Beint í leiðarkerfi vefsins.
Ath. Lágmarksfjöldi í ferð er 20 manns. Öll verð sem birt eru á þessari síðu eru til upplýsinga um verð á þjónustu erlendis og geta breyst án fyrirvara.
Staðsetning: Í héraðinu Andalucia á Spáni og rétt við landamæri Portúgals er íbúðagistinging Marismas Club á sama stað og 5* golfhótelið El Rompido. Um 2 km frá er smábærinn El Rompido sem stendur við fallegt lón við strönd Atlantshafssins. Nokkrir aðrir bæir eru á svæðinu, í bæinn Cartaya er um 8 km, Ayamonte um 30km, Isla Cristina um 30km og Huelva um 20 km. Svæðið umhverfis hótelin er að mestu friðland og er afar friðsælt á golfvöllunum. Milli Islantilla og El Rompido er 20 mín. akstur og hálfra stunda akstur er til borgarinnar Huelva.
Heilsa: Næsta apótek er í El Rompido en læknir er í Cartaya. Ef kalla þarf út lækni verður viðkomandi að greiða honum beint.
Golfvörur: Golfvörur á Íslandi geta verið ódýrari og oft er meira úrval hér heima en í "pro-shop" verslunum erlendis. Samt sem áður er hægt að kaupa mjög falleg golfföt, sem sum eru nokkurskonar "minjagripir"- merkt viðkomandi golfstað.
Farangur: Ath. farangur má vera samtals 30. kg. Það er golfsettið má vera 15 kg. og farangur 15 kg.Handfarangur: Flugmálastjórn hefur gefið út bækling með reglum um handfarangur. Nýjustu útgáfu má nálgast hér
Hraðbankar: Hraðbanki er í smábænum El Rompido, í götunni bak við kirkjuna við bæjartorgið. Ekki gleyma Pin-númerinu/leyninúmerinu heima!
Internettenging: Það er engin internettenging né þráðlaus tenging í Marismas byggingunni. Hins vegar er hægt að kaupa aðgang að internetinu á tölvu í hótelmóttökunni á jarðhæð.
Klæðnaður: Eins og gengur og gerist með velli í háum gæðaflokki þá eru reglur um klæðaburð almennt mjög strangar. Bannað er t.d. að leika í gallabuxum og íþróttabuxum (trimmbuxum,) svo og í kragalausum bolum og stuttbuxum með teygju í mittið. Hlýrar á kvenmannsbolum verða að vera a.m.k. 5 cm breiðir og fleira. Ætlast er til að kylfingar séu í viðeigandi klæðnaði. það er golfbuxum síðum eða í stuttbuxum (Bermúdasídd) í skyrtu með kraga og golfskóm. Gott er að hafa þunna peysu með á völlinn. Góð regla er að hafa ávallt regnhlíf og regnföt með í golfferðina og í golfpokanum.
Sólarvörn og flugur: Við mælum með, þegar fólk fer erlendis að spila golf, að sólarvörn og vörn gegn moskítóflugum sé með í golfsettinu. (Fæst í flestum apótekum hér heima).
Evrópska sjúkratryggingakortið: Við mælum með að menn sæki um það hjá Tryggingastofnun ríkisins og hafi meðferðis. Evrópska sjúkratryggingakortið er notað ef korthafi veikist eða slasast í öðru EES-ríki. Ríkisborgarar Íslands og annarra EES-ríkja sem eru búsettir og sjúkratryggðir hér á landi eiga rétt á að fá evrópskt sjúkratryggingakort. Evrópska sjúkratryggingakortið gildir í öllum ríkjum EES og Sviss.
Ástand golfvalla: ATH. Golfdeild VITA tekur ekki ábyrgð á ástandi golfvalla vegna framkvæmda, veðurfars eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna.
Farsímar: Bannað er á golfvöllum erlendis, eins og hér heima, að hafa farsímann opinn meðan menn eru á golfvellinum.
Golfkennsla: Hægt er að fá einakennslu hjá Einari Lyng í öllum ferðum. Tekið við bókunum í kennslu úti.
Golfkerrur og golfbílar: Golfkerra er innifalin í golfferðunum til El Rompido fyrir þá sem gista í Marismas íbúðagistingu. ATH: Takmarkað magn er af golfbílum á El Rompido. Við mælum með að þeir sem vilja tryggja sér golfbíl allan tímann bóki bílinn um leið og þeir bóka ferðina. Golfbíll bókaður alla ferðina kostar 6.000 kr. á dag (ótakmarkað - sjá bókunarvél).
Golfbíll á staðnum kostar 34€ 18 holur auka 9 holur 10.40€. ATH! Þeir sem vilja taka bíl einn og einn dag geta lent í því að bílar séu ekki til.
Golfskáli: Golfskálinn er mjög nýtískulegur, bjartur og skemmtilega hannaður. Þar er bar og veitingastaður sem býður upp á mat af matseðli jafnt sem smárétti. Upplagt að setjast út áveröndina og njóta útsýnisins. Í golfskálanum eru góðir búningsklefar með sturtu og golfverslun sem býður fallegt úrval fatnaðar auk þess sem þar er hægt er að kaupa nauðsynlegustu golfvörur. Niðri er vaktað geymsluherbergi fyrir golfsettin.
Golfvöllur: Á El Rompido eru tveir 18 holu vellir, norður og suður. Suðurvöllurinn opnaði 1.okt. 2003. Þetta er bráðskemmtilegur völlur. Fyrri níu holurnar eru opnar og þægilegar (styttri) en seinni níu eru þungar krefjandi brautir. Völlurinn er tiltölulega léttur til gangs og er ekki mjög hæðóttur. Í kringum fyrri 9 holurnar á Suðurvellinum er nokkuð af furutrjám en seinni 9 eru opnari og minna af trjám. Suðurvöllurinn er par 72 og er 5,834m. af gulum, 5,192m. af rauðum og 6,148m. af hvítum. Nýi völlurinn (norður) opnaði 1.júní 2006. Þetta er líka mjög skemmtilegur völlur en er meira hæðóttur en suðurvöllurinn. Fyrstu sjö brautirnar eru frekar opnar svo breytist völlurinn meira í skógarvöll og eru margar mjög spennandi brautir. Norðurvöllurinn er par 72 og 5,910 m. af gulum, 5,127 m. af rauðum og 6,095 m. af hvítum. hefur fjölbreytt landslag og tré án þess að vera svo lokaður. Þess má geta að engar byggingar aðrar en hótelið eru nálægt þessum tveimur völlum og er ótrúleg upplifun að spila golf á svona stóru svæði í óspilltri náttúrunni. Svona byggingarlaus svæði í kringum golfvelli er mjög sjaldséð í heiminum í dag.
Ótakmarkað golf: Gestir okkar á El Rompido geta spila ótakmarkað golf sér að kostnaðarlausu alla spiladagana ef rástímar eru lausir. Viðbótar golf er ekki hægt að panta fyrirfram og er háð umferð á vellinum.
Spilahraði: Æskilegt er að leikið sé eftir punktafyrirkomulagi, Stabelford. Boltinn skal tekinn upp eftir að slegin hafa verið 3 til 4 högg yfir par. Það hefur enginn gaman að "slow play" í golfi og því minnum við á að halda þarf vel í við ráshópinn á undan. Vallarvörður sér líka um að slíkt sé gert á ferðum sínum um völlinn. Við bendum fólki á að hafa golfbíla/kerrur í beinni röð á næsta teig og vera ávallt tilbúið að slá þegar brautin eða flötin er auð.
Rástímar: Bókaðar eru 18 holur fyrir hópana milli kl. 08:00 - 11:00 alla daga.
Ef kylfingar missa af hádegiverðarhlaðborði þá er á boðstólum á Marismas "snakk" eins og pylsur, samlokur, hamborgarar ofl.
Fararstjóri sér um að raða í ráshópa. Tilkynningar um rástíma og ráshópa verða settar á upplýsingatöflu hótelsins á hverju kvöldi. Forsvarsmenn golfvalla erlendis áskila sér rétt á að breyta rástímum fyrirvaralaust og ber VITAgolf enga ábyrgð á því ef það gerist.
Rásröð: Það er nauðsynlegt að láta fararstjóra vita um óskir varðandi meðspilara. Annars verður niðurröðun í hópa í öruggum höndum fararstjóra sem gerir sitt besta svo allir fái meðspilara við hæfi. Ráðgert er að halda golfmót í hverri ferð. (nánari upplýsingar úti).
Æfingasvæði: Það er mjög gott æfingasvæði við hlið beggja valla en æfingasvæðið við hliðina á norðurvellinum er hugsað aðallega fyrir kennsluhópa. Á almenna æfingasvæðinu við hliðina á suðurvellinum er hægt að æfa öll högg - löng, stutt, vipp, glompuhögg og einnig eru tvær æfinga "púttflatir" til staðar.
Samgöngur: Hægt er að panta leigubíl í hótelmóttökunni og einnig bílaleigubíla. Ef menn ætla í leigubíl til Sevilla, Huelva eða Faro verður að panta það með góðum fyrirvara.
Verslanir: Matvöruverslun er á svæðinu.Verið er að byggja litla verslunarmiðstöð í fiskimannabænum El Rompido. Hægt er að finna ýmsar verslanir í Cartaya sem er skemmtilegur bær stutt frá. Enn meira úrval verslana eru í göngugötum miðbæjar Huelva, en Huelva er stærsta borgin og þar eru flestar verslanir. Verðlag í þessum landshluta er mjög hagstætt. Opnunartímar eru venjulega frá 09.00 -14.00 og 17.00 - 21.00 en spyrjið samt um opnunartíma hjá starfsfólki hótelmóttöku áður en haldið er af stað.
Þjórfé: Ekki er skylda að gefa þjórfé. Ef menn fara á góðan veitingastað og eru ánægðir með mat og þjónustu er þumalputtareglan 5 til 10% af upphæð reiknings. Venjan er að skilja smáaur eftir við gluggann hjá rútubílstjórunum okkar eftir ferð og gott er að gefa stúlkunum, sem þrífa herbergin, 5 til 10 evr. á viku til að fá betri þjónustu. Best er að gefa herbergisþernunum þjórfé strax til að fá góða þjónustu.