Karíbahaf, Mið- og Suður Ameríka 2.mars 2012

Karíbahaf, Mið- og Suður Ameríka 2.mars 2012

Ameríka eins og þú hefur aldrei séð hana áður!

Frábær ferð þar sem farið er til áfangastaða í Karíbahafi,  Mið- og Suður Ameríku. Siglt er með einu af nýjustu skemmtiferðaskium Celebrity Cruises skipafélagsins, Celebrity Equinox, en það fór í sína jómfrúarferð í ágúst 2009. Sannkallað lúxusfley!

Dagsetning: 02. – 17. mars 2012  // Þessi ferð er uppseld!

FUNDUR MEÐ FARARSTJÓRA VERÐUR HALDINN MIÐVIKUDAGINN 15.FEBRÚAR KL. 17:30 Á
HÓTEL HILTON REYKJAVIK NORDICA.

Fararstjóri: Lilja Jónsdóttir

Stutt ferðatilhögun:

Orlando/Fort Lauderdale - Flórída, Cozumel -  Mexíkó , Belize – Belize, Puerto Limon - Costa Rica , Colon - Panama, Cartagena – Kólombíu, George Town - Grand Cayman og Fort Lauderdale/Orlando - Flórída.

Ferðin hefst með beinu flugi til Orlandó þann 2. mars þar sem gist er í þrjár nætur. Þaðan er siglt  um Karabíska hafið og er fyrsti viðkomustaður skipsins hin litríka og fallega eyja Cozumel í Mexíkó.

Ævintýrið hefst fyrir alvöru þegar stefnan er tekin á Mið Ameríkuríkið Honduras og eftir það bíða fleiri spennandi áfangastaðir, einnig í Suður Ameríku. Síðasti áfangastaður skipsins er hin fagra eyja Grand Cayman í Karaíbahafinu. Að lokum er siglt til Fort Lauderdale.

Um skipið

Celebrity Equinox er í svokölluðum „Solstice“ flokki hjá Celebrity Cruises, sem er hæsti klassi skipafélagsins. Aðbúnaður á skipinu er engum líkur og þú getur látið dekra við á allan mögulegan hátt. Veitingastaðirnir eru í heimsklassa, herbergin eru sérstaklega vel búin og vistarverur eru hannaðar samkvæmt nýjustu straumum og stefnum.

Skipið er liðlega 300 metrar á lengd og með rými fyrir tæplega 3.000 farþega.  Barir, veitingasalir, leiksýningar, skemmtanir, ótrúleg heilsulind og ótal fleiri afþreyingarmöguleikar eru um borð.

Skipin frá Celebrity Cruises eru margverðlaunuð og af mörgum fagaðilum talin þau bestu í heimi. Í þeim er nýjustu straumum í tísku og tækni blandað saman við tímalausan glæsileika og klassíska afþreyingarmöguleika. Smelltu hér til að vita meira um Celebrity Cruises skipafélagið.

Flugið: Komu- og brottfarartímar (m.v. staðartíma):
Frá Keflavík 02. mar. kl. 17:25, komið til Orlando 02. mar. kl. 20:20.
Frá Orlando 17. mar. kl. 18:00, komið til Keflavíkur 18.mar. kl. 06:10

Siglingaleið:

Dags.

Höfn

Koma

Brottför

       

05.mar

Fort Lauderdale, Flórída


16:30

       

06.mar

Á siglingu



       

07.mar

Cozumel, Mexíkó

08:00

17:00

       

08.mar

Belize borg, Belize

07:00

16:00

       

09.mar

Á siglingu



       

10.mar

Puerto Limon, Costa Ríka

07:30

19:30

       

11.mar.

Colon, Panama

08:00

18:00

       

12.mar

Cartagena, Kólumbíu

10:00

17:00

       

13.mar

Á siglingu



       

14.mar

George Town, Grand Cayman

08:00

17:00        
15.mar Á siglingu            
16.mar Fort Lauderdale 08:00          

Nákvæm leiðarlýsing:

Föstudagurinn 2. mars: Keflavík - Orlando.
Flogið frá Keflavík til Orlando í Flórída. Lending er um 20.20 og við komu er farþegum ekið á Florida Mall hótelið  þar sem gist verður í þrjár nætur.

Laugardagurinn 3.mars og sunnudagurinn 4.mars: Orlando
Skipulagður dagur með fararstjóra þar sem meðal annars verður farið í skemmtigarða og út að borða. Hótelið er við eina stærstu verslunarmiðstöð í Flórída með tugum verslana, veitingastaða og annarrar afþreyingar.

Mánudagur 5.mars:  Haldið um borð í Celebrity Equinox
Ekið er frá hótelinu eftir morgunmat til Fort Lauderdale í Flórída. Ferðin tekur um fjóra klukkutíma. Seinni part dags er stigið um borð í glæsifleygið Celebrity Equinox. Þar verður öll þjónusta til staðar og við komu í skipið bíður ferðalöngum fyrsta flokks girnilegur kvöldverður.

Þriðjudagurinn 6. mars: Sigling um Karíbahaf
Siglt suður á bóginn, í átt að Mið-Ameríku.

Miðvikudagurinn 7. mars: Cozumel (Mexíkó)
Cozumel er sannkallaður gimsteinn í yndislegu loftslagi Mexíkóflóa. Eyjan er rétt fyrir utan Yucatán skagann. Einkenni eyjunnar eru himinblár sjórinn og kóralrif. Algjör paradís fyrir þá sem vilja prófa að kafa en Cozumel er nafntoguð fyrir þá sem vilja kafa við fullkomnar aðstæður. Farþegar fá heilan dag á þessum yndislega stað.

Fimmtudagurinn 8. mars: Belize City (Belize)
Íbúar Belize eru meðvitaðir um einstaka náttúrufegurð landsins, sem á jafnt við um landið sem og lífið í sjónum. Yfir 20% Belize er friðlýst náttúruvætti  og undan ströndum landsins eru 250 km af einstökum kóralrifjum sem hafa laða til sín fjölda kafara hvaðanæva að.

Föstudagurinn 9. mars:  Sigling
Siglt suður á bóginn meðfram strönd Niqaraqua.

Laugardagurinn 10. mars: Puerto Limon (Kosta Ríka)
Einstök náttúrufegurð ræður ríkjum í Kosta Ríka. Í Puerta Limon gefst ferðalöngum einstakt tækifæri til að skoða regnfrumskóg með tilheyrandi dýralífi sem og  griðland fugla á svæðinu. Heill dagur er í Puerta Limon fyrir ferðalanga til að spóka sig um.

Sunnudagurinn 11. mars: Colon (Panama)
Við austurströnd Panamaskurðarins er næst stærsta borg Panama, Colon. Tveir einstakir staðir eru við Colon, að sjálfsögðu áttunda undur veraldar í Panama skurðinum, og stærsta manngerða stöðuvatn í heimi. Gaman er að fræðast um Panamaskurðinn sem tengir saman Atlantshafið og Kyrrahafið.

Mánudagurinn 12. mars: Cartagena (Kólumbíu)
Ímyndaðu þér ekta spænsk þorp. Litríkar götur, iðandi mannlíf, guðdómlegar kirkjur og yndisleg matargerð. Þannig er tilfinningin í Cartagena. Við mælum með góðum göngutúr í gegnum gamla bæjarhverfið Ciudad Murallada þar sem auðvelt er að drekka í sig menniguna. Ekki gleyma að kynnast matnum, sem er frábær. Fáðu þér hádegismat í gamla bænum á útiveitingahúsi, en ferðalangar hafa hálfan dag í bænum.

Þriðjudagurinn 13. mars: Sigling
Siglt áleiðis til Grand Cayman eyja.

Miðvikudagurinn 14. mars: George Town (Grand Cayman)
Höfuðborg Cayman-eyja er heillandi og skemmtileg. Mjúkur, hvítur sandur og engir skattar gera þennan áfangastað einstakan. Þú hefur heilan dag á eyjunni, nýttu hann vel. Farðu til dæmis að versla um morguninn og fáðu þér svo hádegismat á grillunum við ströndina þar sem þú getur svo slappað af út daginn.

Fimmtudagurinn 15. mars: Sigling
Siglt áleiðis til Bandaríkjanna á nýjan leik.

Föstudagurinn 16. mars: Fort Lauderdale (Bandaríkjunum)
Komið til Fort Lauderdale snemma morguns og ekið til Orlando. Þar er gist á Florida Mall hótelinu síðustu nóttina fyrir heimför.

Laugardagurinn 17. mars: Flug heim
Flogið frá Orlando um kvöldið heim til Keflavíkur þar sem lent er um kl. 6:00 að morgni 18.mars.


ATH. Lágmarksþátttaka í þessa ferð er 20 manns.
Við áskiljum okkur rétt til að fella ferðina niður náist sú þátttaka ekki.

Verð á mann:

Miðað við tvo í innri klefa án glugga og svala  (Verðflokkur 10)
Klefar eru á Panorama og Vista þilfari:
358.900 kr
.-* og 15.000 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta: 368.900 kr.-

Miðað við tvo í ytri klefa án svala (Verðflokkur 08)
Klefar eru á Plaza þilfari:
369.000 kr
.-* og 15.000 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta: 379.000 kr.-

Miðað við tvo í ytri klefa með svölum (Verðflokkur 1C)
Klefar eru á Vista þilfari:

389.700 kr.-* og 15.000 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta: 399.700 kr.-

Innifalið í verði ferðar:
  • Flug til og frá Orlando
  • Gisting án morgunverðar á hótel Florida Mall í Orlando í 3 nætur fyrir siglingu og eina nótt eftir siglingu
  • Skemmtisigling í 10 nætur með fullu fæði og afþreyingu um borð
  • Þjórfé um borð í Celebrity Equinox
  • Allar ferðir milli flugvalla, hótels og skips
  • Íslensk fararstjórn

Ekki innifalið:

  • Skoðunarferðir á áfangastöðum skipsins
  • Annað, sem ekki er talið upp í ferðalýsingu.

--------------------------------------------------------------------------------

ATH. Lágmarksþátttaka í þessa ferð er 20 manns.
Við áskiljum okkur rétt til að fella ferðina niður náist sú þátttaka ekki.

 

 

 
 

Celebrity Equinox 

Celebrity Equinox er í svokölluðum „Solstice“ flokki hjá Celebrity Cruises, sem er hæsti klassi skipafélagsins. Aðbúnaður á skipinu er engum líkur og þú getur látið dekra við á allan mögulegan hátt. Veitingastaðirnir eru í heimsklassa, herbergin eru sérstaklega vel búin og vistarverur eru hannaðar samkvæmt nýjustu straumum og stefnum.

 

(+)nánar

The Florida hotel and Conference Center 

Afar vinsælt og sérlega gott hótel sambyggt Florida Mall verslunarmiðstöðinni. Hótelið hefur allt verið endurnýjað á undanförnum árum og er á fínum stað milli flugvallarins, Disney garðanna og miðbæjar Orlando.

(+)nánar

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar