Matalascañas - Spánn - Hagnýtar upplýsingar

Hagnýtar upplýsingar - Matalascañas - Spánn

ATH. Lágmarksfjöldi í ferð er 20 manns. Öll verð sem birt eru á þessari síðu eru til upplýsinga um verð á þjónustu erlendis og geta breyst án fyrirvara.

Staðsetning: Hótel Tierra Mar er við Atlandshafsströnd Spánar. Frá Matalscañas eru um 75 km til El Rompido og um 120 km til Islantilla. Til landamæra-borgarinnar Huelva eru aðeins 50 km.

FYRIR BROTTFÖR:

Heilsa: Næsta apótek er í smábænum Matalascañas.  Ef kalla þarf út lækni verður viðkomandi að greiða honum beint.

Golfvörur: Golfvörur á Íslandi geta verið ódýrari og oft er meira úrval hér heima en í „pro-shop“ verslunum erlendis. Samt sem áður er hægt að kaupa mjög falleg golfföt, sem sum eru nokkurskonar „minjagripir“ - merkt viðkomandi golfstað.

Farangur: VITAgolf hefur sérreglur um golfsett.  Hver farþegi má hafa 15kg + 15kg golfsett, samtals 30kg. Sumir hafa spurt hver sé leyfileg þyngd á 2ja setta pokum. Það er ekki verið að skilgreina hvort 2 golfsett séu saman í poka svo lengi sem heildarþyngd pokans fer ekki yfir 30 kg.

Handfarangur: Flugmálastjórn hefur gefið út bækling með reglum um handfarangur. Nýjustu útgáfu má nálgast hér

Hraðbankar: Hraðbanki er í smábænum Matalscañas. Ekki gleyma Pin-númerinu/leyninúmerinu heima!

Internettenging: Það er ekki nettenging á herbergjum en það er þráðlaust nettenging á jarðhæð.

Klæðnaður: Eins og gengur og gerist með velli í háum gæðaflokki þá eru reglur um klæðaburð almennt mjög strangar. Bannað er t.d. að leika í gallabuxum og íþróttabuxum (trimmbuxum,) svo og í kragalausum bolum og stuttbuxum með teygju í mittið. Hlýrar á kvenmannsbolum verða að vera a.m.k. 5 cm breiðir og fleira. Ætlast er til að kylfingar séu í viðeigandi klæðnaði. það er golfbuxum síðum eða í stuttbuxum (Bermúdasídd) í skyrtu með kraga og golfskóm. Gott er að hafa þunna peysu með á völlinn. Góð regla er að hafa ávallt regnhlíf og regnföt með í golfferðina og í golfpokanum.

Sólarvörn og flugur: Við mælum með að sólarvörn og vörn gegn moskítóflugum sé með í golfsettinu. (Fæst í flestum apótekum hér heima).

Evrópska sjúkratryggingakortið: Við mælum með að menn sæki um það hjá Tryggingastofnun ríkisins og hafi meðferðis. Evrópska sjúkratryggingakortið er notað ef korthafi veikist eða slasast í öðru EES-ríki. Ríkisborgarar Íslands og annarra EES-ríkja sem eru búsettir og sjúkratryggðir hér á landi eiga rétt á að fá evrópskt sjúkratryggingakort. Evrópska sjúkratryggingakortið gildir í öllum ríkjum EES og Sviss.

EFTIR AÐ ÚT ER KOMIÐ:

Ástand golfvalla: ATH. Golfdeild VITA tekur ekki ábyrgð á ástandi golfvalla vegna framkvæmda, veðurfars eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna.

Farsímar: Bannað er á golfvöllum erlendis, eins og hér heima, að hafa farsímann opinn á golfvellinum.

Golfkennsla: Á Matalscañas er golfskólinn starfræktur. Hægt er að fá kennslu þar fyrir utan hjá fararstjórum sem panta þarf á staðnum.

Golfkerrur og golfbílar: Golfkerrur eru innifaldar í verði golfpakkans. Golfbíll kostar 25 evrur fyrir 18 holur.

Golfskáli: Golfskálinn er fallegur og vel hannaður. Þar er skemmtilegur bar og veitingastaður sem býður upp á mat af matseðli jafnt sem smárétti. Í golfskálanum eru góðir búningsklefar með sturtu og ágætis golfverslun þar sem hægt er að kaupa nauðsynlegustu golfvörur. Auk þess er stórt, vel vaktað geymsluherbergi fyrir golfsettin.

