Valle del Este - Spánn - Hagnýtar upplýsingar

Hagnýtar upplýsingar - Valle del Este - Spánn

ATH: Lágmarksfjöldi í ferð er 20 manns. Öll verð sem birt eru á þessari síðu eru til upplýsinga um verð á þjónustu erlendis og geta breyst án fyrirvara.

Staðsetning: Valle del Este er í Andalúsíu héraði í ca. 2 og ½ tíma akstursfjarlægt frá flugvellinum í Alicante. Tveir litlir smábæir eru í ca ½ fjarlægt frá hótelinu þeir Vera og Garrucha, mjög skemmtilegir spánskir smábæir. Almeria er í ca klukkutíma frjarlægt frá Valle del Este.

FYRIR BROTTFÖR:

Heilsa: Næsta apótek er í smábænum Garrucha. Ef kalla þarf út lækni verður viðkomandi að greiða honum beint. Vinsamlegast hafið samband við fararstjóra ef þörf er fyrir aðstoðar á heilsugæslu.

Golfvörur: Golfvörur á Íslandi geta verið ódýrari og oft er meira úrval hér heima en í "pro-shop" verslunum erlendis. Samt sem áður er hægt að kaupa mjög falleg golfföt, sem sum eru nokkurskonar "minjagripir"- merkt viðkomandi golfstað.

Handfarangur: Flugmálastjórn hefur gefið út bækling með reglum um handfarangur. Nýjustu útgáfu má nálgast hér.

Hraðbankar: Það eru hraðbankar í Carrucha. Ekki gleyma Pin-númerinu/leyninúmerinu heima! Hægt er að skipta ferðatékkum í hótelmóttöku

Internet tenging: "WI-FI" (netlaus tenging), er víða á hótelinu eins og á barnum, setustofu og veitingastað. Til að ná tengingu á herbergjum þarf að fá snúru í gestamóttöku.

Klæðnaður: Eins og gengur og gerist með velli í háum gæðaflokki þá eru reglur um klæðaburð almennt mjög strangar. Bannað er t.d. að leika í gallabuxum og íþróttabuxum (trimmbuxum,) svo og í kragalausum bolum og stuttbuxum með teygju í mittið. Hlýrar á kvenmannsbolum verða að vera a.m.k. 5 cm breiðir og fleira. Ætlast er til að kylfingar séu í viðeigandi klæðnaði. það er golfbuxum síðum eða í stuttbuxum (Bermúdasídd) í skyrtu með kraga og golfskóm. Gott er að hafa þunna peysu með á völlinn. Góð regla er að hafa ávallt regnhlíf og regnföt með í golfferðina og í golfpokanum.

Sólarvörn og flugur: Við mælum með, þegar fólk fer erlendis að spila golf, að sólarvörn og vörn gegn moskítóflugum sé með í golfsettinu. (Fæst í flestum apótekum hér heima).

Evrópska sjúkratryggingakortið: Við mælum með að menn sæki um það hjá Tryggingastofnun ríkisins og hafi meðferðis. Evrópska sjúkratryggingakortið er notað ef korthafi veikist eða slasast í öðru EES-ríki. Ríkisborgarar Íslands og annarra EES-ríkja sem eru búsettir og sjúkratryggðir hér á landi eiga rétt á að fá evrópskt sjúkratryggingakort. Evrópska sjúkratryggingakortið gildir í öllum ríkjum EES og Sviss.

EFTIR AÐ ÚT ER KOMIÐ:

Ástand golfvalla: ATH. Golfdeild VITA tekur ekki ábyrgð á ástandi golfvalla vegna framkvæmda, veðurfars eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna.

Farsímar: Bannað er á golfvöllum erlendis, eins og hér heima, að hafa farsímann opinn meðan menn eru á golfvellinum.

Golfkennsla: Hægt er að fá einkakennslu í öllum ferðum hjá Magnúsi. Tekið við bókunum í kennslu úti.

Golfkerrur og Golfbílar: Golfbíll er innifalin í golfferðunum til Valle del Este.

Golfskáli: Golfskálinn er sambyggður hótelinu og hægt að fara niður í "pro-shop" með hótellyftunni. Í næsta sal við búðina er svo afgreiðsla á golfbílum og kerrum og skápar fyrir golfsettin.

Golfvöllur: Golfvöllurinn á Valle Del Este er hannaður fyrir alla kylfinga því sumar holur eru virkilega krefjandi meðan aðrar eru léttari. Völlurinn er mjög fjölbreyttur og lítil hætta á að fá leið þrátt fyrir spilamensku dag eftir dag. Það leynast nýjar þrautir á hverjum degi til að sigrast á. Öll umgjörð vallarins er mjög falleg, gróður af hinum ýmsu tegundum og gerðum og fjöllin umlykja dalinn "Valle del Este" - Austurdal. Hringlaga teigarnir liggja hátt sem flestum kylfingum finnst mjög skemmtilegt að slá upphafshögg af.

Ótakmarkað golf: Gestir okkar geta spila ótakmarkað golf sér að kostnaðarlausu alla spiladagana ef rástímar eru lausir. Viðbótar golf við 18 holur á dag er ekki hægt að panta fyrirfram og er háð umferð á vellinum.

Spilahraði: Æskilegt er að leikið sé eftir punktafyrirkomulagi, Stabelford. Boltinn skal tekinn upp eftir að slegin hafa verið 3 til 4 högg yfir par. Það hefur enginn gaman að "slow play" í golfi og því minnum við á að halda þarf vel í við ráshópinn á undan. Vallarvörður sér líka um að slíkt sé gert á ferðum sínum um völlinn. Við bendum fólki á að hafa golfbíla/kerrur í beinni röð á næsta teig og vera ávallt tilbúið að slá þegar brautin eða flötin er auð.

Rástímar: Bókaðar eru 18 holur um kl. 09.00 flesta daga, einstaka daga má þó reikna með að byrjað sé aðeins fyrr. Fararstjóri sér um að raða í ráshópa. Tilkynningar um rástíma og ráshópa verða settar á upplýsingatöflu hótelsins á hverju kvöldi.

Forsvarsmenn golfvalla erlendis áskila sér rétt til að breyta rástímum fyrirvaralaust og ber VITAgolf enga ábyrgð á því ef það gerist.

Rásröð: Það er nauðsynlegt að láta fararstjóra vita um óskir varðandi meðspilara. Annars verður niðurröðun í hópa í öruggum höndum fararstjóra sem gerir sitt besta svo allir fái meðspilara við hæfi. Ráðgert er að halda golfmót í hverri ferð. (nánari upplýsingar úti).

Æfingasvæði: Gott æfingasvæði er við hótelið. Þar er hægt að æfa öll högg - löng, stutt, vipp, glompuhögg og pútt.

Samgöngur: Hægt er að panta leigubíl í hótelmóttökunni og einnig bílaleigubíla. Ef menn ætla í leigubíl til Garrucha eða Vera verður að panta það með góðum fyrirvara.

Út að borða: Kvöldverðarhlaðborð er á hótelinu öll kvöld og er innifalið í verði. Til tilbreytingar veita fararstjórar gjarnan upplýsingar um ýmsa veitingastaði.

Þjórfé: Ekki er skylda að gefa þjórfé. Ef menn fara á góðan veitingastað og eru ánægðir með mat og þjónustu er þumalputtareglan 5 til 10% af upphæð reiknings. Venjan er að skilja smáaur í gluggann hjá rútubílstjórunum okkar eftir ferð og gott er að gefa stúlkunum, sem þrífa herbergin, 5 til 10 evr. á viku til að fá betri þjónustu.


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar