Beint í leiðarkerfi vefsins.
Fararstjóri: Sigmundur M. Andrésson
Þessi einstaka ferð býðst nú í annað sinn á Íslandi. Hver einasti dagur er skipulagður þannig að farþegar upplifi eitthvað sérstakt og spennandi. Það sem gerir ferðina hreint einstaka er að farið er í tvær siglingar. Annarsvegar um Amazon svæðið og svo aftur þegar siglt er á milli hinna einstöku Galapagos eyja. Ekki búast við fimm stjörnu hótelum, heldur ósvikinni stemningu sem gerir þessa ferð sem VITA kynnir með sérstöku stolti, að lífsreynslu sem þú gleymir aldrei.
Landið Ekvador
Ekvador er oft sagt vera Suður-Ameríka í hnotskurn. Landið liggur að Kyrrahafinu beggja vegna miðbaugs jarðar, milli Kólombíu í norðri en Perú í austri og suðri. Það nær yfir mörg loftslags- og gróðurbelti þótt það sé aðeins tveimur og hálfum sinnum stærra en Ísland; nær frá Kyrrhafinu upp í rúmlega 6.000 metra hæð í Andesfjöllunum og niður í regnskóga Amazon handan þeirra. Þar má sjá álíka breytingar í náttúrufari eins og þegar farið er frá miðbaugi jarðar norður á heimskautssvæðið. Engar árstíðir eru í landinu en breytileg úrkoma á tveimur megintímabilum. Mörg stór eldfjöll eru í Ekvador, sum þakin jökli, og nær tugur þeirra telst virkur.
Fólkið
Rúmar 13 milljónir manna af mörgum þjóðernum búa í Ekvador og eru frumbyggjar (indíánar) ríflega helmingur íbúanna, af meira en tug þjóða eða þjóðarbrota. Kitsjúar eru þeirra fjölmennastir, svo milljónum skiptir, en Cofanar fámennastir eða um 600 manns. Borgir og bæir eru margir. Fjölmennastar teljast Guyaquil með um 3 milljónir íbúa og höfuðborgin Quito með tæplega 2 milljónir og er elsti hluti hennar á heimsminjaskrá SÞ, með glæsibyggingum nýlendutímans. Stjórnarfarið er þingbundið lýðræði með afar valdamikinn, þjóðkjörinn forseta, ekki ólíkt bandarísku stjórnkerfi. Núverandi forseti tók við embætti í janúar 2007 og heitir Rafael Correa.
Galapagos
Hinar kunnu Galapagoseyjar tilheyra Ekvador. Eyjarnar eru 16 talsins, auk skerja, myndaðar við eldgos sl. 5 milljón ár. Stærst er Isabela (4.600 km²) og er hver eyja eldstöð eða klasi af eldstöðvum líkum þeim sem við köllum dyngjur, sbr. Skjaldbreið, allt að 1.700 m háar yfir sjó. Samtals búa þar um 20.000 manns í fjórum megin bæjum og er hafður í heiðri ákveðinn ferðamannakvóti (um 80.000 manns árið 2009) svo vernda megi landslag og lífríki eyjanna. Þær eru m.a. heimsþekktar fyrir líflega eldvirkni, sérkennileg og ótrúlega gæf dýr á borð við blá- og rauðfættar súlur, sæljón, risaskjaldbökur og sækembur, auk þess að vera lykilstaður í uppgötvun þróunarkenningar Charles Darwins.
Flug og ferðatilhögun:
| Á útleið: | Brottför | Koma | ||||
| 8. maí | FI 689 | Keflavík | 17:10 | Orlando | 8. maí | 20:55 |
| 9. maí | AA 931 | Miami | 16:40 | Quito | 9. maí | 19:45 |
| Á heimleið | ||||||
| 26.maí | AA 966 | Quito | 10:00 | Miami | 26.maí | 15:10 |
| 26.maí | AA 588 | Miami | 17:30 | Boston | 26.maí | 21:20 |
| 27.maí | FI 630 | Boston | 21:30 | Keflavik | 28.maí | 06:30 |
8. maí (þriðjudagur): Flogið frá Íslandi til Orlando
Eftir lendingu í Orlando er ekið á Hótel Flórída Mall þar sem gist er um nóttina.
Máltíðir: ekki innifaldar
9. maí (miðvikudagur): Komið til Quito í Ekvador
Ekið frá Orlando til Miami og flogið með American Airlines til höfuðborgar Ekvador Quito, þar sem lent er klukkan 19:40. Gist er í eina nótt á Sebastian hótelinu sem er rekið af heimamönnum í hjarta miðbæjarins. Það er á besta stað, á rólegu svæði, en stutt frá iðandi mannlífi borgarinnar. Stemningin er ósvikin og Ekvador er allsráðandi í öllu - frá innréttingum til veitinga.
Innifalið: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.
10. maí (fimmtudagur): Quito og miðbaugurinn
Borgin er skoðuð, en hún einkennist af þröngum skemmtilegum götum, gullsveipuðum kirkjum og aldagömlum torgum þar sem heimamenn versla á mörkuðum á sunnudögum. Quito er ein elsta höfuðborg Suður-Ameríku en uppruni hennar er frá 1500 fyrir Krist. Hverfi hennar eru eins mismunandi og þau eru mörg og borgin er skoðuð frá ýmsum sjónarhornum. Eftir ferðina er haldið út fyrir borgina, stoppað á fallegum útsýnisstað yfir Quito áður en ekið er áfram og hádegisverður framreiddur. Eftir akstur um fallegt landslag er komið í Sólarsafnið, sem er á og yfir Miðabauginn, á 0. breiddargráðu. Á safninu kennir ýmissa grasa, þar er hægt að taka þátt í tilraunum þar sem staðið er við sjálfan Miðbauginn og munurinn á því að standa til hægri og vinstri er skoðaður. Að lokum er kvöldverður á þjóðlegum veitingastað. Gist á Sebastian hótelinu.
Innifalið: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.
11. maí (föstudagur): Komið til Galapagos eyja
Ekið á flugvöllinn í Quito og þaðan flogið til Galapagos-eyja. Lent er á San Cristóbal eyju og haldið að skemmtiferðaskipinu Santa Cruz, sem liggur við bryggju í Puerto Baquerizo Moreno, höfuðborg eyjanna.
Skipað er í káetur og hádegisverður snæddur. Að því loknu verður kynning.
Náttúrusetrið og Cerro Tijeretas (San Cristóbal eyja)
Síðdegis verður farið í land í Puerto Baquerizo Moreno og haldið í Náttúrusetrið þar sem hægt er að öðlast betri skilning á eyjunum á sjónrænni sýningu. Þaðan verður haldið fótgangandi að norðurströnd San Cristóbal, þar sem taliðer að Charles Darwin hafi fyrst stigið fæti árið 1835. Til að minnast þess var reist brjóstmyn af náttúrufræðingnum.
Dýraríkið er ótrúlega fjölbreytt - hér er að finna Darwin-finkur, San Cristóbal hermikrákur, sund-eðlur (iguana), sæljón og margt margt fleira. Bláleitur flóinn er eins og rammaður inn af hlíðum þar sem finna má tvær tegundir freigátufugla. Tröppur liggja upp á tind Cerro Tijeretas, en þaðan sést yfir næstum allan norðurhluta San Cristóbal: Wreck Bay, Lobos Islet eyjuna, Punta Carola og hinn magnaða Kicker Rock klett.
Haldið aftur um borð, þar sem farþegar verða boðnir velkomnir með kokkteil, dagskrá laugardagsins og kvöldverði.
Innifalið: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.
12. maí (laugardagur): Galapagos eyjar
Cerro Brujo (San Cristóbal eyja)
Siglt með árabátum meðfram móbergs-klettum að hvítu ströndinni í Cerro Brujo (blaut lending). Ströndin er gríðarstór og á göngutúr má sjá mikið af fuglum, t.d. bláleggja súlur, brúna pelíkana, hegra, freigátufugla og fleiri strandfugla. Einnig gætirðu rekist á Galapagos-sæljón.
Meðal hápunkta á þessari göngu er Chatham hermikrákan og Chatham hraun-eðlan; báðar tegundirnar eru landlægar á San Cristóbal en finnast ekki annarsstaðar á Galapagos-eyjum. Cerro Brujo er tilvalinn staður til að kynnast snorkli og búnaðinum sem þarf við það.
Haldið aftur um borð og snæddur hádegisverður.
