Næsta dag erum við á siglingu og daginn eftir er komið til Charlotte Amalie á St. Thomas.

Næsti áfangastaður er Philipsburg á frönsk/hollensku eyjunni St. Maarten.

Við njótum síðustu tveggja daganna á siglingu.

Siglingin er í 7 nætur og gist í Orlando í 2 nætur fyrir siglingu og í 3 nætur eftir siglingu. Flogið til Íslands 11.apríl og lent í Keflavík snemma morguns þann 12.apríl.

Fjöldi skipulagðra ferða er í boði á áfangastöðum skipsins, en þær þarf að bóka og borga sérstaklega.

Gestir geta þó alltaf farið um alla viðkomustaði á eigin vegum. Í Orlando skipuleggur fararstjóri tímann með farþegum.

Allure of the Seas - fljótandi lúxus og glæsileiki!

Allure of the Seas, sem fór í sína jómfrúarferð í desember 2010. Allure of the Seas er hreint undraverk og um borð eru nýjungar, sem engin önnur skip bjóða. Þar má nefna lystigarðinn "Central Park", "The Boardwak", sem er opið afturþilfar með karnival stemmningu og aftast er hin hið ótrúlega vatnaleikhús þar sem dýfingameistarar og sundfólk sýnir listír á heimsmælikvarða.

Klefar eru ýmist með tvíbreiðu rúmi eða tveimur rúmum, setkrók með sófa og skrifborði, sjónvarpi með flatskjá, ísskáp eða smábar - eftir vali, hárþurrku, snyrtiborði og öryggishólfi. Baðherbergi með sturtu og snyrtivörum. Herbergisþjónusta allan sólarhringinn. Hægt er að velja um klefa með og án svala. Sjá nánar í gistilýsingu.

Komu- og brottfarartímar (m.v. staðartíma):
Frá Keflavík 30. mar. kl. 17:10, komið til Orlando sama daga kl. 20:55
Frá Orlando 11. apr. kl. 19:00, komið til Keflavíkur kl. 06:10 að morgni 12.apríl.

 

Dags. Höfn Koma Brottför
01.apr Fort Lauderdale, Flórída
17:00
02.apr Nassau, Bahamas
07:00 14:00
03.apr Á siglingu

04.apr Charlotte Amalie, St. Thomas
09:00 18:00
05.apr Philipsburt, St. Maarten
08:00 17:00
06.apr Á siglingu

07.apr Á siglingu

08.apr Fort Lauderdale, Flórída 07:00

Nákvæm leiðarlýsing:

Föstudagur 30.mars Keflavík - Orlando.
Flogið frá Keflavík til Orlando. Lending er um 20.55 og við komu er ekið með hópinn á hótel Florida Mall þar sem gist verður fyrstu nóttina.

Laugardagur 31.mars Orlando
Dagskrá í samvinnu við fararstjóra. Hægt að sóla sig, fara í einhverja hinna fjölmörgu verslana sem eru í Florida Mall eða heimsækja einhvern hinum heimsfrægu skemmtigörðum sem eru í Orlando.
Sameiginlegur kvöldverður.

Sunnudagur 1.apríl Orlando- Fort Lauderdale - Allue of the Seas
Ekið til Fort Lauderdale, um 4 klst. akstur. Eftir hádegi er komið um borð í farþegaskipið Allure of the Seas Öll þjónusta er til staðar og strax fyrsta kvöldið bíður girnilegur kvöldverður ferðalanganna.

Mánudagur 2. apríl Nassau (Bahamas)

Nassau, Bahamas Nassau, Bahamas
Í dag er Nassau á Bahamaeyjum þekktust fyrir sól , strendur, pálmatré og notalegt loftslag, en fortíðin er býsna skrautleg. Englendirngar, Frakkar og Spánverjar börðust um yfirráðin, Nassau var heimkynni sjóræningja og Spánverjar brenndu borgina til grunna 3svar sinnum. Allt hefur þó verið með kyrrum kjörum frá árinu 1740 og núna flykkjast ferðamenn til eyjunnar alls staðar úr heiminum.

Þriðjudagur 3.apríl Sigling um Karíbahaf

Miðvikudagur 4.apríl Charlotte Amalie (St Thomas)
St. Thomas er vinsæl meðal ferðamanna í dag og þangað kemur fjöldi skemmtiferðaskipa þar sem landið er fríhöfn. Þar var þó ansi ófriðlegt á öldum áður þegar óforskammaðir sjóræningjar réðu þar ríkjum og seldu góss sitt þaðan. Eyjan spilaði líka stórt hlutverk í sögu Dana, sem ræktuðu sykurreyr á eyjunni og notuðu til þess þræla. Í dag er St. Thomas fyrst og fremst sólskinsparadís.

Fimmtudagur 5.apríl, Skírdagur Philipsburg (St. Maarten)
Árið 1648 ákváðu Spánverjar að yfirgefa virki sitt á eyjunni og þá urðu nokkrir hollenskir og franskir hermenn eftir og ákváðu að dvelja þar áfram. Fljótlega eftir þennan atburð sömdu Hollendingar og Frakkar um að skipta eyjunni í tvo hluta og þannig er það enn í dag. Philipsburg tilheyrir hollenska hlutanum eins og sjá má á ýmsum byggingum bæjarins. Eyjan er einkum þekkt fyrir góðar strendur og verslanir.

Föstudagur 6.apríl, Föstudagurinn Langi og laugardagur 7.apríl Sigling um Karíbahaf
Tveir yndislegir dagar um borð í gæsilegu lúxusskipi, þar sem tími gefst til að slaka á og njóta þess sem í boði er.

Sunnudagur 8.apríl, Páskadagur Fort Lauderdale - Orlando
Komið til Fort Lauderdale snemma morguns og ekið til Orlando. Þar er gist á Florida Mall
hótelinu í 3 nætur.

Sunnudagur 8.apríl til þriðjudags 11.apríl
Farið er út að borða, í skemmtigarða o.fl. sem fararstjóri skipuleggur.

Þriðjudagur 11.apríl Flogið heim

Flogið frá Orlando um kvöldið heim til Keflavíkur þar sem lent er um kl. 6:10 að morgni miðvikudagsins 12.apríl

--------------------------------------------------------------------------------

ATH. Lágmarksþátttaka í þessa ferð er 20 manns.

Við áskiljum okkur rétt til að fella ferðina niður náist sú þátttaka ekki.

 

Verð á mann:

Miðað við tvo í ytri klefa án svala:

Verðflokkur  -F-.  Klefar  í þessum verðflokki eru á 7., 8., 9., 10. og 11 þilfari.

363.900 kr.-* og 15.000 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta: 373.900 kr.-
Aukagjald fyrir einbýli í klefa -F- 147.900 kr.

Miðað við tvo í ytri klefa með svölum:
Verðflokkur  -D7 -.  Klefar  í þessum verðflokki eru á 9., 10. og 11 þilfari.

388.900 kr.-* og 15.000 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta: 398.900 kr.
Aukagjald fyrir einbýli í klefa -D7- 159.600 kr.

Innifalið í verði ferðar:

  • Flug til og frá Orlando
  • Gisting án morgunverðar á hótel Flordia Mall í Orlando í tvær nætur  fyrir siglingu og þrjár nætur eftir siglingu
  • Skemmtisigling í viku með fullu fæði og afþreyingu um borð
  • Þjórfé um borð í Allure of the Seas
  • Allar ferðir milli flugvalla, hótels og skips
  • Íslensk fararstjórn

Ekki innifalið:

  • Skoðunarferðir á áfangastöðum skipsins
  • Annað, sem ekki er talið upp í ferðalýsingu.

--------------------------------------------------------------------------------

ATH. Lágmarksþátttaka í þessa ferð er 20 manns.
Við áskiljum okkur rétt til að fella ferðina niður náist sú þátttaka ekki.

 

 
 

Allure of the Seas 

Allure  of the Seas er nýjasta skemmtiferðaskip skipafélagsins Royal Caribbean Cruise Line og sigldi sína fyrstu ferð í  nóvember 2010. Norðmenn gera skipið út, en það er stærsta skemmtiferðaskip í heimi,  220 þúsund lestir, 360 metrar á lengd og rúmar alls 5.400 gesti auk áhafnar.  Allure of the Seas er hreint undraverk og um borð eru nýjungar,  sem engin önnur skip bjóða. Þar má nefna lystigarðinn “Central Park”, sem er um miðbik skipsins, “The Boardwalk”, sem er opið afturþilfar með karnival stemmningu og aftast er hið ótrúlega vatnaleikhús þar sem dýfingameistarar og sundfólk sýnir listír á heimsmælikvarða.

(+)nánar

The Florida hotel and Conference Center 

Afar vinsælt og sérlega gott hótel sambyggt Florida Mall verslunarmiðstöðinni. Hótelið hefur allt verið endurnýjað á undanförnum árum og er á fínum stað milli flugvallarins, Disney garðanna og miðbæjar Orlando.

(+)nánar

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar