Beint í leiðarkerfi vefsins.
VERÐ, VERÐBREYTINGAR OG SKILMÁLAR
Uppgefin verð miðast við gengi USD, EUR og eldsneytisverð þann 6.maí 2010 og geta breyst til samræmis við breytingar sem kunna að verða á eftirtöldum þáttum:
a) Flutningskostnaði, þar með talið eldsneytisverði
b) Álögum, sköttum eða sérgreiðslum fyrir tiltekna þjónustu, t.d. lendingargjöld
c) Gengisbreytingum
d) Skilmálum og viðskiptareglum greiðslukorta
VITA áskilur sér rétt til að leiðrétta villur sem kunna að leynast í bæklingum eða á vef VITA.
Athugið að einstaklingum undir 18 ára er ekki heimilt að versla þjónustu frá VITA án þess að skriflegt samþykki forráðamanns liggi fyrir hjá ferðaskrifstofunni.
BÓKUNARGJALD
Ef bókað er á söluskrifstofu VITA þá greiðist 2400 kr. bókunargjald á mann. Athugið að bókunargjöld eru óendurkræft.
BREYTINGAR
0-7 dögum frá því að bókun er gerð ( þó minnst 4 vikum fyrir brottför) er hægt að breyta bókun án endurgjalds. Eftir það er hægt að breyta bókun gegn 6500 kr. breytingagjaldi.
Ef reglur samstarfsaðila okkar ganga lengra en að ofan greinir, gildir sú regla sem gengur lengra
AFPÖNTUN OG ENDURGREIÐSLA
Ferð afpöntuð innan við 3 dögum frá pöntun og minnst 4 vikum fyrir brottför:
-Full endurgreiðsla (að frádregnu 5000 kr. þjónustugjaldi).
Ferð afpöntuð meira en 4 dögum frá pöntun en þó 4 vikum fyrir brottför eða fyrr:
- Full endurgreiðsla að 15.000 kr á mann undanskildu.
Ferð afpöntuð 15-28 dögum fyrir brottför:
- 25% af verði ferðar óendurkræft, þó aldrei lægri upphæð en 15.000 kr á mann.
Ferð afpöntuð 8-14 dögum fyrir brottför:
- 50% af verði ferðar óendurkræft, þó aldrei lægri upphæð en 15.000 kr á mann.
Ef reglur samstarfsaðila okkar ganga lengra en að ofan greinir, gildir sú regla sem gengur lengra. Endurgreitt er inná kreditkort ef greitt er með þeim.
UM NOTKUN VILDARPUNKTA
Ef upp kemur sú staða að viðskiptavinur þarf að hætta við ferð þá er hægt að fá þann hluta ferðarinnar sem greiddur var með vildarpunktum endurgreiddan í formi gjafabréfs. Ekki er hægt að innleysa Vildarpunkta gegn peningagreiðslu.
Geri ferðaskrifstofan breytingar á ferð áður en hún hefst skal tilkynna það farþega svo fljótt sem unnt er. Sé um verulega breytingu að ræða ber farþega að tilkynna ferðaskrifstofunni eins fljótt og unnt er hvort hann óski eftir að rifta samningnum eða gera viðbótasamning.
Ferðaskrifstofunni er heimilt að aflýsa ferð, ef í ljós kemur að þátttaka er ekki næg. Í leiguflugi miðast lágmarksþátttaka við að a.m.k. 65% nýting sé í viðkomandi flugvél, bæði á út- og heimflugi. Sé nýting tiltekinnar flugleiðar á ákveðnu tímabili (flugsería) að jafnaði undir 70% er ferðaskrifstofu heimilt að fella niður öll flug á tilteknu tímabili á þeirri flugleið (flugseríu), jafnvel þó lágmarksþátttaka hafi náðst í einstaka flugi. Í sérferðum gildir að lágmarksþátttaka er 20 manns nema annað sé sérstaklega tilgreint í auglýsingum eða sölubæklingum.