Punta Pitt (San Cristóbal eyja)
Seinni partinn verður haldið í land (blaut lending) á austurhluta eyjarinnar. Pitt-oddi er veðruð móbergsstrýta; frá stígnum sem liggur þangað upp frá ströndinni er ægifagurt útsýni yfir ströndina. Þetta er eini staðurinn á Galapagos þar sem er að finna þrjár tegundir súla, auk tveggja tegunda freigátu-fugla og einhleypra sæljónstarfa með ströndinni. Ef aðstæður leyfa verður í boði að stinga sér til sunds við ströndina eða snorkla við nærliggjandi hólma að gönguferðinni lokinni.
Farið yfir dagskrá sunnudagsins og snæddur kvöldverður.
Innifalið: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.
13. maí (sunnudagur): Galapagos eyjar
Santa Fe eyja
Eftir morgunverð verður farið í land við hvíta strönd þar sem fjölmörg sæljón eru með sín kvennabúr. Tarfarnir keppast um viðurkenningu sem hæstráðandi strandarinnar á meðan minni karldýrin laumast um eins og kvendýr og láta vel að kvendýrunum.
Galapagos-haukarnir sjást gjarnan, sitjandi á salt-runnum. Risafíkjukaktusinn stendur undir nafni, en stofn kaktusanna er oft á stærð við tré. Á þessari síðdegisgöngu rekumst við stundum á land-eðluna (iguana), sem finnst hvergi annarsstaðar en á þessari eyju. Í boði er að synda eða snorkla út af ströndinni, eða sigla um á báti með glerbotni.
Hádegisverður um borð.
Suður-Plaza eyja
Farið í land (þurr lending) í sundinu milli Norður- og Suður-Plaza eyja, þar sem landið hallar niður að sjó og aðkoman er litrík og fögur. Túrkísblátt vatnið tónar fallega við hvíta ströndina og svart hraunið. Klettarnir eru að hluta þaktir þykku grænu þangi, og inn á milli glittir í skær-appelsínugula Sally Lightfoot krabba. Aðeins ofar við ströndina er breiða af skarlatsrauðum þykkblöðungum sem grænir risafíkjukaktusar standa upp úr. Undir kaktusunum bíða grá-gular eðlur (iguana) eftir að ávextir kaktussins detti niður. Fjær ser að finna þyrpingar af sæljónum, og freigátufuglar, svölustéls-hettumávar og skrofur svífa yfir.
Farið yfir dagskrá mánudagsins og snæddur kvölverður.
Innifalið: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.
14. maí (mánudagur): Galapagos eyjar
Puerto Ayora og Rannsóknarstöð Charles Darwin (Santa Cruz eyja)
Haldið í land að morgni (þurr lending), í Rannsóknarstöð Charles Darwins og risaskjaldbökustíur, þar sem meðal annars er að finna hina víðfrægu skjaldböku “Einmana Georg,” í miklum skógi risafíkjukaktusa þar sem finna má fjölmarga landfugla. Hér eru höfuðstöðvar vísindarannsókna og verndar á svæðinu og þarna situr stjórn þjóðgarðsins.
Hádegisverður við sundlaugarbakkann á Finch Bay Eco hótelinu.
Hálönd Santa Cruz eyju
Að hádegiverði loknum verður farið upp á hálönd Santa Cruz, en þar ber hæst Scalesia-skóg og tvíburagígana djúpu Los Gemelos. (Frá desember til miðs apríl verður farið að skoða risaskjaldbökur, ef veður leyfir.) Haldið aftur til Puerto Ayora og um borð í skipið.
Farið yfir dagskrá þriðjudagsins og snæddur kvöldverður.
Innifalið: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.
15. maí (þriðjudagur): Galapagos eyjar
Punta Suárez (Española eyja)
Farið í land í Punta Suárez (þurr lending) og lagt í spennandi göngu yfir hraun og klappir til að komast að einstökum fuglabyggðum, þar sem er meðal annars að finna albatros (frá apríl til desember), Nazca súlur, bláleggjasúlur, svölustéls-hettumávar, auk þess sem hið víðfræga blástursop “blow-hole” sést vel. Meðal landfugla má nefna Hood-eyju hermikrákuna, Galapagos-hauk, Galapagos-dúfur og þrjár tegundir Darwin-finka. Auk þess er betra að hafa augun opin fyrir rauð-grænum sund-eðlum (iguana).
Aftur um borð og snæddur hádegisverður.
Gardner Flói (Española eyja)
Að loknum hádegisverði verður farið í land (blaut lending) við hvíta kórallaströnd og farið í stutta gönguferð að skoða sæljón, hermikrákur, finkur og njóta strandarinnar. Hér er gott að snorkla eða sigla um á báti með glerbotn.
Kynning, kveðjudrykkur og kvöldverður.
Innifalið: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.
16. maí, (miðvikudagur): Galapagos eyjar / Quito
Baltra eyja
Farið í land á Baltra eyju. Haldið á flugvöllinn og flogið aftur til Quito. Ekið á Hótel Sebastian.
Kvöldið frjálst.
Innifalið: Morgunverður.
17. maí (fimmtudagur): Kondórafriðlandið í Antisana
Stórfenglegt landslag Ekvadors er tilkomið vegna hreyfinga á jarðskorpunni sem kallast niðurstreymisbelti. Skammt undan strönd Ekvadors, liggur Nazce flekinn undir Kyrrahafinu og hann gengur inn undir Suður-Ameríku. Þetta þrýstir Andesfjöllunum upp, en meðal fylgifiska eru jarðskjálftar og tíð eldgos. Þegar flekinn þrýstist niður í jörðina bráðnar hann og úr verður gasrík kvika, sem er lausari í sér en jarðvegurinn í kring og rís því hægt að yfirborðinu. Þar brýst það út í eldgosum eða sprengigosum. Þessvegna er svo mikið af eldfjöllum í næsta nágrenni við Andesfjöllin.
Antisana eldfjallið er mikil snæhetta sem rís rétt rúma 5.700 metra yfir sjávarmál, en vegna staðsetningarinnar, nær 50 km suðaustur af Quito er það langt frá öllum helstu vegum. Þér býðst að fara þangað í dagsferð og kynnast helsta aðdráttarafli fjallsins; Andes-kondórnum. Í þessum hæðum, sem kallast paramos, finnum við hinar óvenjulegu bromelíur sem kallast "puyas" og "frailejones", Andes-púðaplöntur og fjölda tegunda kólibrífugla og annarra fugla sem hópast að smáum lónum og djúpum giljum, sem 200 ára gamalt hraun liggur um.
Haldið aftur til Quito síðdegis og gist á Hotel Sebastian.
Kvöldið frjálst.
Innifalið: Morgun- og hádegisverður.
18. maí (föstudagur): Quito / Otavalo og nágrenni
Haldið að landi Otavalo-fólksins, sem er að líkindum sá hópur innfæddra Suður-Ameríkubúa sem nýtur mestrar velmegunar, því þeim hefur tekist að blanda gömlum siðum og nýjum án þess að týna sjálfsmynd sinni. Á leiðinni verður komið við í Calderón, litlu þorpi sem er hvað þekktast fyrir handgerðar litríkar fígúrur úr brauði og víðáttumikla akra, en hjá íbúunum er rík hefð fyrir landbúnaði. Farið verður inn í nokkur heimili til að sjá hvernig þeir búa og komast að því hvaða skoðun þau hafa á okkur! Þetta iðna fólk verður á fullu í að undirbúa vikulegan markað sem verður daginn eftir.
Við tökum því rólega eftir kvöldmat, en forvitnir geta tekið þátt í óvenjulegri helgiathöfn græðara, sem er einkennandi fyrir Andesfjöllin.
Gist verður á hinu 300 ára gamla Hacienda Pinsaquí, sögufrægum stað með fallegum garði og fagurri fjallasýn.
Innifalið: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.
19. maí (laugardagur): Markaðurinn í Otavalo og fleira
Farið á hinn heimsfræga markað í Otavalo. En við förum ekki aðeins á handverksmarkaðurinn sem flestir fara á, heldur förum við einnig á tvo aðra markaði sem fáir ferðamenn kynnast. Þar gefst kostur á að kaupa veggteppi, málverk, skartgripi, axlaslár (ponsjóa), peysur úr alpaca-ull og margt fleira - á verði innfæddra!
Síðdegis sökkvum við okkur í gróskumikla akra Andes og sjáum helstu plönturnar sem þar eru ræktaðar auk náttúrulegs gróðurs og skýjaskógs.
