Páskasigling Dubai og Indland 4.apríl 2012

Páskasigling Dubai og Indland 4.apríl 2012

Páskasigling frá Dubai til Indlands með Brilliance of the Seas

Dagsetning: 04. - 19. apríl 2012

FUNDUR MEÐ FARARSTJÓRA VERÐUR HALDINN MIÐVIKUDAGINN 21.MARS KL. 17:30 Á HÓTEL REYKJAVÍK HILTON NORDICA, SUÐURLANDSBRAUT 2.

Fararstjóri: Sigmundur M. Andrésson

Dubai - UAE/Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum, Cochin - New Mangalore - Goa og Bombay, Indlandi,  Muscat - Oman, Dubai - UAE/S.


Einstök ferð til Dubai, þar sem siglt er með skemmtiferðaskipi til Indlands og þaðan til baka til Dubai.

Tækifæri til að sjá framandi áfangastaði á þægilegasta máta.

 

Stutt ferðatilhögun:
Ferðin hefst með Icelandair flugi til London. Þar er skipt um vél og flogið áfram með flugfélaginu ETIHAD til Abu Dhabi, en þaðan er ekið til Dubai, þar sem gist er í þrjár nætur. Frá Dubai er siglt um Persaflóa og alla leið til Indlands. Þar er komi til fjögurra mismunandi áfangastaða, sem eru heillandi hver á sinn máta. Frá Indlandi er siglt til Muscat í Oman áður en siglt er aftur til Dubai. Siglingin er í 12 nætur og þar af liggur skipið í Dubaí nóttina frá 18. - 19.apríl. Flogið heim 19.apríl og lent í Keflavík að kvöldi 19. apríl.

Fjöldi skipulagðra ferða er í boði á áfangastöðum skipsins, en þær þarf að bóka og borga sérstaklega. Gestir geta þó alltaf farið um alla viðkomustaði á eigin vegum.

Flugtafla:

Dags.
Útflug:
Frá Brottför Lent í: Lending Flugtími
04. apr FI 450
Keflavík 07:40 London
11:45 03:00

04. apr

EY 020

London

14:45

Abu Dhabi

00:50



Á heimleið:

Koma:

19. apr
EY 017
Abu Dhabi
13:30 London
18:15

19. apr

FI 455
London
21:00
Keflavík
23:10
03:10

Brilliance of the Seas - fljótandi lúxus og glæsileiki.
Glæsilegt farþegaskip, sem var hleypt af stokkunum 19.júlí 2002 og var allt endurnýjað árið 2009. Norðmenn gera skipið út, en það er 90 þúsund lestir og tekur alls 2.502 gesti auk áhafnar. Um borð er klifurveggur, körfuboltavöllur, spilavíti, heilsulind, barir,  veitingastaðir, leikhús, setustofur og sundlaugar.

Klefar eru  ýmist með tvíbreiðu rúmi eða tveimur rúmum, setkrók með sófa og skrifborði, sjónvarpi (með  flatskjá,)  ísskáp eða smábar - eftir vali, hárþurrku, snyrtiborði og öryggishólfi. Baðherbergi með sturtu  og snyrtivörum.  Herbergisþjónusta allan sólarhringinn.

Dags. Höfn Koma Brottför
07.apr Dubai, UAE
18:00
08.apr Á siglingu

09.apr Á siglingu

10.apr Á siglingu

11.apr Cochin, Indlandi
08:00 18:00
12.apr New Mangalore, Indlandi 07:00 17:00

13.apr

Goa, Indlandi

08:00

17:00

14.apr

Mumbai, Indlandi

08:00

21:00

15.apr

Á siglingu

 

 

16.apr

Á siglingu

 

 

17.apr

Muscat, Oman

08:00

16:00

18.apr

Dubai, UAE

14:00

 

19.apr

Dubai, UAE



Miðvikudagur 4.apríl  Keflavík - London Abu Dhabi
Lent í Abu Dhabi kl. 00:50 aðfararnótt 5. apríl. Þaðan er ekið að hóteli í Dubai, og tekur aksturinn um eina og og hálfa klst. Gist er á hótel Hilton Jumeirah Beach í 3 nætur.

Þeir sem sækja Dubai og Sameinuðu Arabísku Furstadæmin heim heillast gjarnan af landslaginu, sögu Mið-Austurlanda og öllu því sem þessi hafa að bjóða, en svæðið verður sífellt vinsælla meðal ferðamanna sem sækja í lúxus. Þar er fjölmargt að skoða, hvort heldur þú vilt fara út í eyðimörkina, njóta strandarinnar  eða stinga þér í Mall of Emirates verslunarmiðstöðina í Dubai, en þar eru yfir 200 verslanir og innanhúss-skíðabrekka, ótrúlegt - en satt!

Til að upplifa það besta sem Dubai hefur að bjóða þarf helst að fara í strandbæinn Jumeirah. Þar er að finna eitt glæsilegasta hótel veraldar - með heilar sjö stjörnur - og hina fögru Jumeirah mosku, eina af fáum moskum sem opnar eru öðrum en múslimum.

Dubai er á góðri leið með að verða mekka þeirra sem njóta sín best við að versla. Sjáðu það fyrir þér: Að morgni ferðu í Mall of Emirates - gríðarstóra verslunarmiðstöð með yfir 200 verslanir, leikhús og veitingastaði. Kannski læturðu eftir þér að fara nokkrar ferðir í innanhúss-skíðabrekkunni. Um miðjan daginn röltirðu um kryddmarkað (souk) og kaupir alls kyns krydd hvaðanæva að frá Mið-Austurlöndum, beint úr sekkjunum. Undir kvöldmat liggur leiðin á gullmarkaðinn, einn stærsta gullmarkað heims. Sennilega er best að flýta sér hægt - þú ert enn ekki farin/n að skoða fegurstu persnesku teppi sem finnast utan Íran. En hafirðu í huga að kaupa teppi skaltu kynna þér málið vel fyrir ferðina og setja þig í stellingar til að semja um verðið.

Bragðað á kræsingum
Fjölbreytt og merk menning Dubai kemur skemmtilega fram í mat svæðisins, sem er hræringur af því besta frá Persaflóa, Arabalöndum og Mið-Austurlöndum. Hvort sem þú horfir í verðið eður ei finnurðu veitingastaði sem gleðja jafnvel mestu matgæðinga. En hvert sem þú ferð skaltu ekki gleyma að prófa einn vinsælasta rétt Dubai - Shawarma samlokuna.

Fimmtudagur  5.apríl  (Skírdagur) Dubai
Eftir morgunverð er farið í skoðunarferð um Dubai.

Föstudagur 6.apríl (Föstudagurinn langi)   Dubai

Laugardagur  7.apríl Dubai - lagt úr höfn
Morguninn er frjáls en um eða eftir hádegi er ekið að höfninni þar sem innritun í skipið fer fram. Svo er gengið um borð og er öll þjónusta er til staðar, nema að verslanir og spilavíti opna ekki fyrr en komið er út á rúmsjó.  Áætlað er að skipið sigli kl. 18:00.

Sunnudagur 8.apríl til Þriðjudags 10.apríl  Siglt til Indlands
Siglum út Persaflóa og þaðan um Hormuz sund yfir í Arabíuflóann þar til komið er til Indlands þar sem heillandi ævintýrastaðir bíða okkar.

Undurþægilegir dagar þar sem við líðum um hafið og njótum alls þess sem skipið hefur að bjóða. Njótum þess að prófa veitingastaðina, heilsulindina og  verslanirnar. Svo má fara á málverkauppboð, matreiðslunámskeið, danskennslu eða á fyrirlestur.
Matur og drykkur allan daginn, svo bíður 4ra rétta kvöldverður og glæsilegar sýningar á hverju kvöldið.

Miðvikudagur  11.apríl         Cochin, Indlandi
Kochi (einnig kölluð Cochin), er ein besta náttúrulega höfn Arabíustrandar Indlands, og var fyrrum ein merkasta kryddhöfn heims. Borgin hefur yfir sér evrópskan blæ, því þar bjuggu um tíma margir Portúgalir, Hollendingar og Englendingar. Áhrif þeirra á kastala, hallir söfn og kirkjur eru enn greinileg. Þess vegna er Kochi gjarnan kölluð “Drottning Arabíuhafs.” Þegar ekið út úr Cochin borg tekur við ægifagurt og friðsælt landslag sem liggur að Appaluzha héraði. Hér er hægt að skoða afskekkta hluta Kerala-fylkis, sigla um þéttan hitabeltisgróður og fylgjast með hæglætislegu amstri innfæddra, eitthvað sem sést ekki frá veginum.

Fimmtudagur  12.apríl New Mangalore, Indlandi
Höfnin í New Mangalore er við strönd Suður-Indlands, og er hún níunda stærsta höfn landsins. Umkringis höfnina er fagurt, landslagið einkennist af kókoshnetu-, ashoka- og pálmatrjám, Sahyadrifjöllum og glæstum ám sem renna í Arabíuhaf. Í næsta nágrenni er Mangalore-borg, sem iðar af lífi - sagan hefur markað spor sín þar, þröngar götur einkenna borgina og fjölmörg hús með sína sérstæðu gafla og rík angan af kókos-karríi umlykur allt.

Mangalore er þekktust fyrir nokkur helg hof. Í Shri Sharavue Mahaganapati hofinu fara fram ýmiskonar menningarviðburðir. Kadri Manjunath hofið er frá árinu 1068 e.Kr. Og Kudroli Gokarnath er eitt helsta hof svæðisins.

Þú færð indverska menningu beint í æð við að rölta um aðalmarkaðinn. Hann iðar af lífi þegar fólk á viðskipti með grænmeti, ávexti, annan mat og blóm.

Föstudagur  13.apríl Goa (Mormugao), Indlandi
Hvernig er hægt að standast stað með mottóið “Sossegade,” sem gæti útlaggst sem “slakaðu á.” Goa hefur löngum verið vinsæll áfangastaður meðal nýaldar-ferðamanna, sem sækja í hið yfirskilvitlega, en er þó engin hippanýlenda. Auk draumkenndra strandanna er þar að finna verslanir og veitingastaðir í hæsta klassa - Goa er tilvalinn staður til að kynnast Indlandi. Sagan lifir í andrúmsloftinu, mörkuð skemmtilegri og einstakri blöndu portúgalskra og indverskra áhrifa. Portúgalir voru hér í ein 500 ár og enn sjást merki þess, t.d. í síðdegisblundinum sem fólk tekur. Sossegade!

Þessi ríku portúgölsku áhrif gefa Goa mikla sérstöðu á Indlandi, og eru fjölmörg minnismerki innan göngufæris hvert frá öðru, svo auðvelt er að kynna sér þennan hluta sögu Goa. Landsstjóraboginn var reistur árið 1597 til að minnast komu portúgalska landkönnuðarins Vasco da Gama. Dómkirkja heilagrar Katrínar, sem var 80 ár í byggingu, ku vera stærri en nokkur kirkja í Portúgal. Og ef kraftaverkin heilla þig er í kirkju og klaustri heilagrar Monicu Christon að finna Kristsmynd sem sagt er að hafi opnað augun og mælt.

Laugardagur  14.apríl        Mumbai, Indlandi
Mumbai (áður Bombay), er Hollywood Indlands, einstök borg sem iðar af lífi og fjöri. Þar er hægt að finna eitthvað fyrir alla - spennandi götulíf, besta næturlíf Indlands og mikið úrval verslana. Borgin er höfuðvígi bæði fjármála og skemmtanaiðnaðar á Indlandi, svo þú gætir allt eins mætt Bollywood stjörnu eða fjármálajöfri á götu úti. Borgin stendur svo sannarlega undir því að vera kölluð Borg Draumanna.

Hótelið, Taj Mahal Palace and Tower, er í glæsilegri byggingu á frábærum stað með útsýni yfir Arabíuflóann lið var reist árið 1903 og blandar á einstæðan hátt saman indverskri fágun og vestrænni hönnun. Af því stafar glæsileik og þar hafa dvalist konungbornir gestir, þjóðarleiðtogar, viðsktiptajöfrar, heimsfrægt fólk, og innan skamms, þú.

Sunnudagur 15.apríl og mánudagur 16.apríl      Á siglingu
Siglt til baka og stefnan tekin á Oman

Þriðjudagur 17.apríl    Muscat, Oman
Þó Muscat sé ein elsta borg Mið-Austurlanda - frá annarri öld f.Kr. - hefur hún aðeins verið aðgengileg ferðamönnum í örfáa áratugi. Þar er að finna snyrtilega og fallega almenningsgarða, langar óspilltar strendur og virkisgröf sem umlykur svæðið. Konungsríkið Óman hefur augljóslega unnið að því hörðum höndum að saga borgarinnar fái að njóta sín og tryggja öryggi borgara og ferðamanna.
Við mælum sérstaklega með heimsók í kastalana Al Jalali og Al Mirani, sem standa í fjallshlíð og sagan segir að hafi verið notaðir sem fangelsi meðan landið var undir yfirráðum Portúgala á 16. öld. Þeim hefur síðan verið breytt í söfn sem þjóðarleiðtogar og kóngafólk sækja heim. Og það er vissara að gleyma ekki myndavélinni - útsýnið frá þeim er óviðjafnanlegt!

Miðvikudagur 18.apríl    Dubai
Frjáls dagur í Dubai og gist í skipinu um nóttina.

Fimmtudagur  19.apríl Dubai – Abu Dhabi - London - Keflavík
Morgunverður um borð og akstur á flugvöllinn. Flogið frá Abu Dhabi um London og áætlað að lenda í Keflavík kl. 23.10 sama kvöld.

Verð á mann:

Verð á mann í klefa -K-. Innri klefi og er án glugga
Klefar í þessum verðflokki eru á 2., 3., 4., 7., 8., og 9.þilfari.
444.900 kr.-* og 15.000 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta: 454.900 kr.-
Aukagjald fyrir einbýli í klefa -K- 157.100 kr.

Verð á mann í  klefa -G-. Ytri klefi með glugga, en EKKI með svölum
Klefar í þessum verðflokki eru á 2., 3. og 4. þilfari.
469.900 kr
.-* og 15.000 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta: 479.900 kr.-
Aukagjald fyrir einbýli í klefa -G- 183.100 kr.

Verð á mann í  klefa -E2-. Ytri klefi með svölum
Klefar  í þessum verðflokki eru á 7., 8. 9., 10. og 11 þilfari.
499.900 kr.
-* og 15.000 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta: 509.900 kr.
Aukagjald fyrir einbýli í klefa -E2- 210.000 kr.

Innifalið í verði ferðar:

  • Flug til og frá Abu Dhabi með Icelandair og ETIHAD
  • Gisting með morgunverði á hótel Hilton Jumeriah Beach í Dubaí þrjár nætur fyrir siglingu og þrjár nætur eftir siglingu
  • Skemmtisigling í 12 næturmeð fullu fæði og afþreyingu um borð
  • Þjórfé um borð í Brilliance of the Seas
  • Allar ferðir milli flugvalla, hótels og skips
  • Skoðunarferð í Dubai
  • Íslensk fararstjórn

Ekki innifalið:

  • Skoðunarferðir á áfangastöðum skipsins
  • Annað, sem ekki er talið upp í ferðalýsingu.

--------------------------------------------------------------------------------

ATH. Lágmarksþátttaka í þessa ferð er 20 manns.
Við áskiljum okkur rétt til að fella ferðina niður náist sú þátttaka ekki.

 

 

 
 

Hilton Dubai Jumerah Resort 

Glæsilegt hótel rétt hjá Jumeirah Pálmanum víðfræga, við strandlengju sem kölluð er “gyllta mílan.” Skammt frá helstu verslunargötu Dubai – “The Walk.” Íburður á öllum sviðum og allt til alls.

(+)nánar

Brilliance of the Seas 

Glæsilegt farþegaskip, sem var hleypt af stokkunum 19.júlí 2002 og var allt endurnýjað árið 2009. Norðmenn gera skipið út, en það er 90 þúsund lestir og tekur alls 2.502 gesti auk áhafnar. Um borð er klifurveggur, körfuboltavöllur, spilavíti, heilsulind, barir,  veitingastaðir, leikhús, setustofur og sundlaugar.  Aðalgatan, Royal Promenade er opin allan sólarhringinn.

(+)nánar

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar