Beint í leiðarkerfi vefsins.
Páskaferð til Kína - Gullni hringurinn
Öldum áður en Ísland var uppgötvað voru kínverjar farnir að prenta á pappír, nota byssupúður, drekka te, klæðast fötum úr silki og borða núðlur úr postúlínsskálum, samhliða því að þróa stjórnmálafræðilegar, trúarlegar og heimspekilegar kenningar og hugsjónir. Í dag er þessi efnahagsrisi á hraðri leið inn í nútímann og býður Kína því upp á áhugaverðar andstæður, bæði til borga og sveita.
Í þessari eftirminnilegu ferð VITA til fjölmennasta ríki heims munum við munum upplifa fjölmargar af þeim helstu menningar- og náttúruperlum sem þessi forni menningarheimur hefur upp á bjóða. Horft verður til fortíðar, framtíðar og náttúru þjóðarinnar í ferðum okkar um landið, en einnig munum við fræðast um tungumál, menningu, matarhefðir, félagslíf og margt fleira.
Á ferð okkar um þriðja stærsta land veraldar verður í boði fjölbreytt dagskrá á öllum áfangastöðum og er morgunmatur ávallt innifalinn á hótelunum, oftast hádegisverður og stundum kvöldmatur (sjá ferðalýsingu). Samhliða er lögð áhersla á að ferðalangar hafi líka einhvern frjálsan tíma aflögu til að njóta sín eftir eigin höfði, enda lagt upp með að ferðin verði afslöppuð og þægileg með dvöl á góðum hótelum. Fyrir þá sem vilja hinsvegar upplifa sem allra flest í ferðinni, mun íslenskur fararstjóri skipuleggja aukadagskrá á lausum kvöldstundum og frjálsum dögum (og þá á kostnaðarverði).
Flugtafla:
| Útflug: | Brottför | Koma | ||||
| 16.okt | FI 212 | Keflavík | 13:15 | Kastrup | 16.okt | 18:15 |
| 16.okt | SK 995 | Kastrup | 21:00 | Peking | 16.okt | 11:55 |
| Heimflug: | ||||||
| 31.okt | SK 998 | Shanghai | 14:25 | Kastrup | 31.okt | 18:45 |
| 31.okt | FI 213 | Kastrup | 20:10 | Keflavik | 31.okt | 22:20 |
Þri. 16. okt. - Brottför frá Keflavík með millilendingu í Kaupmannahöfn
Fim. 29. mars - Lent í Peking
Eftir lendingu á flugvellinum í höfuðborg Kína er farið með rútu inní borgina, en við dveljum í fimm nætur á Beijing International Hotel, fimm stjörnu hótel sem er staðsett miðsvæðis í borginni.
Fös. 30. mars - Forðboðna borgin (M/H/K)
Eftir morgunverð á hótelinu er haldið að miðdepil borgararinnar, þar sem við röltum um á Torgi hins himneska friðar (Tiananmen torg), stærsta borgartorg sinnar tegundar í heiminum. Leiðin liggur svo norðan við torgið í gegnum gömlu keisarahöllina, Forðboðnu borgina svo kölluðu. Þar bjuggu keisarar Kínaveldis í gegnum aldirnar áður en keisaratímabilið endaði með PuYi litla (sjá bíómyndina Síðasti keisarinn). Eftir hallarheimsóknina fáum við okkur kínverskan hádegismat á leiðinni í Himnahofið (Temple of Heaven). Að því loknu höldum við aftur upp á hótel. Kvöldverður á veitingastað í borginni.
Lau. 31. mars - Múrinn í Kína (M/H)
Mao formaður sagði eitt sinn að „engin sé sönn hetja, nema að hafa klifið á múrinn mikla." Í dag verðum við öll að hetjum, því dagurinn í dag bíður upp á leiðangur til norðurs upp á eitt af helstu undrum veraldar. Á leiðinni þangað heimsækjum við grafhýsi YongLe, eins frægasta keisara Ming-tímabilsins og fáum okkur svo hádegisverð. Við fáum góðan tíma til að rölta um á múrnum áður en við höldum af stað aftur inn í borgina - og förum fram hjá ólympíuleikvanginum „Hreiðrinu", fyrir þá sem vilja taka myndir af því mannvirki. Svo verður haldið aftur upp á hótel og frjáls tími tekur við.
Sun. 1. apríl - Sumarhöllin (M/H/K)
Í dag byrjum við á því að heimsækja s.k. Hutong-svæði, en þar upplifum við gömlu borgarstemninguna á rickshaw-hjólum áður en við gæðum okkur á hádegisverði. Að því loknu heimsækjum við Lama-hofið (Yonghegong) sem er eitt stærsta og mikilvægasta hof tíbeska búddismans í heiminum. Sumarbústaður keisaranna, Sumarhöllin, er svo næst á dagskrá, en þar gefst m.a. tækifæri til að sigla um á Kunming-vatni þar sem marmarabátur keisaraynjunnar CiXi er að finna. Leiðin liggur svo aftur upp á hótel, en um kvöldið gæðum við á ekta peking-önd á veitingastað í borginni.
Mán. 2. apríl - Frjáls verslun (M)
Frjáls dagur í borginni. Fararstjóri mun lóðsa áhugasama um helstu og vinsælustu verslunarstaði borgarinnar.
Þri. 3. apríl - Farið til Xi'an (M/K)
Eftir morgunmat á hótelinu er farið út á flugvöll, en í dag verður flogið í vesturátt til Xi'an. Næstu tvær nætur verður dvalið á Grand Noble Hotel (fimm stjörnur).
Kvöldverður verður s.k. „Dumpling dinner" á kínverskum veitingastað.
Mið. 4. apríl - Leirherinn (M/H)
Einstakur fornleifafundur er heimsóttur í dag, leirherinn fyrir utan Xi'an, sem vernda átti fyrsta keisarann í Kína, Qin, í eftirlífinu. Einnig verður helsta forminjasafn héraðsins (Shanxi Historical Museum) heimsótt í dag. Í leiðinni er boðið upp á hádegisverð og einnig staldrað við í viðurkenndri minjagripaverslun. Frjáls tími um kvöldið.
Fim. 5. apríl - Hof og borgarmúrinn (M/H/K)
Frægt búddistahof sem kennt er við vilta gæs sem féll til jarðar á þeim stað sem hofið er að finna (Big Wild Goose Pagoda) er sótt heim áður en haldið er inn í miðborg Xi'an þar sem klifið verður upp á gamla borgarmúrinn. Við fáum okkur saman hádegismat áður en haldið verður út á flugvöll og flogið suður til Guilin. Þegar þangað er komið mætir okkur ótrúleg náttúra með sykurtoppafjöllum úr kalksteini allt í í kring, en landslagið minnir helst á gömul kínversk málverk. Í Guilin dveljum við á fimm stjörnu hóteli (Lijing Waterfall Hotel) inn í miðjum bænum og er hótelið m.a. þekkt fyrir að bjóða upp á stærsta manngerða foss í heimi sem streymir niður síðu hótelsins hvert kvöld. Kvöldverður á hóteli.
Fös. 6. apríl - Sigling niður Li-ánna til Yangshuo (M/H)
Eftir morgunmat á hótelinu förum við um borð í bát sem siglir með okkur niður Li-ánna til þorps sem nefnist Yangshuo, en á leiðinni sjáum við einn merkasta þjóðgarð Kína þar sem m.a. vatnavísundar og skarfar spóka sig í ánni með víðfrægum og fallegum fjöllum í bakgrunni. Borðað verður um borð í bátnum, sem kemur í höfn til Yangshuo upp úr hádegi. Að ferðinni lokinni tekur við frjáls tími í bænum. (En þeir sem vilja kaupa sér aðgang að ódýru námskeiði í kínverskri matargerð í Yangshuo geta fylgt fararstjóra.) Rúta flytur okkur svo aftur til Guilin, en stoppað verður á leiðinni þannig til að bjóða upp á tækifæri til að rölta aðeins um hrísgrjónaakra. Frjáls tími í Guilin um kvöldið.
Lau. 7. apríl - Reyrflautuhellir og Fjall sem er eins og fíll (M/H/K)
Hellir sem bjargaði lífi mörgþúsund Guilin-búa í seinni heimstyrjöldinni er heimsóttur eftir morgunmatinn, en um er að ræða fagran og upplýstan dropasteinshelli. Perluverslun er heimsótt á leiðinni aftur í bæinn, en svo skoðum við hól úr kalksteini sem minnir á fíl að drekka vatn úr ánni (Elephant Trunk Hill). Að þeirri heimsókn lokinni tekur við frjáls tími, en í lok dags er boðið upp á kvöldverð á kínverskum veitingastað.
Sun. 8. apríl - Flogið til Shanghai (M/H)
Í dag liggur leiðin norðaustur til Shanghai, þar sem er eitt viðamesta fjármálasvæði þjóðarinnar er að finna. Borgin er talin endurspegla framtíð þjóðarinnar, en þó má enn gæta áhrifa Evrópuríkja sem áður höfðu yfirráð svæða innan borgarinnar. Eftir lendingu á nýlegum flugvelli borgarinnar heimsækjum við eitt frægasta svæði Shanghai, verslunargötuna Nanjing-stræti og Bund-svæðið. Þaðan er hægt að njóta útsýnis yfir Pu-ánna að nýja Pudong-hluta borgarinnar, en stærstu skýjakljúfar Kína eru þar að finna. Við gistum svo á fimm stjörnu hóteli sem kallast Shanghai Ramada Plaza Gateway.
Mán. 9. apríl - Gamla Shanghai (M/H/K)
Gamla Shanghai er í brennideplií dag, en við heimsækjum búddistahof sem kennt er við stórt líkneski úr jaði (Jade Buddha Temple) áður en leiðin liggur að Yu Yuan-garðinum sem var í eigu aðalsættar sem bjó í borginni. Í kringum garðinn er svo að finna líflegan, gamlan markað með ýmis konar verslunum, en þar verður boðið upp á frjálsan tíma (og einnig heimsókn í tehús fyrir áhugasama). Eftir hádegismatinn heimsækjum við svo helsta minjasafn borgarinnar (Shanghai Museum) áður en leiðin liggur aftur upp á hótel. Um kvöldið er svo boðið upp á kvöldverð og sýningu.
Þri. 10. apríl - Frjáls dagur í borginni (M)
Fararstjóri mun skipuleggja aukaferð fyrir áhugasama.
Mið. 11. apríl - Heimferð þar sem lent verður á Íslandi samdægurs (M)
Eftir morgunmatinn höldum við út á flugvöll, en í dag liggur leiðin heim til Íslands með millilendingu í Kaupmannahöfn.
Tvíbýli:
453.200 kr.* og 15.000 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta: 463.200 kr.
Einbýli:
517.900 kr.* og 15.000 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta: 527.900 kr.
M= morgunverður
H= hádegisverður
K= kvöldverður
Gisting:
5 nætur á 5* Bejiing International Hotel 29. mars - 3. apr.
2 nætur á 5* Grand Noble Hotel 3. - 5. apr.
3 nætur á 5* Lijing Waterfall Hotel 5. - 8. apr.
3 nætur á 5* Shanghai Ramada Plaza Gateway 8. - 11. apr.
Ekki innifalið:
Vegabréfsáritun
Þjórfé (reiknað með 10.000 krónum á mann)
Drykkir