Gloria - Tyrkland - Hagnýtar upplýsingar

Hagnýtar upplýsingar - Gloria - Tyrkland

ATH: Lágmarksfjöldi í ferð er 20 manns. Öll verð sem birt eru á þessari síðu eru til upplýsinga um verð á þjónustu erlendis og geta breyst án fyrirvara.

Staðsetning: Belek er skógi vaxin strandlengja á suðurströnd Tyrklands, um 35 km. frá Antalya flugvelli og um 45 km. frá hinum líflega strandbæ, Antalya. Ofan við Belekströndina er lítið ferðamannaþorp sem heitir Belek Village. Hér má sjá góðar upplýsingar um Belek og alla golfvellina.

Fyrir brottför:

Heilsa: Leitið upplýsinga á næstu heilsuverndarstöð til að finna út hvort einhverjar ónæmisvarinir eru nauðsynlegar áður en farið er til Tyrklands. Næsta apótek er í Belek. Ef kalla þarf út lækni verður viðkomandi að greiða honum beint.

Golfvörur: Golfvörur á Íslandi geta verið ódýrari og oft er meira úrval hér heima en í "pro-shop" verslunum erlendis. Samt sem áður er hægt að kaupa mjög falleg golfföt, sem sum eru nokkurskonar "minjagripir"- merkt viðkomandi golfstað.

Farangur: Ath. farangur má vera samtals 30. kg. Það er golfsettið má vera 15 kg. og farangur 15 kg.

Handfarangur: Flugmálastjórn hefur gefið út bækling með reglum um handfarangur. Nýjustu útgáfu má nálgast hér.

Hraðbankar: Hægt er að greiða flest allt með kreditkorti, þó ekki leigubíla. Það er hraðbanki í Belek Village og margir hraðbankar í Antalya. Ekki gleyma Pin-númerinu/leyninúmerinu heima! Gjaldmiðillinn heitir tyrknesk lír. Víða er hægt að greiða með evrum.

Internet tenging: Nettenging er á herbergjum og í anddyri hótelsins. Aðgangur að tölvum er í business-center.

Klæðnaður: Eins og gengur og gerist með velli í háum gæðaflokki þá eru reglur um klæðaburð almennt mjög strangar. Bannað er t.d. að leika í gallabuxum og íþróttabuxum (trimmbuxum,) svo og í kragalausum bolum og stuttbuxum með teygju í mittið. Hlýrar á kvenmannsbolum verða að vera a.m.k. 5 cm breiðir og fleira. Ætlast er til að kylfingar séu í viðeigandi klæðnaði. það er golfbuxum síðum eða í stuttbuxum (Bermúdasídd) í skyrtu með kraga og golfskóm. Gott er að hafa þunna peysu með á völlinn. Góð regla er að hafa ávallt regnhlíf og regnföt með í golfferðina og í golfpokanum.

Sólarvörn og flugur: Við mælum með, þegar fólk fer erlendis að spila golf, að sólarvörn og vörn gegn moskítóflugum sé með í golfsettinu. (Fæst í flestum apótekum hér heima).

Evrópska sjúkratryggingakortið: Við mælum með að menn sæki um það hjá Tryggingastofnun ríkisins og hafi meðferðis. Evrópska sjúkratryggingakortið er notað ef korthafi veikist eða slasast í öðru EES-ríki. Ríkisborgarar Íslands og annarra EES-ríkja sem eru búsettir og sjúkratryggðir hér á landi eiga rétt á að fá evrópskt sjúkratryggingakort. Evrópska sjúkratryggingakortið gildir í öllum ríkjum EES og Sviss.

EFTIR AÐ ÚT ER KOMIÐ:


Ástand golfvalla: ATH. Golfdeild VITA tekur ekki ábyrgð á ástandi golfvalla vegna framkvæmda, veðurfars eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna.

Farsímar: Bannað er á golfvöllum erlendis, eins og hér heima, að hafa farsímann opinn meðan menn eru á golfvellinum.

Golfkennsla: Hægt er að fá einkakennslu hjá okkar golfleiðbeinendum.

Golfkerrur/Golfbílar: Golfkerra kosta 3 evrur á dag. Hægt er að leigja golfbíla sem kostar 30 evrur fyrir 18 holur. Vellirnir eru auðveldir í göngu.

Golfskáli: Golfskálinn er stór og glæsilegur, vel hannaður með rúmgóðum búningsklefum. Í boði er fjölbreyttur matseðill og er hægt er að borða bæði inni eða úti á glæsilegri verönd og einnig er þar stór "pro-shop" með miklu úrvali af golfvörum.

Golfvellir: það er um það bil 3-4 mín. akstur frá öllum Gloria hótelunum á golfvellina. Hótelbíll ekur reglulega á milli hótelsins og golfskálans. Gloria vellirnir eru 45 holu vellir, 18 holur á "Old Course" , 18 holur á "New Course" og 9 holur á Verde vellinum. Sama klúbbhúsið er notað fyrir alla vellina.

"Old Course" var opnaður 1997 og er mjög fallegur furu skógarvöllur. Hann er staðsettur við Belek ströndina en þaðan er fallegt útsýni yfir á hinn fallega Taurus fjallgarð.

"New Course" var opnaður í nóv. 2005 og er alveg frábær golfvöllur, hann er fallegur, fjölbreyttur, krefjandi og ekki síst mjög skemmtilegur. Nýi völlurinn er svolítið sérstakur hvað landslagið varðar. Sumstaðar er eins og að spila ekta skógarvöll á Englandi og annars staðar er líkt og maður sé komin til Florida, svo fjölbreytt er það.

Hinn 9 holu Verde völlur er einnig mjög góður og fallegur skógarvöllur og er upplagður fyrir þá sem e.t.v. vilja spila aukagolf.

Í nágrenni við Belek eru 15 nýjir golfvellir, hver öðrum glæsilegri. Upplagt að skella sér á einn þeirra á frídegi.

Forgjafakort New course Skorkort New course

Forgjafakort Old course Skorkort Old course

Ótakmarkað golf: Gestir okkar geta spila ótakmarkað golf sér að kostnaðarlausu alla spiladagana ef rástímar eru lausir, (umferð getur verið mikil á völlunum og í einstaka tilfellum eru rástímar ekki lausir fyrr en um kl. 16:00). Viðbótar golf er ekki hægt að panta fyrirfram og er háð umferð á vellinum.

Spilahraði: Æskilegt er að leikið sé eftir punktafyrirkomulagi, Stableford. Boltinn skal tekinn upp eftir að slegin hafa verið 3 til 4 högg yfir par. Það hefur enginn gaman að "slow play" í golfi og því minnum við á að halda þarf vel í við ráshópinn á undan. Vallarvörður sér líka um að slíkt sé gert á ferðum sínum um völlinn. Við bendum fólki á að hafa golfbíla/kerrur í beinni röð á næsta teig og vera ávallt tilbúið að slá þegar brautin eða flötin er auð.

Rástímar: Bókaðar eru 18 holur um kl.07.00 til 09:00 flesta daga, einstaka daga má þó reikna með að byrjað sé seinna. Fararstjóri sér um að raða í ráshópa. Tilkynningar um rástíma og ráshópa verða settar á upplýsingatöflu hótelsins á hverju kvöldi.

19. okt. Verde/Old Course
11:39 
20. okt. Verde/Old Course 12:15
21. okt. Old Course 
07:27
22. okt. Old Course 
08:12
23. okt New Course 
07:09
24. okt Mánudagur
Frídagur
25. okt Verde 
08:12 
26. okt. Old Course
08:03
27. okt. New Course
07:09
28. okt.Verde/Old Course
11:12
29. okt. New Course
07:54

Forsvarsmenn golfvalla erlendis áskila sér rétt á að breyta rástímum fyrirvaralaust og ber VITAgolf enga ábyrgð á því ef það gerist.

Rásröð: Það er nauðsynlegt að láta fararstjóra vita um óskir varðandi meðspilara. Annars verður niðurröðun í hópa í öruggum höndum fararstjóra sem gerir sitt besta svo allir fái meðspilara við hæfi. Ráðgert er að halda golfmót í hverri ferð. (nánari upplýsingar úti).

Æfingasvæði: Mjög gott æfingasvæði er við vellina þar sem hægt er að æfa sveifluna, púttin, vippin og glompuhöggin.

Samgöngur: Hægt er að panta leigubíl í hótelmóttökunni og einnig bílaleigubíla. Ef menn ætla í leigubíl til Antalya verður að panta það með góðum fyrirvara.

Út að borða: Kvöldverðarhlaðborð á hótelinu er innifalið öll kvöldin. Fararstjórar veita farþegum upplýsingar um ýmsa veitingastaði sem íslenskir kylfingar mæla með.

Verslanir: Verðlag í Tyrklandi er mjög hagstætt og hægt að gera góð kaup í fatnaði, skóm og tyrkneskum teppum auk minjagripa. Mesta úrval verslana er í Antalya og má finna þar allt milli himins og jarðar. Verslanir í Belek Village eru meira ferðamannaverslanir.

Þjórfé:
Í Tyrklandi er almenn venja að gefa þjórfé. Ef menn fara á góðan veitingastað og eru ánægðir með mat og þjónustu er puttareglan 5 til 10% af upphæð reiknings. Venjan er að skilja smáaur í glugganum hjá rútubílstjórunum okkar eftir ferð og gott er að gefa stúlkunum, sem þrífa herbergin, 5 til 10 evrur á viku til að fá betri þjónustu.


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar