Beint í leiðarkerfi vefsins.
Fararstjóri: Sigmundur M. Andrésson
Orlando og Fort Lauderdale - USA, Cartagena - Kólumbíu, Colon - Panama, Sigling eftir Panama skurðinum, Puntarenas - Kosta Ríka, Puerto Quetzal - Gvatemala, Puerto Vallarta og Cabo San Lucas - Mexíkó, San Diego - USA.
Ævintýrið hefst með beinu flugi til Orlando þann 5. október þar sem gist er í þrjár nætur. Þaðan hefst sigling um Karíbahaf og stefnan tekin á Suður-Ameríku. Eftir stopp í Cartagena í Kólumbíu er siglt að Panamaskurðinu og komið við í Colon áður en sigling um Panama skurðinn, verkfræðiundrið mikla, verður að veruleika. Næstu áfangastaðir eru einnig í Mið-Ameríku og er komið við bæði í Kosta Ríka og Gvatemala áður en siglt er til Mexíkó og ferðamannaperlurnar Puerto Vallarta og Cabo San Luca eru heimsóttar.
Síðsti áfangastaðurinn er San Diego, en þar leggst skipið að bryggju.
Siglingin tekur 15 nætur og eftir komu til San Diego á Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna er farið í stutta ferð um miðborgina. Síðan er ekið til Los Angeles ( liðlega 2ja klst. akstur) ,dvalið á hóteli nálægt Hollywood í tvær nætur og farin dagsferð um kvikmyndaborgina. Flogið til Íslands 25. október , millilent í Seattle og lent í Keflavík snemma næsta morgun.
Flugtafla:
| Útflug: | Brottför | Koma | Flugtími | ||||
| 05. okt. | FI 689 | Keflavík | 17:10 | Orlando | 05.okt. | 20:55 | 07:10 |
| Heimflug: | |||||||
| 25.okt. | AS 453 | Los Angeles | 10:30 | Seattle | 25.okt. | 13:20 | |
| 25.okt. | FI 680 | Seattle | 16:30 | Keflavík | 26.okt. | 06:45 | 07:15 |
Skoðurnarferðir frá skipshliði:
Fjöldi skoðunarferða er í boði á öllum áfangastöðum skipsins. Valin hefur verið ein ferð á hverjum áfangastað þar sem Sigmundur fararstjóri verður með í för. Áhersla er lögð á að hafa þessar ferðir fjölbreyttar, en einnig bent á að hver getur bókað ferð að eigin vali - eða notið hvers áfangastaðar án þess að fara í skoðunarferð.
| Höfn | Koma | Brottför | |
| 08. okt. | Fort Lauderdale, Florida | 17:00 | |
| 09. og 10. okt. | Á siglingu | ||
| 11. okt. | Cartagena, Kólumbía | 07:00 | 15:00 |
| 12. okt. | Colon, Panama | 09:00 | 19:00 |
| 13. okt. | Sigling um Panama skurðinn | ||
| 14. okt. | Á siglingu | ||
| 15. okt. | Puntarenas, Kosta Ríka | 07:00 | 19:00 |
| 16. okt. | Á siglingu | ||
| 17. okt. | Puerto Quetzal, Gvatemala | 07:00 | 18:00 |
| 18. og 19. okt. | Á siglingu | ||
| 20. okt. | Puerto Vallarta, Mexíkó | 07:00 | 15:00 |
| 21. okt. | Cabo San Lucas, Mexíkó | 07:00 | 15:00 |
| 22. okt. | Á siglingu | ||
| 23. okt. | San Diego, Kalifornia | 07:00 |
Dagskrá og ferðatilhögun:
Föstudagur 5.október: Keflavík - Orlando
Flogið frá Keflavík til Orlando í Bandaríkjunum. Við komu þangað er farþegum ekið á hótel Best Western Lake Buena Vista, þar sem gist verður í þrjár nætur.
Laugardagur 6. og sunnudagur 7. október. Orlando /Lake Buena Vista
Dagskráin verður leikin af fingrum fram, en allavega farið einu sinni saman út að borða. Annars er af nógu að taka í sólarríkinu og stutt að fara í Disney garðarðana, í Sea-World og á fleiri staði.
Mánudagur 8.október: Orlando - Fort Lauderdale - Siglt af stað
Ekið frá Orlando til Fort Lauderdale og tekur aksturinn um fjórar klukkustundir með stoppi. Komið á áfangastað um kl. 13:00. Innritun í skipið er á hafnarbakkanum og síðan er farið um orð í Celebrity Infinity og upplagt að byrja á góðum hádegisverði.
Þriðjudagur 9. og miðvikudagur 10.október Sigling um Karíbahaf
Siglt frá Flórdída og stefnan tekin á Kólumbíu í Suður Ameríku.
Fimmtudagur 11. október Cartagena, Kólumbíu
Komið eldsnemma að morgni til þessarar merku borgar og siglt aftur út kl. 15:00. Risavaxinn veggur og virki umlykja borgina en þau eru á heimsminjaskrá UNESCO. Það er margt að sjá í borginni en þar er iðandi mannlíf, söfn, gallerí og skemmtileg matar- og drykkjarhefð.
Föstudagur 12. október Colon, Panama
Þegar Columbus fyrst lenti á ströndum Panama árið 1502 að hann var svo hrifinn af hinu ótrúlega gullforða sem hann sá hjá innfæddum, aðhann skrifaði í dagbók sína: "Í þessu landi Veragua sá ég meira gull á fyrstu tveimur dögum sem ég sá á fjórum árum á Hispaniola.
Sem önnur stærsta tollfrjálsan höfn í heimi, er hægt að kaupa ýmislegt í Colón. Þangað er líka áhugavert að koma fyrir þá sem hafa áhuga á skógum, vistfræði og umhverfinu almennt, en þar eru bæði hinn mikli þjóðgarður Chagres National Park og Gamboa regskógurinn sem sem liggur innan Soberaniaþjóðgarðsins.
Laugardagur 13. október; Sigling um Panama skurðinn
Ein mesta bylting siglingasögunnar er Panama skurðurinn sem tengir saman Atlantshaf og Kyrrahaf. Fyrst var reynt að grafa skurðinn á síðari hluta 19.aldar en eftir að um 22 þúsund manns höfðu látist við framkvæmdirnar var beðið eftir betri tækni.
Skurðurinn opnaði loks árið 1914, en 5600 manns létust við síðari hluta verksins. Hann stytti siglingaleiðina frá New York til San Fransisco úr 22.500 km í 9.500 km. Byltingin var algjör. Það er ferðin í gegnum hann líka, skipið rís 25 metra í sérstökum lyftum og ný ævintýri bíða handan hafsins.
Sunnudagur, 14. október: Á siglingu.
Siglt um Kyrrahafið í átt að Kosta Ríka
Mánudagur 15. október: Puntarenas, Kosta Ríka
Komið eldsnemma til þessa skemmtilegar bæjar í Nicoya flóanum þar sem náttúrufegurð er einstök. Ein besta strönd Mið-Ameríku til brimbrettaiðkunar og þá er dýralífið ótrúlegt, allt frá spriklanði fiski við ströndina til Jagúar dýrsins sem heimamenn kalla El Tigre. Allir verða að smakka rétt borgarinnar ceviche de corvine, sem er nýveiddur fiskur marineraður í lime-safa, lauk, paprika og heimalöguðu kryddi. Einkar ljúffengur matur.
Þriðjudagur 16. október - Á siglingu
Miðvikudagur 17. október Puerto Quetzalo, Gvatemala
Puerto Quetzal er stærsta höfnin á Kyrrahafsströnd Gvatemala, en skammt frá borginni er stöðuvatnið Atitlan, sem er dýpsta stöðuvatn í Mið-Ameríku, umkringt þremur eldfjöllum. Daginn er t.d. hægt að nota til að heimsækja gömlu nýlenduborgarina Antiqua sem er á heimsminjaskrá UNESCO.
Fimmtudagur 18. föstudagur 19. október: Sigling um Kyrrahaf
Lífsins notið um borð á meðan skipið ber okkur að ströndum Mexíkó.
Laugardagur 20. október Puerto Quetzalo, Gvatemala
Heillandi strandbær sem hefur í áratugi verið einni vinsælasti ferðamannastaður í Mexíkó. Vingjarnlegt fólk, fallegar strendur, flottar tískubúðir auk glæsilegra golfvalla.
Sunnudagur 21.október: Cabo San Lucas, Mexíkó
Dagur í hinni fallegu borg Cabo San Lucas sem er syðst á Baja Kaliforniu-skaganum en skipið kemur þangað snemma morguns. Landslagið í kringum borgina er einkar fallegt og í kringum hana sést reglulega til hvala. Við hana er hægt að kafa, sigla á kajak og þá er fjöldi bara og veitingastaða í þessum litla en skemmtilega bæ. Hljómsveitin Van Halen opnaði veitingastað í bænum og einn meðlima hennar rekur hann í dag. Staðurinn heitir Cabo Wabo Cantina og er sá vinsælasti í bænum.
Mánudagur 22. október - Á siglingu
Þriðjudagur 23. október San Diego / Los Angeles
Komið til San Diego snemma morguns og áætlað að fara frá borði um kl. 09:00. Farin skoðunarferð um hina líflega miðborg San Diego. Farið verður m.a. um hið sögufræga hverfi Gasluktahverfi sem er að hluta lýst með gasljósum og er með göngugötur og skemmtilegt mannlíf. Einnig er farið að höfninni og ekið framhjá þekktum stöðum eins og Balboa Park, La Jolla o.fl. Síðan er ekið til Los Angeles, en aksturinn þangað tekur um tvær klukkustundir. Gist á hótel Intercontinental LA í Los Angeles í tvær nætur.
Miðvikudagur 24. október: Los Angeles/Hollywood
Tækifæri til að sjá sögustaði margra þekktra sjónvarpsþátta og kvikmynda.
Ganga í fótspor frægustu leikara sögunnar sem hafa látið greypa hadarför sín í gangstéttina við kínverska leikhúsið í Hollywood. Við Venice Beach og 3.stræti í Santa Monica eru mörg kaffihús og fjöldi flottra verslana sem eru með púlsinn á tískunni. Ekið um Olvera Street, Hollywood, Beverly Hills, Sunset Strip, Farmers Market og The Grove, Rodeo Drive og Melrose Avenue.
Stoppað er við kínverska leikhúsið, Hollywood Boulevard, Farmers Market, The GROVE og annaðhvort Venice Beach eða Santa Monica.
Áður en ferðinni lýkur er líka stoppað við Mullholland Drive, en þaðan er útsýni mikið yfir Los Angels borg og hið fræga HOLLYWOOD skilti sem allir hafa séð í kvikmyndum.
Fimmtudagurinn 25. október: Flogið til Íslands
Ekið frá hótelið á flugvöll og flogið til Íslands með millilendingu í Seattle.
Áætluð lending í Keflavík kl. 06:00 að morgni 26. október.
Verð á mann:
Miðað við tvo í ytri klefa án svala (Verðflokkur 06)
Klefar eru á Plaza þilfari:
479.200 kr.-* og 15.000 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta: 489.200 kr.-
Miðað við tvo í ytri klefa með svölum (Verðflokkur 2A)
Klefar eru á Vista þilfari:
529.800 kr.-* og 15.000 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta: 539.800 kr.-
Miðað við tvo í ytri klefa með svölum (Verðflokkur C2 - Celebrity Concierge klassi)
Klefar eru á Panorama og Sky þilfari:
557.000 kr.-* og 15.000 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta: 567.000 kr.-
Ekki innifalið:
--------------------------------------------------------------------------------
ATH. Lágmarksþátttaka í þessa ferð er 20 manns.
Við áskiljum okkur rétt til að fella ferðina niður náist sú þátttaka ekki.

Celebrity Infinity er í svokölluðum „Millennium" flokki hjá Celebrity Cruises, sem er annar hæsti klassi skipafélagsins. Innréttingar skipsins einkennast af marmara, klassískum viðarinnréttingum og gleri. Allur aðbúnaður og vistarverur bera vott um gæði og glæsileika.