Stefán Ásgeir Guðmundsson
Fararstjóri
Stefán er kennari og leiðsögumaður og hefur unnið við fararstjórn í mörg ár, þar af fyrir VITA frá upphafi.
Stefán hefur unnið við fararstjórn í mörg ár, þar af fyrir VITA frá upphafi.
Stefán ólst upp í Reykjavík, lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1989 og fór þá til Kaliforníu í Bandaríkjunum þar sem hann lagði stund á nám í Menningarsögu Rómönsku Ameríku. Þaðan lauk hann BA-prófi árið 1995 og fluttist þá til Mexíkóborgar, þar sem hann lauk MA-prófi árið 1999 í sömu fræðum frá ríkisháskólanum UNAM. Árið 2006 lauk Stefán kennsluréttindanámi frá Háskóla Íslands.
Undanfarin ár hefur Stefán verið stundakennari við spænskudeild Háskóla Íslands, skipulagt og kennt fjölmörg menningarnámsskeið við Endurmenntun HÍ og komið fram í fjölmörgum viðtölum sem álitsgjafi um málefni Rómönsku Ameríku auk þess sem hann hefur ritað um efnið í fjölmiðlum. Í dag kennir Stefán sögu í sínum gamla skóla, MH og vinnur sem leiðsögumaður innanlands.
Stefán hefur unnið við fararstjórn í sérferðum, borgarferðum, skíðaferðum og sólarlandaferðum og má þar nefna Spán, Grikkland, Írland, Ítalíu (Róm, Napolí o.fl.) Portúgal og Kúbu. Helstu áhugamál Stefáns eru ferðalög, bókmenntir, íþróttir og allt sem viðkemur Rómönsku Ameríku og Spáni. Stefán er kvæntur og á tvo syni.