FULLNAÐARGREIÐSLA OG GREIÐSLUKJÖR
Greiða þarf ferð að fullu um leið og ferð er bókuð en boðið er upp á greiðsludreifingu í samstarfi við VISA og MASTERCARD.
TRYGGINGAR
Við hvetjum viðskiptavini til að huga vel að tryggingamálum sínum áður en lagt er upp í langferð. Sé ferð greidd með greiðslukorti a.m.k. að hálfu fylgir oftast með ókeypis ferðatrygging frá greiðslukortafyrirtækjunum. Athugið að þessar tryggingar eru mjög mismunandi eftir tegund greiðslukorts. Kynnið ykkur vel skilmála hjá greiðslukortafyrirtækjunum.
Hægt er að sækja um sjúkratryggingakort hjá Tryggingastofnun ríkisins. Hægt er að fylla út umsóknareyðublað hér.
FLUGIÐ
Upplýsingar um brottfarar- og komutíma flugvéla fást í síma 50 50 500 allan sólarhringinn og í textavarpi bls. 420-421. Brottfarartímar og flugtímar eru áætlaðir og háðir breytingum vegna veðurs og af tæknilegum orsökum.
Brottför frá Íslandi: Mæting í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli er í síðasta lagi 2 klst. fyrir áætlaðan brottfarartíma, hvort sem um er að ræða almenna innritun eða flýtiinnritun. Í tengslum við allar flugferðir bjóðast rútuferðir með Kynnisferðum frá BSÍ í Reykjavík. Nánari upplýsingar er að finna hér.
FARANGUR
Flug með Icelandair: Hámarksfarangur fullorðinna og barna eldri en 2ja ára til og frá Íslandi er 20 kg á farþega. Börn yngri en 2ja ára fá 10 kg á Evrópu. Farþegum er heimilt að hafa með sér eftirfarandi handfarangur:
- Tösku, hámarksstærð 55x35x25 sm. Hámarksþyngd 6 kg.
Við mælum með því að farþegar beri fjármuni, skartgripi, mikilvæg skjöl, lyf og ferðatölvur í handfarangri. Um sérstakan farangur eins og hjól, golfsett og skíði gilda ákveðnar reglur sem áríðandi er að kynna sér vel.
Flug með Iceland Express: Hver farþegi má innrita farangur allt að 20 kg. Óheimilt er að færa farangursheimildir á milli bókana. Farþegum er heimilt að hafa með sér eftirfarandi handfarangur:
- Tösku, hámarksstærð 55x35x25 sm. Að auki máttu taka með þér handtösku, frakka eða kápu, fartölvu, myndavél og poka með vörum úr fríhöfn. Heildarþyngd handfarangurs, að öllu þessu meðtöldu, má ekki vera umfram 10 kg.
Börn undir 2ja ára aldri sem ekki hafa flugsæti hafa ekki ofangreindar farangursheimildir. Greiða þarf fyrir farangur sem er umfram ofangreind mörk og er gjaldið 1.000 ISK (8 GBP, 85 DKK, 11 EUR, 95 SEK) fyrir hvert kíló aðra leið. Fyrir sérstakan farangur svo sem golfsett reiðhjól brimbre! tti svifdreka skíðabúnað o.þ.h. greiðist sérstakt gjald 2.500 ISK (20 GBP, 200 DKK, 25 EUR, 250 SEK) Athugið að gjaldið er innheimt í gjaldmiðli brottfararstaðar hverju sinni.
Áskilinn er réttur til að hafna flutningi á farangri sem fer út fyrir skilyrði þau sem áður eru nefnd.
Tveggja manna herbergi er ýmist með tveimur einstaklingsrúmum eða hjónarúmi (breidd 135 cm - 180 cm, allt eftir hótelum). Sum hótel bjóða eingöngu aðra hvora gerð tvíbýlisherbergja. Ef viðskiptavinur óskar sérstaklega eftir annarri hvorri gerð þarf að taka það fram við bókun og mun reynt að uppfylla þá ósk.
Þriggja manna herbergi er í öllum tilfellum tveggja manna herbergi (ýmist með hjónarúmi eða tveimur rúmum) og aukarúmi fyrir þriðja mann. Aukarúmið getur verið einstaklingsrúm, svefnsófi eða færanlegt rúm ("roll away"). Þegar þriðja rúmið er komið inn, má gera ráð fyrir að fremur þröngt sé orðið í herberginu.
Fjögurra manna herbergi eru með einu hjónarúmi og tveimur aukarúmum (sbr. lýsingu á aukarúmi í þriggja manna herbergi hér að framan) eða tveimur kojum. Á gististöðum í Bandaríkjunum eru fjögurra manna herbergi með 2 hjónarúmum.
Séróskir: VITA er umboðsaðili gististaða og hefur ekki yfirráð yfir gistirými. Yfirmenn gististaðanna sjá um niðurröðun gesta í herbergi/íbúðir og starfsfólk VITA getur ekki ábyrgst að séróskum farþega sé fullnægt umfram það sem getið er um í gistilýsingum og verðlista. Séróskum farþega verður þó að sjálfsögðukomið á framfæri við gististaði.
YFIRBÓKUN HÓTELA/ÍBÚÐA
Samkvæmt starfsreglum gististaða hafa hótel og íbúðahótel leyfi til að yfirbóka gistirými til að mæta eðlilegum afföllum í pöntunum. Stundum kemur upp sú staða að gististaðir hafa ekki pláss fyrir alla þá viðskiptavini sem eiga staðfestar pantanir. Gististaðirnir eru þá skyldugir til að útvega viðskiptavinum, sem ekki fá inni, sambærilegt eða betra hótel. VITA ber ekki ábyrgð á yfirbókunum hótela, en aðstoðar farþega eftir föngum.
BÍLALEIGUR
VITA eru umboðsaðili fyrir bílaleigur, en ber ekki ábyrgð vanefndum eða mistökum slíkra fyrirtækja sem ekki hafa orðið vegna mistaka hjá VITA. Fáið upplýsingar hjá sölumönnum eða fararstjórum um lágmarksaldur ökumanns og hvaða takmarkanir eru á akstri milli landa. Athugið að leigutaki verður að hafa meðferðis kreditkort, skráð á sitt nafn og gilt ökuskírteini. Ekki er hægt að staðfesta ákveðna bílategund heldur er staðfestur flokkur.
Tegundir bíla sem eru til innan hvers flokks geta breyst með litlum fyrirvara. VITA ber ekki ábyrgð ef bíll í staðfestum bílaflokki er ekki til, það er á ábyrgð bílaleigu að leysa slíkt með því að láta leigutaka í té bíl í öðrum flokki án þess að hann beri aukakostnað. Áríðandi er að kynna sér vel hvað er innifalið í fyrirframgreiddu gjaldi fyrir bíl og hvernig tryggingamálum er háttað. Í sumum tilfellum eru í boði viðbótartryggingar sem leigutaki semur um kaup á beint við bílaleiguna og greiðir á staðnum. Áríðandi er að leigutaki viti að víða er ekki hægt að kaupa af sér alla sjálfsábyrgð, hann ber ábyrgð upp að vissri upphæð ef óhapp verður. Nauðsynlegt er því að leigutaki skoði bílinn vel þegar hann tekur við honum og láti skrá t.d. ef einhverjar rispur sjást.
VEGABRÉF OG ÁRITANIR
Gætið vel að gildistíma vegabréfsins fyrir brottför og að það sé ekki útrunnið.
Íslenskir ríkisborgarar sem ferðast til Bandaríkjanna án vegabréfsáritunar verða að framvísa tölvulesanlegu vegabréfi eftir 26. október 2004. Öll íslensk vegabréf sem gefin eru út eftir 1. júní 1999 eru tölvulesanleg.
Að öðru leyti en hér greinir gilda Lög um alferðir ( 1994 nr. 80).