Beint í leiðarkerfi vefsins.
ATH: Lágmarksfjöldi í ferð er 20 manns. Öll verð sem birt eru á þessari síðu eru til upplýsinga um verð á þjónustu erlendis og geta breyst án fyrirvara.
Staðsetning: Islantilla er á Spáni, í héraðinu Andalucia og rétt við landamæri Portúgals. Bærinn Lepe er um 6 km frá hótelinu, Ayamonte um 18km, Isla Cristina um 8km og Huelva um 40 km. Örstutt frá er smáþorp, La Antilla. Í Islantilla er lítill verslunarkjarni (Shopping Centre) með apóteki, skóverslun og matvöruverslun. Hótelið okkar, Islantilla Golf Resort er rúmlega kílómeter ofan við bæinn- u.þ.b. 20 mín. gangur. Í bænum er lítill verslunarkjarni og þaðan er stutt á fallega strönd. Til borgarinnar Huelva er ca. hálftíma akstur og milli Islantilla og El Rompido er 20 mín. akstur.
Heilsa: Næsta apótek er í Shopping Center. Ef kalla þarf út lækni verður viðkomandi að greiða honum beint. Heislugæsla er staðsett í Lepe og vinsamlega hafið samband við fararstjóra.
Golfvörur: Golfvörur á Íslandi geta verið ódýrari og oft er meira úrval hér heima en í "pro-shop" verslunum erlendis. Samt sem áður er hægt að kaupa mjög falleg golfföt, sem sum eru nokkurskonar "minjagripir"- merkt viðkomandi golfstað.
Farangur: Ath. farangur má vera samtals 30. kg. Það er golfsettið má vera 15 kg. og farangur 15 kg.
Handfarangur: Flugmálastjórn hefur gefið út bækling með reglum um handfarangur. Nýjustu útgáfu má nálgast hér.
Hraðbankar: Það eru 3 hraðbankar í verslunarmiðstöðinni í bænum sem er við hlið Confort Hotel. Ekki gleyma Pin-númerinu/leyninúmerinu heima!
Internet tenging: "WI-FI" (netlaus tenging), er víða á hótelinu eins og á barnum, setustofu og veitingastað. Til að ná tengingu á herbergjum þarf að fá snúru í gestamóttöku. Netið er frítt en borga þarf tryggingagjald fyrir snúru sem er afhent í gestamóttöku. 2 tölvur eru staðsettar við matsalinn. 12 min kosta ca. 1 evru.
Klæðnaður: Eins og gengur og gerist með velli í háum gæðaflokki þá eru reglur um klæðaburð almennt mjög strangar. Bannað er t.d. að leika í gallabuxum og íþróttabuxum (trimmbuxum,) svo og í kragalausum bolum og stuttbuxum með teygju í mittið. Hlýrar á kvenmannsbolum verða að vera a.m.k. 5 cm breiðir og fleira. Ætlast er til að kylfingar séu í viðeigandi klæðnaði. það er golfbuxum síðum eða í stuttbuxum (Bermúdasídd) í skyrtu með kraga og golfskóm. Gott er að hafa þunna peysu með á völlinn. Góð regla er að hafa ávallt regnhlíf og regnföt með í golfferðina og í golfpokanum.
Sólarvörn og flugur: Við mælum með, þegar fólk fer erlendis að spila golf, að sólarvörn og vörn gegn moskítóflugum sé með í golfsettinu. (Fæst í flestum apótekum hér heima).
Evrópska sjúkratryggingakortið: Við mælum með að menn sæki um það hjá Tryggingastofnun ríkisins og hafi meðferðis. Evrópska sjúkratryggingakortið er notað ef korthafi veikist eða slasast í öðru EES-ríki. Ríkisborgarar Íslands og annarra EES-ríkja sem eru búsettir og sjúkratryggðir hér á landi eiga rétt á að fá evrópskt sjúkratryggingakort. Evrópska sjúkratryggingakortið gildir í öllum ríkjum EES og Sviss.
Ástand golfvalla: ATH. Golfdeild VITA tekur ekki ábyrgð á ástandi golfvalla vegna framkvæmda, veðurfars eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna.
Farsímar: Bannað er á golfvöllum erlendis, eins og hér heima, að hafa farsímann opinn meðan menn eru á golfvellinum.
Golfkennsla: Hægt er að fá einkakennslu í öllum ferðum hjá Sigga Hafsteins, sem er PGA golfkennari. Tekið við bókunum í kennslu úti.
Golfkerrur og golfbílar: Golfbílar eru innifaldar í golfferðunum til Islantilla.
Golfskáli: Golfskálinn er fallegur og vel hannaður. Þar er skemmtilegur bar og veitingastaður sem býður upp á mat af matseðli jafnt sem smárétti. Í golfskálanum eru góðir búningsklefar með sturtu og ágætis golfverslun þar sem hægt er að kaupa nauðsynlegustu golfvörur. Auk þess er stórt, vaktað geymsluherbergi fyrir golfsettin.
Golfvöllur: Islantilla Golf Club er beint á móti hótelinu, um 30 metra frá. Þetta er mjög skemmtilegur 27 holu golfvöllur. Mikið er af trjám og runnum; hallandi og þröngar brautir og nokkrar vel staðsettar vatnshindranir eru einkennandi fyrir þennan golfvöll. Völlurinn er merktur 1-9, 10-18, og 19-27. Fyrstu níu holurnar 1-9 Azul (blár), eru taldar erfiðastar og síðan 10-18, Amarillo (gulur), en holur 19-27, Verde (grænn), eru taldar léttastar. Völlurinn er ekki langur ( holur 1-9 eru 2,741 metrar af gulum teigum) en mikill halli er á brautunum, og litlar flatir staðsettar í halla eða rétt aftan við vatnshindranir. Völlurinn er opnari á seinni holunum. Þetta er afskaplega spennandi golfvöllur sem vinnur á, því oftar sem hann er spilaður.
Ótakmarkað golf: Gestir okkar á Islantilla geta spila ótakmarkað golf sér að kostnaðarlausu alla spiladagana ef rástímar eru lausir. Viðbótar golf er ekki hægt að panta fyrirfram og er háð umferð á vellinum.
Spilahraði: Æskilegt er að leikið sé eftir punktafyrirkomulagi, Stableford. Boltinn skal tekinn upp eftir að slegin hafa verið 3 til 4 högg yfir par. Það hefur enginn gaman að "slow play" í golfi og því minnum við á að halda þarf vel í við ráshópinn á undan. Vallarvörður sér líka um að slíkt sé gert á ferðum sínum um völlinn. Við bendum fólki á að hafa golfbíla/kerrur í beinni röð á næsta teig og vera ávallt tilbúið að slá þegar brautin eða flötin er auð.
Rástímar: Bókaðar eru 18 holur daglega milli kl. 08:00 og 10.30. Fararstjóri sér um að raða í ráshópa. Tilkynningar um rástíma og ráshópa verða settar á upplýsingatöflu hótelsins á hverju kvöldi.
Forsvarsmenn golfvalla erlendis áskila sér rétt á að breyta rástímum fyrirvaralaust og ber VITAgolf enga ábyrgð á því ef það gerist.
Rásröð: Það er nauðsynlegt að láta fararstjóra vita um óskir varðandi meðspilara. Annars verður niðurröðun í hópa í öruggum höndum fararstjóra sem gerir sitt besta svo allir fái meðspilara við hæfi. Ráðgert er að halda golfmót í hverri ferð. (nánari upplýsingar úti).
Æfingasvæði: Mjög stórt og gott æfingasvæði er bak við golfskálann. Þar er hægt að æfa öll högg - löng, stutt, vipp, glompuhögg og einnig eru tvær æfinga "púttflatir" til staðar. Æfingasvæðið er mikið bókað, sérstaklega á morgnana og það borgar sig að tala við "pro-shop" og athuga stöðuna daglega til að vera viss um að fá tíma.
Samgöngur: Hægt er að panta leigubíl í hótelmóttökunni og einnig bílaleigubíla. Ef menn ætla í leigubíl til Sevilla, Huelva eða Faro verður að panta það með góðum fyrirvara.
Út að borða: Kvöldverðarhlaðborð er á hótelinu öll kvöld og er innifalið í verði. Til tilbreytingar veita fararstjórar gjarnan upplýsingar um ýmsa veitingastaði. Í Antilla, við ströndina er góður fiski- og steikarstaður. Einnig eru nokkrir mjög gjóðir veitingastaðir á verslunarmiðstöðinni í Islantilla.
Verslanir: Hægt er að finna ýmsar verslanir í miðbæ Lepe og Isla Cristina. Enn meira úrval verslana eru í göngugötum miðbæjar Ayamonte, en Huelva er stærsta borgin og þar eru flestar verslanir. Niðri við ströndina við hlið Confortel Islantilla hótelsins er verslunarmiðstöð þar sem meðal annars er matvöruverslun. Opnunartímar eru venjulega frá 09.00 -14.00 og 17.00 - 21.00 en spyrjið samt um opnunartíma þegar þið fyrst farið þangað.
Þjórfé: Ekki er skylda að gefa þjórfé. Ef menn fara á góðan veitingastað og eru ánægðir með mat og þjónustu er þumalputtareglan 5 til 10% af upphæð reiknings. Venjan er að skilja smáaur í gluggann hjá rútubílstjórunum okkar eftir ferð og gott er að gefa stúlkunum, sem þrífa herbergin, 5 til 10 evr. á viku til að fá betri þjónustu.