Eldri kylfingar - Hagnýtar upplýsingar

Hagnýtar upplýsingar - Eldri kylfingar

Ath. Lágmarksfjöldi í ferð er 20 manns. Öll verð sem birt eru á þessari síðu eru til upplýsinga um verð á þjónustu erlendis og geta breyst án fyrirvara.

Staðsetning: Salgados er í Algarve héraði í Portúgal rétt fyrir utan ferðamannabæinn Albufeira.

FYRIR BROTTFÖR:

Heilsa: Næsta apótek er í Albufeira og þar er einnig læknir. Ef kalla þarf út lækni verður viðkomandi að greiða honum beint.

Golfvörur: Golfvörur á Íslandi geta verið ódýrari og oft er meira úrval hér heima en í "pro-shop" verslunum erlendis. Samt sem áður er hægt að kaupa mjög falleg golfföt, sem sum eru nokkurskonar "minjagripir"- merkt viðkomandi golfstað.

Farangur: Ath. farangur má vera samtals 30. kg. Það er golfsettið má vera 15kg. og farangur 15kg.

Handfarangur: Flugmálastjórn hefur gefið út bækling með reglum um handfarangur. Nýjustu útgáfu má nálgast hér

Hraðbankar: Hraðbanki er í Albufeira. Ekki gleyma Pin-númerinu/leyninúmerinu heima!

Internettenging: Tenging fyrir internet er á herbergjum en nauðsynlegt er að farþegar komi með netsnúru eða fá í gestamóttöku. Þráðlaus tenging er á barnum við gestamóttökuna og í anddyri hótelsins.

Klæðnaður: Eins og gengur og gerist með velli í háum gæðaflokki þá eru reglur um klæðaburð almennt mjög strangar. Bannað er t.d. að leika í gallabuxum og íþróttabuxum (trimmbuxum,) svo og í kragalausum bolum og stuttbuxum með teygju í mittið. Hlýrar á kvenmannsbolum verða að vera a.m.k. 5 cm breiðir og fleira. Ætlast er til að kylfingar séu í viðeigandi klæðnaði. það er golfbuxum síðum eða í stuttbuxum (Bermúdasídd) í skyrtu með kraga og golfskóm. Gott er að hafa þunna peysu með á völlinn. Góð regla er að hafa ávallt regnhlíf og regnföt með í golfferðina og í golfpokanum.

Sólarvörn og flugur: Við mælum með, þegar fólk fer erlendis að spila golf, að sólarvörn og vörn gegn moskítóflugum sé með í golfsettinu. (Fæst í flestum apótekum hér heima).

Evrópska sjúkratryggingakortið: Við mælum með að menn sæki um það hjá Tryggingastofnun ríkisins og hafi meðferðis. Evrópska sjúkratryggingakortið er notað ef korthafi veikist eða slasast í öðru EES-ríki. Ríkisborgarar Íslands og annarra EES-ríkja sem eru búsettir og sjúkratryggðir hér á landi eiga rétt á að fá evrópskt sjúkratryggingakort. Evrópska sjúkratryggingakortið gildir í öllum ríkjum EES og Sviss.

EFTIR AÐ ÚT ER KOMIÐ:

Ástand golfvalla: ATH. Golfdeild VITA tekur ekki ábyrgð á ástandi golfvalla vegna framkvæmda, veðurfars eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna.

Farsímar: Bannað er á golfvöllum erlendis, eins og hér heima, að hafa farsímann opinn meðan menn eru á golfvellinum.

Golfkerrur og golfbílar: Golfkerra er innifalin í golfferðinni til Salgados. Þeir sem vilja hafa bíl allan tímann bóka bílinn hér heima en greiða fyrir hann á staðnum. Verðið er 30 €  á dag eða 390 € fyrir 13 x 18 holu hringi. Fyrir staka hringi kostar golfbíll 36€ fyrir 18 holur og 20€ fyrir auka golf.

Golfskáli: Golfskálinn er lágreist bygging beint fyrir utan hótelið. Frá verönd aftan við húsið eru stólar og borð þar sem hægt er að sitja og fá sér hressingu og samtímist dást að útsýninu yfir völlinn og náttúruna.