Golfvöllur: Þessi skemmtilegi 18 holu golfvöllur var opnaður í október 2000 og er u.þ.b. 600 m frá Tierra Mar hótelinu. Völlurinn er fremur flatur, er með vatnatorfærur á 5 holum og er nokkuð krefjandi fyrir hvaða kylfing sem er, óháð forgjöf.
Völlurinn er par 72. Af gulum teingum er völlurinn 5,876 m. af rauðum 5,390 m. og af hvítum 6.136m. Stórt æfingasvæði og nýr fallegur golfskáli gerir Donaña að góðri golfreynslu. Í golfskálanum er aðstaða til að geyma golfsettin þann tíma er dvalið er í Matalascañas.

Ótakmarkað golf: Gestir okkar á Matalascañas geta spila ótakmarkað golf sér að kostnaðarlausu alla spiladagana ef rástímar eru lausir. Viðbótar golf við 18 holur á dag er ekki hægt að panta fyrirfram og er háð umferð á vellinum.

Spilahraði: Æskilegt er að leikið sé eftir punktafyrirkomulagi, Stabelford. Boltinn skal tekinn upp eftir að slegin hafa verið 3 til 4 högg yfir par. Það hefur enginn gaman að "slow play" í golfi og því minnum við á að halda þarf vel í við ráshópinn á undan. Vallarvörður sér líka um að slíkt sé gert á ferðum sínum um völlinn. Við bendum fólki á að hafa golfbíla/kerrur í beinni röð á næsta teig og vera ávallt tilbúið að slá þegar brautin eða flötin er auð.

Rástímar: Rástímar eru bókaðir um kl: 09.30 á hverjum degi og sér fararstjóri um að raða í ráshópa.  Tilkynningar um rástíma og ráshópa verða settar á upplýsingatöflu hótelsins á hverju kvöldi.

Forsvarsmenn golfvalla erlendis áskila sér rétt á að breyta rástímum fyrirvaralaust og ber VITAgolf enga ábyrgð á því ef það gerist.

Rásröð: Það er nauðsynlegt að láta fararstjóra vita um óskir varðandi meðspilara. Annars verður niðurröðun í hópa í öruggum höndum fararstjóra sem gerir sitt besta til að allir fái meðspilara við hæfi. Ráðgert er að halda golfmót í hverri ferð. (nánari upplýsingar úti).

Æfingasvæði: Stórt og gott æfingasvæði er við hliðina á 1 teig um 200 m frá golfskálanum. Við golfskálann eru einnig tvö önnur æfingasvæði; eitt fyrir pútt og hitt fyrir vipp og glompuhögg.

Samgöngur: Hægt er að panta leigubíl í hótelmóttökunni og einnig bílaleigubíla. Ef gestir ætla í leigubíl til Sevilla, Huelva eða Faro verður að panta það með góðum fyrirvara.

Út að borða: Glæsilegt kvöldverðarhlaðborð með fyrstu flokks hráefni er innifalið öll kvöld, einnig geta fararstjórar veitt upplýsingar um veitingastaði í nágrenninu. Hálft fæði er innifalið í verði ferða. Fyrir þá sem gætu hugsað sér tilbreytingu mælum við sérstaklega með ferð á smábæinn og kúrekabæinn El Rocio.

Verslanir: Matvöruverslun er skammt frá hótelinu þar sem hægt er að fá vatn og ýmsa smávöru. Í bænum Matalascañas er Apótek og orfáar aðrar verslanir. Enn meira úrval verslana eru í göngugötum miðbæjar Huelva, en Huelva er stærsta borgin og þar eru flestar verslanir. Opnunartímar eru venjulega frá 09.00 -14.00 og 17.00 - 21.00 en spyrjið samt um opnunartíma hjá starfsfólki hótelmóttöku áður en haldið er af stað.

Þjórfé: Ekki er skylda að gefa þjórfé. Ef menn fara á góðan veitingastað og eru ánægðir með mat og þjónustu er þumalputtareglan 5 til 10% af upphæð reiknings. Venjan er að skilja smáaur eftir við gluggann hjá rútubílstjórunum okkar eftir ferð og gott er að gefa stúlkunum, sem þrífa herbergin, 5 til 10 evr. á viku til að fá betri þjónustu - en ekkert af þessu er skylda. Best er að gefa herbergisþernunum þjórfé strax til að fá góða þjónustu.


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar