Palheiro - Madeira - Hagnýtar upplýsingar

Hagnýtar upplýsingar - Palheiro - Madeira

ATH: Lágmarksfjöldi í ferð er 20 manns. Öll verð sem birt eru á þessari síðu eru til upplýsinga um verð á þjónustu erlendis og geta breyst án fyrirvara.

Staðsetning: Madeira liggur vestur af ströndum Afríku. Frá flugvellinum í Madeira er aðeins 15 mínútna akstur á hótelið.

Flugvöllur: Flugvöllurinn er Madeira Airport (FNC).

Flug: Flugtíminn er um það bil fimm klukkustundir.

Tímamismunur: Á veturna er enginn tímamismunur en á sumrin er klukkan á Madeira einni klukkustund á undan okkar tíma. Sumartíminn er frá 27.03 - 30.10.

FYRIR BROTTFÖR:

Golfvörur: Golfvörur á Íslandi geta verið ódýrari og oft er meira úrval hér heima en í "pro-shop" verslunum erlendis. Samt sem áður er hægt að kaupa mjög falleg golfföt, sem sum eru nokkurskonar "minjagripir"- merkt viðkomandi golfstað.

Farangur: Ath. farangur má vera samtals 30. kg. Það er golfsettið má vera 15 kg. og farangur 15 kg.

Handfarangur: Flugmálastjórn hefur gefið út bækling með reglum um handfarangur. Nýjustu útgáfu má nálgas hér.

Internet tenging: "WI-FI" er á herbergjum (netlaus tenging), einnig er víða á hótelinu eins og á barnum, setustofu og veitingastað.

Klæðnaður: Eins og gengur og gerist með velli í háum gæðaflokki þá eru reglur um klæðaburð almennt mjög strangar. Bannað er t.d. að leika í gallabuxum og íþróttabuxum (trimmbuxum,) svo og í kragalausum bolum og stuttbuxum með teygju í mittið. Hlýrar á kvenmannsbolum verða að vera a.m.k. 5 cm breiðir og fleira. Ætlast er til að kylfingar séu í viðeigandi klæðnaði. það er golfbuxum síðum eða í stuttbuxum (Bermúdasídd) í skyrtu með kraga og golfskóm. Gott er að hafa þunna peysu með á völlinn. Góð regla er að hafa ávallt regnhlíf og regnföt með í golfferðina og í golfpokanum.

Sólarvörn og flugur: Við mælum með, þegar fólk fer erlendis að spila golf, að sólarvörn og vörn gegn moskítóflugum sé með í golfsettinu. (Fæst í flestum apótekum hér heima).

Evrópska sjúkratryggingakortið: Við mælum með að menn sæki um það hjá Tryggingastofnun ríkisins og hafi meðferðis. Evrópska sjúkratryggingakortið er notað ef korthafi veikist eða slasast í öðru EES-ríki. Ríkisborgarar Íslands og annarra EES-ríkja sem eru búsettir og sjúkratryggðir hér á landi eiga rétt á að fá evrópskt sjúkratryggingakort. Evrópska sjúkratryggingakortið gildir í öllum ríkjum EES og Sviss.

EFTIR AÐ ÚT ER KOMIÐ:

Ástand golfvalla: ATH. Golfdeild VITA tekur ekki ábyrgð á ástandi golfvalla vegna framkvæmda, veðurfars eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna.

Farsímar: Bannað er á golfvöllum erlendis, eins og hér heima, að hafa farsímann opinn meðan menn eru á golfvellinum.

Golfkerrur og golfbílar: Golfkerra eru innifalin. Golfbíll kostar 270 Evrur (135 evrur á mann) ótakmarkað í 10 daga.

Ótakmarkað golf: Gestir okkar á Madeira geta spilað ótakmarkað golf sér að kostnaðarlausu alla spiladagana ef rástímar eru lausir. Viðbótar golf er ekki hægt að panta fyrirfram og er háð umferð á vellinum.

Spilahraði: Æskilegt er að leikið sé eftir punktafyrirkomulagi, Stableford. Boltinn skal tekinn upp eftir að slegin hafa verið 3 til 4 högg yfir par. Það hefur enginn gaman að "slow play" í golfi og því minnum við á að halda þarf vel í við ráshópinn á undan. Vallarvörður sér líka um að slíkt sé gert á ferðum sínum um völlinn. Við bendum fólki á að hafa golfbíla/kerrur í beinni röð á næsta teig og vera ávallt tilbúið að slá þegar brautin eða flötin er auð.

Rástímar: Bókaðar eru 18 holur daglega.  Fararstjóri sér um að raða í ráshópa. Tilkynningar um rástíma og ráshópa verða settar á upplýsingatöflu hótelsins á hverju kvöldi.

23. okt frá 09:21 10:15
24. okt frá 10:06 11:00
25. okt frá 08:00 08:45
26. okt frá 09:03 09:57
27. okt frá 09:03 09:57
28. okt frá 09:03 09:57
29. okt frá 10:15 11:09
30. okt frá 09:12 10:06
31. okt frá 08:00 08:45 (9 holur )

Forsvarsmenn golfvalla erlendis áskila sér rétt á að breyta rástímum fyrirvaralaust og ber VITAgolf enga ábyrgð á því ef það gerist.

Rásröð: Það er nauðsynlegt að láta fararstjóra vita um óskir varðandi meðspilara. Annars verður niðurröðun í hópa í öruggum höndum fararstjóra sem gerir sitt besta svo allir fái meðspilara við hæfi. Ráðgert er að halda golfmót í hverri ferð. (nánari upplýsingar úti).

Æfingasvæði: Til viðbótar við aðal völlinn er skemmtilegur 6 holu æfingavöllur sem heitir "The Acadamey Course".  Holurnar 6 eru 15,25,30,75,152, og 302 metra á lengd. Það er ágætis púttflöt og aðstaða til að vippa. Æfingapallarnir eru ekkert sérstakir en útsýnið er stórkostlegt.

 

Klúbbhús: Einstaklega fallegt klúbbhús sem er þekkt fyrir sérlega ljúffengar veitingar og mat. Útsýnið af svölum húsins er unaðslegt.

Þjórfé: Ekki er skylda að gefa þjórfé. Ef menn fara á góðan veitingastað og eru ánægðir með mat og þjónustu er þumalputtareglan 5 til 10% af upphæð reiknings. Venjan er að skilja smáaur í gluggann hjá rútubílstjórunum okkar eftir ferð og gott er að gefa stúlkunum, sem þrífa herbergin, 5 til 10 evr. á viku til að fá betri þjónust

Mynt: Evra (EUR). Sjá gengi.

Hraðbankar: Mjög víða.

Greiðslukort: Í langflestum búðum og veitingastöðum er tekið við helstu kreditkortum. Ekki er hægt að treysta því að hægt sé að greiða fyrir vöru eða þjónustu með debetkorti en að sjálfsögðu er hægt að taka pening út úr hraðbönkum, hvort sem er út á kredit- eða debetkort.

Samgöngur: Fyrir þá sem ekki vilja ganga eru leigubílar og strætisvagnar á hverju strái. Mörg strætisvagnafyrirtæki eru á eyjunni en ef einungis á að taka strætó innan Funchal er best að halda sig við staðbundnu gulu strætisvagnana.

Tímamismunur: Á veturna er enginn tímamismunur en á sumrin er klukkan á Madeira einni klukkustund á undan okkar tíma. Sumartíminn er frá 27.03 - 30.10. Flestar götuverslanir eru opnar á milli kl. 10.00 og 19:00, mánudaga til laugardaga. Verslunarmiðstöðvar eru opnar frá kl. 10:00 til 22:00, mánudaga til laugardaga, en sumar verslunarmiðstöðvar eru opnar til miðnættis og eru einnig opnar á sunnudögum. Athugið að opnunartími getur verið breytilegur eftir verslunum um helgar.

Tungumál: Portúgalska er opinbert tungumál á Madeira.

 


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar