Margrét Óskarsdóttir
Fararstjóri
Margrét Óskarsdóttir er fædd í Reykjavík 1951. Margrét hefur búið víða um heim, eitt ár í Montpellier í suður Frakklandi og á Mallorca eyddi hún 2 sumrum við störf fyrir ferðaskrifstofuna Sunnu árin 1974 og 75.
Hjá Arnarflug starfaði Margrét í 9 ár og eitt af þeim árum bjó hún í Amsterdam og rak skrifstofu flugfélagisins þar. í Osló í Noregi bjó Margrét í mörg ár, en á þeim árum vann hún hjá Icelandair í 9 ár og í 2 ár hjá Islandia Travel.
Þegar Margrét flutti frá Noregi til Íslands árið 1998 fór hún að starfa hjá Úrval Útsýn og þar kynntist hún fyrst Peter Salmon. Margrét fór í sína fyrstu golfferð árið 2000 en þá hafði golfáhuginn kviknað sem hefur verið erfitt að hemja síðan, golfið heltók konuna.
Margrét gekk í golfklúbbinn Kjöl í Mosfellsbæ sem tók einstaklega vel á móti henni. Síðan þá hefur Margrét eitt mörgum góðum og fallegum dögum á Hlíðavelli og keppt fyrir hönd klúbbsins í sveitakeppnum eldri kylfinga. Margrét situr í stjórn klúbbsins.
Það var svo árið 2007 sem Peter fékk Margréti til liðs við sig í golfdeild Úrvals Útsýna en 2009 flutti Peter sig yfir til VITA og stofnaði nýja golfdeild þar.