Beint í leiðarkerfi vefsins.
ATH: Lágmarksfjöldi í ferð er 20 manns. Öll verð sem birt eru á þessari síðu eru til upplýsinga um verð á þjónustu erlendis og geta breyst án fyrirvara.
Staðsetning: Mar Menor er suður af Alicante í Murcia héraðinu. Frá Alicante flugvellinum er 106 km og tekur rétt rúmlega klukkutíma að keyra þaðan eða um 80 mín. Borgin Murica er um 30 km frá Mar Menor og Torrevieja er um 45 km frá.
Heilsa: Ef kalla þarf út lækni verður viðkomandi að greiða honum beint.
Golfvörur: Golfvörur á Íslandi geta verið ódýrari og oft er meira úrval hér heima en í "pro-shop" verslunum erlendis. Samt sem áður er hægt að kaupa mjög falleg golfföt, sem sum eru nokkurskonar "minjagripir"- merkt viðkomandi golfstað.
Handfarangur: Flugmálastjórn hefur gefið út bækling með reglum um handfarangur. Nýjustu útgáfu má nálgast hér.
Hraðbankar: Hraðbanki er við hliðina á kjörbúðinni við hótelið.
Internet tenging: "WI-FI" (netlaus tenging), fæst gegn gjaldi 12 evrur á sólarhring.
Klæðnaður: Eins og gengur og gerist með velli í háum gæðaflokki þá eru reglur um klæðaburð almennt mjög strangar. Bannað er t.d. að leika í gallabuxum og íþróttabuxum (trimmbuxum,) svo og í kragalausum bolum og stuttbuxum með teygju í mittið. Hlýrar á kvenmannsbolum verða að vera a.m.k. 5 cm breiðir og fleira. Ætlast er til að kylfingar séu í viðeigandi klæðnaði. það er golfbuxum síðum eða í stuttbuxum (Bermúdasídd) í skyrtu með kraga og golfskóm. Gott er að hafa þunna peysu með á völlinn. Góð regla er að hafa ávallt regnhlíf og regnföt með í golfferðina og í golfpokanum.
Sólarvörn og flugur: Við mælum með, þegar fólk fer erlendis að spila golf, að sólarvörn og vörn gegn moskítóflugum sé með í golfsettinu. (Fæst í flestum apótekum hér heima).
Evrópska sjúkratryggingakortið: Við mælum með að menn sæki um það hjá Tryggingastofnun ríkisins og hafi meðferðis. Evrópska sjúkratryggingakortið er notað ef korthafi veikist eða slasast í öðru EES-ríki. Ríkisborgarar Íslands og annarra EES-ríkja sem eru búsettir og sjúkratryggðir hér á landi eiga rétt á að fá evrópskt sjúkratryggingakort. Evrópska sjúkratryggingakortið gildir í öllum ríkjum EES og Sviss.
Ástand valla: ATH. Golfdeild VITA tekur ekki ábyrgð á ástandi golfvalla vegna framkvæmda, veðurfars eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna.
Farsímar: Bannað er á golfvöllum erlendis, eins og hér heima, að hafa farsímann opinn meðan menn eru á golfvellinum.
Golfkerrur og golfbílar:
Golfskáli: Er á jarðhæð á öðrum enda hótelsins. Þar er lítil golfverslun, bar og veitingastaður.
Ótakmarkað golf: Gestir okkar geta spila ótakmarkað golf sér að kostnaðarlausu alla spiladagana ef rástímar eru lausir. Viðbótar golf er ekki hægt að panta fyrirfram og er háð umferð á vellinum.
Spilahraði: Æskilegt er að leikið sé eftir punktafyrirkomulagi, Stableford. Boltinn skal tekinn upp eftir að slegin hafa verið 3 til 4 högg yfir par. Það hefur enginn gaman að "slow play" í golfi og því minnum við á að halda þarf vel í við ráshópinn á undan. Vallarvörður sér líka um að slíkt sé gert á ferðum sínum um völlinn. Við bendum fólki á að hafa golfbíla/kerrur í beinni röð á næsta teig og vera ávallt tilbúið að slá þegar brautin eða flötin er auð.
Rástímar: Í þessum ferðum er spilað á 2 golfvöllum, Man Menor við hótelið og Saurines u.þ.b. 20. mín akstur frá hótelinu.
Fimmtudagar eru komu-og brottfarardagar.
| mán. | þrið. | fim. | fös. | lau. | sun. |
| Mar Menor | Mar Menor | Mar Menor | Mar Menor | Saurines | Mar Menor |
| kl. 08:50 | kl. 08:50 | kl. 08:50 | kl. 08:50 | kl. 08:50 | kl. 08:50 |
Forsvarsmenn golfvalla erlendis áskila sér rétt á að breyta rástímum fyrirvaralaust og ber VITAgolf enga ábyrgð á því ef það gerist.
Æfingasvæði: Gott æfingasvæði er við Mar Menor völlinn.
Út að borða: Hálft fæði er innifalið í verðinu. Hægt er að fá sér miðdegisverð í klúbbhúsinu, á hótelinu, á írska barnum Cloves eða á Tapas la Tropical sem er í um 10 mín. göngufjarlægð.
Þjórfé: Ekki er skylda að gefa þjórfé. Ef menn fara á góðan veitingastað og eru ánægðir með mat og þjónustu er þumalputtareglan 5 til 10% af upphæð reiknings. Venjan er að skilja smáaur í gluggann hjá rútubílstjórunum okkar eftir ferð og gott er að gefa stúlkunum, sem þrífa herbergin, 5 til 10 evr. á viku til að fá betri þjónustu.