Gist á Hacienda Pinsaquí.
Innifalið: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.
20. maí (sunnudagur): Otavalo / Cayambe / Quito
Morgunverður snæddur í rólegheitum til að njóta síðustu stundanna á Hacienda Pinsaquí. Þá haldið að stöðuvötnum í nágrenninu til að upplifa þvottadag hjá íbúum svæðisins. Komið verður við í þorpi sem þekkt er fyrir dýrindis leðurvörur.
Hádegisverður snæddur á öðrum búgarði sem veitir aðeins aðra sýn á líf bænda fyrr á öldum og þaðan haldið á rósarækt - þú munt ekki trúa litbrigðum og stærð sumra rósanna!
Síðdegis verður snúið aftur til Quito. Um kvöldið verður kynning á síðasta hluta ferðarinnar - um Amazon!
Gist á Hotel Sebastian.
Innifalið: Morgun- og hádegisverður.
21. maí (mánudagur): Otavalo / Coca / Manatee Amazon Explorer
Við höldum frá Quito að morgni og fljúgum í um 30 mínútur til Francisco de Orellana (Coca), sem heitir eftir spænska landkönnuðinum sem leiddi leiðangur frá Quito til Amazonia árið 1541. Vélknúinn kanó bíður okkar við höfnina og flytur okkur niður ána, í um 2 klukkutíma; á leiðinni verður kynning þar sem farið verður yfir það helsta sem gott er að vita um svæðið.
Þegar komið er um borð í bátinn Manatee Amazon Explorer verður siglt niður Napo ána og Tiputini áin könnuð með kanó.
Þegar skyggja tekur liggur leiðin á Amazon vatnasvæðið. Farið verður í göngutúr að kvöldlagi, kíkt í heimsókn til innfæddra eða siglt á kanó, eftir því sem vatnshæð, veður, dýralíf og aðstæður leyfa.
Innifalið: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.
22. maí (þriðjudagur): Cuyabeno friðlandið og Yasuní þjóðgarðurinn
Þetta afskekkta svæði í Cuyabeno er aðeins aðgengilegt um Krókódílaána (Lagarto), svarta á sem liggur um ferskvatns-fenjavið, macrolobium tré og pálmatré sem aðlagast hafa þessu mikla vatni. Krókódílavatn (Lagarococha) er ekki eitt vatn heldur vatnasvæði sem liggur við landamæri Ekvadors og Perú. Þetta svarta vatn er heimkynni hins þjóðsagnakennda bleika höfrungs, ferskvatnsskjaldböku, svarta caiman-krókódílsins og fleiri dýrategunda.
Seinnipartinn heimsækjum við eitt helsta svartvatns-stöðuvatnið í hjarta Yasuní, Jatunocha. Þar gefst tækifæri til að róa kanó og sjá í návígi risa-otra, undursamleg vatnaspendýr og dýr í útrýmingarhættu. Við róðurinn upplifirðu ótrúlega fegurð þessa svæðis á enn nánari hátt.
Innifalið: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.
23. maí (miðvikudagur): Kichwa samfélagið og activities um borð
Dagurinn hefst á ferð í félagsmiðstöð, skóla í Kichwa. Þar gefst tækifæri til að hitta íbúa svæðisins, kynnast menningu þeirra og háttum og blanda geði við börn þeirra.
Í eftirmiðdaginn verður siglt í rólegheitum á bátnum Manatee, og orku safnað fyrir næsta dag. Þeir sem þess óska geta fengið smá kennslu í matreiðslu Ekvadora hjá kokknum um borð. Að auki munu innfæddir sýna hvernig þeir vinna handverk úr tágum og öðrum efniviði úr skóginum, og haldnar verða kynningar á málefnum sem standa íbúum Amazon nærri, eins og menningu, líffræðilegum fjölbreytileika, olíu, arðráni og sjálfbærni. Þeir sem vilja hreyfingu geta farið í stutta gönguferð um Morete mýrina og svipast um eftir froskum og páfagaukum.
Innifalið: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.
24. maí (fimmtudagur): Páfagaukar í Yasuní þjóðgarðinum og friðlandið í Limoncocha
Farið í enn einn hluta Yasuní þjóðgarðsins, en þar er gott aðgengi að sérstæðum leirklettum sem páfagaukar sækja í því í leirnum eru næringarefni sem bæta meltingu þeirra. Við verðum á frábærum stað og fylgjumst með þessu sjónarspili úr návígi.
Seinni partinn förum við í friðlandið í Limoncocha, sem er stórkostlegur staður til að skoða fugla, apa og þegar kvölda tekur, svarta caiman-krókódílinn. Tækifæri mun gefast til að synda í vatninu og prófa vistvænar veiðar.
Innifalið: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.
25. maí (föstudagur): Coco / Quito
Að morgunverði loknum róum við með kanóum upp ána í um 2 tíma, að bænum Coca. Þaðan verður flogið til Quito. Við komuna til Quito verður haldið á hótelið.
Eftirmiðdagurinn frjáls, en sérstakur kveðjukvöldverður um kvöldið.
Innifalið: Morgun- og kvöldverður.
26. maí (laugardagur): Brottför frá Quito
Haldið á flugvöll og heimför hefst.
Innifalið: Morgunverður.
Verð á mann í tvíbýli:
874.400 kr.-* og 15.000 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta: 884.400 kr
Aukagjald fyrir einbýli 208.000 kr.
Innifalið í verði ferðar:
• Flug og flugvallaskattar
• Ferðir milli flugvalla, hótel og skipa
• Ferðir og aðgangseyrir skv. ferðalýsingu
• 6 daga sigling um Galapagos eyjaklasann með M/V Santa Cruz
• Tæki til að snorkla við Galapagos
• Aðgangspassi að Galapagos
• 5 daga sigling um Amazon svæðið með Manatee Amazon Explorer
• Staðarleiðsögumenn
• Íslensk fararstjórn
• Máltíðir samkvæmt ferðalýsingu:
Ekki innifalið:
• Drykkir
• Aðgangur að Manatee þjóðgarðinum í Amazon. Kostar Usd 34 eða þar um bil og er greiddur ytra.
• Blautbúningar á Galapagos (hægt að leigja)
• Þjórfé (Liðlega 200 dollarar á mann, eða nálægt 30.000 krónum
• Annað, sem ekki er talið upp í ferðalýsingu.
--------------------------------------------------------------------------------
ATH.
Lágmarksþátttaka í þessa ferð er 20 manns. Við áskiljum okkur rétt til að fella ferðina niður náist sú þátttaka ekki.
Leiðir um Galapagos og Amazon eru háðar reglum þjóðgarðanna, veðri, öryggi og dýralífi og geta breyst frá ferðalýsingu.
Þegar farið er í land á Galapagos eyjunum er stigið uppúr litlum bátum á kletta eða bryggjur – eftir aðstæðum
Verð á innanlandsflugi í Equador og aðgangseyrir í þjóðgarða geta breyst.
The Florida hotel and Conference Center
1 nótt - 8. - 9. maí
Afar vinsælt og sérlega gott hótel sambyggt Florida Mall verslunarmiðstöðinni. Hótelið hefur allt verið endurnýjað á undanförnum árum og er vel staðsett.
Heimasíða: http://www.thefloridahotelorlando.com/
Hótel Sebastian
6 nætur - 10. - 11., 16. - 18., 20. - 21. og 25. - 26. maí
Notalegt 4 stjörnu hótel sem býr yfir fallegum stíl er með mikla persónutöfra.
Heimasíða: http://www.hotelsebastian.com/
M/V Santa Cruz
5 nætur - 11. - 16. maí
Santa Cruz er mjög gott farþegaskip sem rúmar 90 farþega.
Heimasíða: http://www.mvsantacruz.com
Hacienda Pinsaqui í Otavalo
2 nætur - 18. - 20. maí
Hið 300 ára gamla Hacienda Pinsaqui er staðsett á sögufrægum stað með fallegum garði og fagurri fjallasýn.
Heimasíða: http://www.haciendapinsaqui.com/
Manatee Amazon Explorer
4 nætur - 21. - 25. maí
Þrælskemmtilegt skip sem býður farþegum sínum upp á ógleymanlegar stundir.
Heimasíða: http://www.amazoneexplorcruises.com
Colonnade Hotel - Boston
1 nótt - 26. - 27. maí
Gott hótel og frábærlega vel staðsett í hjarta miðborgar Boston.
Heimasíða: http://www.colonnadehotel.com/