Suður Afríka - Hagnýtar upplýsingar

Hagnýtar upplýsingar - Suður Afríka

ATH. Öll verð sem birt eru á þessari síðu eru til upplýsinga um verð á þjónustu erlendis og geta breyst án fyrirvara.

Vegabréfsáritun:
Vegabréfsáritun er ekki nauðsynleg til S.Afríku.

Handfarangur:
Flugmálastjórn hefur gefið út bækling með reglum um handfarangur (pdf).
Hjá S.African Airlines má handfarangur vega 8 kg og má ekki vera stærra en 56x23x56.

Flutningur á Golfsetti:
Ef samanlögð vigt (farangurs og golfsetts) vegur meira en farangursheimildin segir til um er fast gjald innheimt 3.900 kr. hvora leið. Félagar í Icelandair Golfers greiða ekkert gjald fyrir golfsett í áætlunarflugi með Icelandair. Með South African Airlines er golfsett sem er 20 kg. eða minna frítt.

Veðrið:
Meðalhiti á þessum árstíma, sem er hásumar á Garden Route svæðinu, er um 25-30 gráður. Það er ekki mikill raki í loftinu og altaf er smá gola frá Indlandhafinu.

Ónæmisvarnir:
Við bendum fólki á að hafa samband við næstu heilsugæslustöð eða sinn heimilislækni í tæka tíð en við teljum ólíklegt að það þurfi sérstakar ónæmisvarnir á þessu svæði.

Peningamál:
Best er að taka út pening með kreditkorti úr hraðbanka sem er aldrei lángt frá þeim stöðum sem við gistum á. Meira að segja er hraðbanki á fyrsta hótelinu. Það er líka altaf hægt að skipta evrum eða dollurum á flugvöllunum eða í banka.

Gjaldmiðillinn:
Heitir Rand (ZAR) og er gengi 15. sept. 2010. 1 rand um 17 ísl kr.

Rafmagn:
220 volt en er með 3 pinna hringloki. Hægt er að fá millistykki á hótelunum eða kaupa á flugvellinum í Jóhannesburg.

Tímabelti:
Tímamunur á milli Íslands og Suður Afrika í febrúar er 2 klst.

Farsímar:
Hægt er að nota íslenskan farsíma alls staðar í S.Afríku.

Tungumálið:
Allir tala ensku í S.Afríku.

Matur, vín og verðlagið:
Allur matur og vín í S.Afríku er í mjög háum gæðaflokki og alls ekki dýr. Hægt er að kaupa góðan mat með víni á venjulegu veitingahúsi fyrir 2-3.000 kr. á mann, aðeins hærra verðlag er á hótelum. S. Afríka er einn stærsti vín-framleiðandi heims með ótrúlegt úrval og gæðavín í heimsklassa. 

Versla:
Það er stór verslunarmiðstöð í bænum George sem er mjög nálægt fyrsta og síðasta hótelinu sem við gistum á. Alveg þess virði að heimsækja.

Kynningafundur:
Það verður kynningafundur viku eða svo fyrir brottför þar sem farið verður yfir það sem skiptir máli fyrir þessa ferð og að auki til að gefa farþegum tækifæri til að kynnast fyrir brottför.

Áhugaverða heimasíður:
Garden Route
Suður Afríka - Wikipedia

 


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar