Beint í leiðarkerfi vefsins.
Flogið er til Rómar, þar sem gist verður í eina nótt áður en farið er til hafnarborgarinnar Civitavecchia þaðan sem haldið er úr höfn. Millilent og skipt um vél í Kaupmannahöfn. Fyrsti áfangastaður skipsins er ítalska eyjan Sikiley. Síðan er stefnan tekin á Grikkland og við fáum heilan dag til að slaka á,læra á skipið og njóta þess sem býður okkur um borð í þessum glæsilega farkosti. Siglt er á vit hinnar sögufrægu Aþenu og þaðan haldið til strandbæjarins Kusadasi í Tyrklandi, en þaðan verður hægt að heimsækja hinar fornu söguslóðir í Efesus. Næstu áfangastaðir eru þrjár grískar eyjan, Rhódos, Santorini og Mykonos. Allar eru eyjarnar fallegar og sérstakar, hver á sinn máta.
Einn dagur á siglingu og stefnan aftur tekin á Ítalíu, nú til hinnar sögufrægu Napólí, hrífandi borgar í návígi við bæði hina undurfögu eyju Caprí og borgina Pompeii sem hvarf undir ösku Vesúvíusar og er einstakt dæmi um lifnaðarhætti Rómverja þegar veldi þeirra stóð sem hæst. Að lokum er siglt aftur til Rómar, þar sem stigið er frá borði eftir þessa 10 daga siglingu.
Eitt glæsilegasta farþegaskipið í flota Celebrity Cruises sem fór í sína jómfrúarferð í ágúst 2009. Norðmenn gera skipið út, en það er 12 hæðir, 122.000 lestir, rúmlega 300 metrar á lengd og með rými fyrir 2850 gesti auk áhafnar.
Lido er næst efsta þilfarið með skokkbraut , setustofum, veitingastað og bar, allt með gríðarmiklu útsýni til allra átta. Resort þilfarið er með sundlaugum, sundlaugarbar, sólbekkjum og heilsulindinni Aquaspa® . Entertainment þilfarið er með veitingastaði, listmunasölur,kaffihús, ísbúðir o.fl. og á Promenade þilfarinu eru litlar verslanir, vínbarir og spilavíti. Veitingasalir eru glæsilegir og um allt skip eru barir, hver með sínu þema.
Rúmgóðir klefa með öllum þægindum og herbergisþjónusta er opin allan sólarhringinn. Ótal afþreyingarmöguleikar, að ógleymdri fyrsta flokks þjónustunni sem fæst um borð, gera siglingu með Celebrity Equinox ógleymanlega.
Fjöldi skipulagðra ferða er í boði á áfangastöðum skipsins, en þær þarf að bóka og borga sérstaklega.
Gestir geta þó alltaf farið um alla viðkomustaði á eigin vegum.
| Dagss. | Á útleið: | Frá | Brottför | Lent í: | Lending | Flugtími |
| 13.sept | FI 204 | Keflavík | 07:45 | Kaupmannahöfn | 12:45 | 03:00 |
| 13.sept | SK 691 | Kaupmannahöfn | 15:55 | Róm | 18:25 | 02:30 |
| Á heimleið: | Koma: | |||||
| 26.sept | SK 682 | Róm | 14:45 | Kaupmannahöfn | 17:20 | 02:40 |
| 26.sept | FI 213 | Kaupmannahöfn | 19:45 | Keflavík | 20:55 | 03:10 |
Borgin forna Róm ein fegursta og merkasta borg Evrópu. Þar er vatikanið og þar situr páfinn.
Péturskirkjan, forna torgið Forum Romanum, Sixtínska kapellan o.fl.

| Dagss.: | Hafnarbakki | Komutími | Brottfarartími |
| 14. sept | Róm, Ítalía | 17:00 | |
| 15. sept | Sikiley, Ítalía | 10:00 | 19:00 |
| 16. sept | Á siglingu | ||
| 17. sept | Aþena, Grikkland | 07:00 | 18:00 |
| 18. sept | Efesus, Tyrkland | 07:00 | 18:00 |
| 19. sept | Ródos, Grikkland | 08:00 | 18:00 |
| 20. sept | Santorini, Grikkland | 07:00 | 18:00 |
| 21. sept | Mýkonos, Grikkland | 07:00 | 18:00 |
| 22. sept | Á siglingu | ||
| 23. sept | Napólí, Ítalía | 07:00 | 18:00 |
| 24. sept | Róm, Ítalía | 04:30 |
Föstudagur 14. september Róm - Lagt úr höfn
Farið frá hóteli strax eftir morgunverð og farið í 3ja klst. skoðunarferð um borgina. Eftir ferðina er ekið er til hafnarborgarinnar Civitavecchia, en þangað er um eins og hálfs klst. akstur. Við skipshlið taka vikapilar við farangri og síðan er gengið um borð. Öll þjónusta er til staðar, nema að verslanir og spilavíti opna ekki fyrr en komið er út á rúmsjó. Skipið leggur úr höfn kl. 17:00.
Laugardagur 15.september Sikiley (Messina), Ítalíu
Messina er gömul borg með mikla sögu og stendur í hlíðum Peloritani fjalla.
Gaman er að ganga um rústir kirkjunnar Santa Maria Alemanna church, sem var byggð árið 1220 af riddurum í Teutonisku reglunni. Þar getur einnig á að líta forna dómkirkju frá tímum Rómverja og Normanna og eru merkir forngripir til sýnis.
Skoðunarferð: Fjallaþorpið fagra Taormina. (Lovely Taormina - MY26)
Áætlaður tími: 4 klst.
Tormina er fagurt fjallaþorp í hlíðum Sikileyjar. Stoppað er á torginu fyrir fyrir neðan hæðina, þar sem Taormina stendur. Þaðan ganga síðan skutlur (litlir strætóar) upp að La Porta Messina en þetta hlið er byrjunin á aðalgötunni Corso Umberto Primo. Þar er fjöldi smáverslana, sem gaman er að líta við í. Gengið er eftir steinlögðum strætum um torgin í bænum og komið að Palazzo CORVAIA. Corvaia höllinn er miðaldakastali sem talið er að hafi verið byggður á 10.öld. Það er síðan farið að gríska leikhúsinu, sem er ótrúlega vel varðveitt útileikhús frá 2. öld f. Krist. Ef skyggni er gott er útsýni mikið og fagurt til hin fræga eldfjalls Etnu.
Athugið að ganga þarf um 400 metra upp brekku frá þorpshliðinu í miðbæinn og frjáls tími í miðbænum er um hálf klst.
Verð: 44.00 Evrur, eða um 7.500 krónur. *)
Sunnudagur 16.september Sigling um Miðjarðarðarhaf
Njótið þess að skoða skipið, leggjast á sólbekk við sundlaugina og smakka hina litskrúðugu og ljúffengu kokteila sem barþjónarnir blanda. Svo má fara í búðir, á málverkauppboð - eða kannski á matreiðslunámskeið, danskennslu eða sækja fyrirlestur.
Matur og drykkur allan daginn, svo bíður 4ra rétta kvöldverður og glæsileg sýning um kvöldið.
Mánudagur 17.september Aþena,(Piraeus) Grikklandi
Piraeus er hafnarborg Aþenu, stærsta hafnarborg Grikklands og ein mikilvægasta höfn Miðjarðarhafsins. Kastella hæðin með sínu mikla og fallega útsýni er í göngufæri frá skipslæginu og í borginni er merkilegt fornminjasafn, Mikrolimano, þar sem hægt er að setjast niður við fiskiréttahlaðborð fyrir eða eftir ferð um safnið. Frá skipinu bjóðast einnig skipulagðar ferðir inn til Aþenu, þar sem Akropolis og aðrar stórbrotnar minjar bíða okkar.
Skoðunarferð: Aþena og Akrópolis (Athens and Acropolis - PR05). Brottför kl. 08:30.
Áætlaður tími: 4 klst.
Haldið frá bryggju í Piraeus til Aþenu, og ekið inn í borgina eftir Syngrou stræti. Ekið hjá nokkrum þekktum minnisvörðum: Seifshofinu í Ólympíu, sigurboga Hadrians, Grísku görðunum, Gríska bókasafninu og þinghúsinu. Panaþinion leikvöllurinn var reistur árið 1895 og fyrstu nútíma ólympíuleikarnir voru haldnir þar árið 1896. Komið verður við í Akrópólis og mikilfengleg byggingarlistin barin augum. Ganga þarf eftir hlykkjóttum stíg og upp um 150 þrep til að komast upp á hæðina. Við munum sjá Hofhliðið, Erekþeion, Níkuhofið og Parþenon.
Athugið: Ganga þarf rúma 2 km yfir hæðótt landslag, nær 200 þrep og ójafnt undirlag og um 15 mínútur munu gefast til að kaupa minjagripi við Akrópólis.
Verð: 49.00 Evrur, u.þ.b. 8.400 krónur. *)
Þriðjudagur 18.september Efesus (Kusadasi), Tyrklandi
Kusadasi er fallegur strandbær á vesturströnd Tyrklands. Þaðan er leiðin greið til hinnar fornu borgar Efesus, sem byggðist á elleftu öld fyrir Krist. Seinna gerðu Rómverjar borgina ódauðlega. Í dag er Efesus ein merkasta forna borg í heimi þar sem rómverskum byggingum hefur verið haldið við og þar endurbyggðar í sinni upprunalegu mynd. Skammt frá Efesus er einnig kapella kennd við hina Heilögu Guðsmóður.
Skoðunarferð: Efesus og hús Maríu (Highlights Of Ephesus - KD72)
Áætlaður tími: 4 klst.
Efesus er stærsta safn utandyra í Tyrklandi og þangað kom milljónir ferðamanna á hverju ári. Meðal merkustu minja í Efesus er bókasafn Celcusar og best varðveitta útileikhús heims frá tímum Rómverja. Leikhúsið var hjarta og sál borgarinnar og þar voru haldnar stórfenglegar leiksýningar og merkir menn héldu miklar tölur. Enn í dag eru haldnir þar tónleikar og hafa m.a. Sting, Pink Floyd, Elton John og Pavarotti stigið á svið í hinni fornu borg.
Hús Maríu er því næst er skoðað, en María móðir Jesú er talin hafa dvalið þar síðustu ár ævi sinnar. Þrír páfar hafa komið í pílagrímsferð til hússins og fjöldi fólks kemur á hverjum degi til að biðja, kveikja á kerti og drekka hið heilaga vatn sem talið er veita heilsu, ást og hamingju. Þarna er einnig veggur, nefndur óskaveggurinn vegna þess að hver sá sem að skráir ósk sína á blað og hengir á vegginn, á að fá hana uppfyllta.
Verð: 53.24 Evrur, u.þ.b. 9.100 krónur
Miðvikudagur 19. september Rhódos, Grikklandi
Rhódos er grísk strandparadís þar sem sólin er sögð skína 300 daga ársins. Fallegar strendur, og heillandi borg með iðandi mannlíf og skemmtilegar göngugötur þar sem tónlist Thedorakisar hljómar. Litríkar minjagripaverslanir eru á hverju horni og hægt að dreypa á þjóðardrykknum Ouzo á næsta bar. Heimsókn í fallegan og reisulegan miðaldakastala freistar margra. Eins og á öðrum áfangastöðum skipsins er hægt að velja á milli þess að spóka sig um bæinn á eigin vegum eða fara í skipulagða skoðunarferð.
Fimmtudagur 20.september Santorini, Grikklandi
Gríska eyjan Santorini varð til við sprengigos fyrir 3.600 árum og er hreint undur. Drifhvít hús með bláum hurðum og þökum eru í bænum Fira (Thira), sem er ómótstæðilegur með þröngum götum, kaffihúsum og smáverslunum listamanna. Forna borgin Akrotiri var grafin upp fyrir nokkrum árum og merkilegt að sjá uppgröftinn og þær minjar sem þar eru að líta dagsins ljós.
Skoðunarferð: Oia og Fira. (Village of Oia & Santorini Island - SO01). Brottför kl. 12:00.
Áætlaður tími: 3 og hálf klst.
Þorpið Oia (borið fram ÍA) er á klettabrúnum eyjunnar Santorini og er einn myndrænasti staður Grikklands. Gengið er um þröngur götur þar sem útsýni er óviðjafnanlegt og nánast öll hús eru hvít og blá. Við heimsækum víngerð eyjunnar til að fá smakk af grískum réttum, bragð af víni og kíkjum í vínkallarann. Ferðin heldur áfram til þorpsins Fira þar sem hægt er að fara aftur um borð í skipið eða verið lengur í bænum og skoða í búðir. Margir listamenn og handverksmenn búa á Santorini og þar er því mikið af alls kyns handversks- og listmunasölum. Frá Fira liggur leiðin með kláfunum niður í höfnina þar sem skipið er.
Athugið að gengið er um 1 og ½ km á ójöfnum götum og steinlögðum. Ganga þarf upp 30 til 40 tröppur til að komast að kláfnum í Fira.
Verð: 50.40 Evrur, u.þ.b. 8.600 krónur
Föstudagur 21. september Mykonos, Grikklandi
Mykonos er ómótstæðileg og ein frægasta gríska eyjan. Hvít hús, dimmblátt hafið, þröngar götur og frábærar strendur. Á Mykonos er sagt að guðinn Apollo hafi fæðst.
Laugardagur 22. september Sigling um Miðjarðarhaf
Heill dagur til að njóta lífsins um borð í skipinu, sem nú siglir nú aftur til Ítalíu.
Sunnudagur 23. september Napolí/Capri, Ítalíu
Napolí, hafnarborgin fræga á Suður Ítalíu er okkar næsti áfangastaðu og þar má sjá fallegar byggingar, bæði frá tímum Grikkja og Rómverja. Skoðunarferðir eru um borgina og nágrenni hennar og þar ber hæst hina fornu borg Pompei, sem eyddist í eldgosi frá eldfjallinu Vesúvíusi árið 79. Að ganga um rústir Pompei, þar sem íbúar borgarinna létust af eiturgufum í gosinu lætur engan ósnortinn.
Skoðunarferð: Amalfi og Pompeii (Amalfi Coast by Motor Launch & Pompeii - NP72).
Áætlaður tími: 9 og hálf klst.
Siglt meðfram Amalfi ströndinni og hin forna borg Pompeii heimsótt. Eftir klukkustundar akstur ef farið í borð í bát og siglt í um 45 mínútur en útsýni er ákaflega fallegt. Stigið er í land í Amalfi, þar sem fólk hefur frjálsan tíma og getur m.a. séð hina fallegu dómkirkju borgarinnar. Aftur siglt til Salerno og ekið til Palermo þar sem snæddur er hádegisverður. Þá hefst ganga um hina fornu borg Pompeii þar sem byggingar og stræti hafa varðvist ótrúlega vel. Ekið aftur til Napolí.
Athugið að gengið er um 2 og ½ km á ójöfnum götum og steinlögðum.
Verð: 109.90 Evrur, u.þ.b. 18.500 krónur *)
Mánudagur 24. september Komið til hafnar og ekið til Rómar
Komið til hafnar snemma morguns, ekið til Rómar og farið í skoðunarferð áður en farið er á hótelið.
Þriðjudagur 25. september
Frjáls dagur í Róm.
Miðvikudagur 26. september Flogið til íslands
Ekið á flugvöllinn og flogið til Íslands með millilendingu í Kaupmannahöfn.
*) Verð á skoðunarferðum er frá 2011 og geta breyst.
Verð á mann:
Miðað við tvo í innri klefa án glugga (Verðflokkur 09 á Panorama, Sky eða Penthouse þilfari):
427.900 kr.-* og 15.000 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta: 437.900 kr.-
Miðað við tvo í ytri klefa án svala (Verðflokkur 08 á Plaza þilfari):
456.800 kr.-* og 15.000 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta: 466.800 kr.-
Miðað við tvo í ytri klefa með svölum (Verðflokkur 1B á Vista og Panorama þilfari:
472.000 kr.-* og 15.000 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta: 482.000 kr.-
Ekki innifalið:
--------------------------------------------------------------------------------
ATH. Lágmarksþátttaka í þessa ferð er 20 manns.
Við áskiljum okkur rétt til að fella ferðina niður náist sú þátttaka ekki.