Þórir Jónsson Hraundal
Fararstjóri
Þórir hefur fengist við ýmis störf, svo sem kennslu og ritstörf.
Þórir Jónsson Hraundal er fæddur í Reykjavík 1974. Hann lagði stund á málvísindi og miðausturlandafræði á Íslandi, Spáni og Englandi og lauk nýlega doktorsnámi í sagnfræði við háskólann í Bergen. Viðfangsefni Þóris er aðallega víkingaöldin og afdrif víkinga í Eystrasaltinu og Austur-Evrópu. Auk náms og rannsókna hefur hann fengist við ýmis störf, svo sem kennslu og ritstörf margskonar. Þórir býr í Reykjavík ásamt konu sinni og þremur börnum. Hann hefur verið fararstjóri í Póllandi og fleiri stöðum.