Golfvellirnir: Salgados er flatur og því auðveldur yfirferðar. Völlurinn hefur tekið miklum breytingum síðustu ár. Pálmatrjám hefur verið plantað víða um völlinn sem skermir hann á fallegan hátt. Golfvöllurinn í Salgados er flatur, léttur yfirferðar og því mjög auðveldur í göngu. Vatn, villt náttúra, fuglalíf og pálmatré eru einkenni vallarins. Völlurinn er par 72 5.640m af gulum,5.157m af bláum og 4.711m af rauðum teigum. Klúbbhúsið er nýtískuleg bygging með huggulegri verönd sem snýr út að golfvellinum.

Tveir ólíkir golfvellir, Morgado og Alamos u.þ.b. hálftíma frá Salgados eru í boði fyrir þá sem vilja tilbreytingu frá Salgados vellinum. Morgado golfvöllur var opnaður 2003 og er par 73. Hann er 5.875m langur af gulum teigum og 4.824 m af rauðum teigum. Brautirnar eru nokkuð opnar, stórar flatir og stórkostlegt útsýni er yfir fallega náttúruna er einkenni þessa valar. Morgado er nokkuð auðveldur í göngu.

Alamos er styttri en ekki síður spennandi. Alamos var opnaður 2006 og er par 71. Hann er 5.055m af gulum teigum og 4.291m af rauðum teigum. Þrátt fyrir að völlurinn er stuttur þarf að vanda sig til að ná góðu skori á þessum bráðskemmtilega velli.
Báðir vellirnir eiga það sameiginlegt að vera umkringdir einstakri náttúru og frá völlunum er enga byggð að sjá. Fyrir framan klúbbhúsið er glæsilegt æfingasvæði, talið með þeim betri í Evrópu, með 2 "driving range" púttflötum og vippflötum.

Æfingasvæðið: Mjög góða púttflatir eru við klúbbhúsið.

Ótakmarkað golf: Gestir okkar á Salgados geta spilað ótakmarkað golf sér að kostnaðarlausu alla spiladagana. Viðbótar golf er ekki hægt að panta fyrirfram og er háð umferð á vellinum og að rástímar séu fáanlegir.

Spilahraði: Æskilegt er að leikið sé eftir punktafyrirkomulagi, Stabelford. Boltinn skal tekinn upp eftir að slegin hafa verið 3 til 4 högg yfir par. Það hefur enginn gaman að "slow play" í golfi og því minnum við á að halda þarf vel í við ráshópinn á undan. Vallarvörður sér líka um að slíkt sé gert á ferðum sínum um völlinn. Við bendum fólki á að hafa golfbíla/kerrur í beinni röð á næsta teig og vera ávallt tilbúið að slá þegar brautin eða flötin er auð.

Rástímar: Alla daga kl. 09:00 á 1. og 10 teig nema 10. og 11. maí er allur hópurinn ræstur út af 10. teig kl. 08:40. Fararstjóri sér um að raða í ráshópa. Tilkynningar um rástíma og ráshópa verða settar á upplýsingatöflu hótelsins á hverju kvöldi.

Forsvarsmenn golfvalla erlendis áskila sér rétt á að breyta rástímum fyrirvaralaust og ber VITAgolf enga ábyrgð á því ef það gerist.

Rásröð: Það er nauðsynlegt að láta fararstjóra vita um óskir varðandi meðspilara. Annars verður niðurröðun í hópa í öruggum höndum fararstjóra sem gerir sitt besta svo allir fái meðspilara við hæfi. Ráðgert er að halda golfmót í hverri ferð. (nánari upplýsingar úti).

Samgöngur: Hægt er að panta leigubíl í hótelmóttökunni og einnig bílaleigubíla.

Út að borða: Kvöldverður er innifalinn öll kvöld, einnig getur fararstjóri veitt upplýsingar um veitingastaði í nágrenninu. Hálft fæði er innifalið í verði ferðarinnar. Hægt er að fá upplýsingar um veitingastaði í negrenninu í hótelmóttökunni.

Þjórfé: Ekki er skylda að gefa þjórfé. Ef menn fara á góðan veitingastað og eru ánægðir með mat og þjónustu er þumalputtareglan 5 til 10% af upphæð reiknings. Venjan er að skilja smáaur eftir við gluggann hjá rútubílstjórunum okkar eftir ferð og gott er að gefa stúlkunum, sem þrífa herbergin, 5 til 10 evr. á viku til að fá betri þjónustu. Best er að gefa herbergisþernunum þjórfé strax til að fá góða þjónustu.

 

 


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar