Valle del Este - Spánn

Valle del Este - Spánn

Ótrúlega spennandi golfvöllur við glæsilegt hótel.

  • 26. sep. - 3. okt. - 7 og 14 nætur - Verð - Golfskóli í boði 26. sept. - 3. okt.
  • 03. - 10. okt. - 7 og 14 nætur - Verð
  • 10. - 17. okt. - 7 og 14 nætur - Verð
  • 17. - 24.okt. - 7 nætur - Verð


7 og 14 nátta ferðir og tvískiptar ferðir. Í tvískiptu ferðunum er dvalið fyrstu vikuna á Valle Del Este og seinni vikuna á Mar Menor.

ATH: 40.000 kr.(óendurkræft, þegar vika er liðin frá bókun) staðfestingargjald til að festa ferðina og restina 6 vikum fyrir brottför. EINUNGIS ER ER HÆGT AÐ NOTA VILDARPUNKTA ÞEGAR FERÐIN ER BÓKUÐ Á NETINU. þegar bókað er á skrifstofu er bókunargjald 2.500 kr. á mann og ekki er hægt að nota Vildapunkta.

 

Innifalið á Valle del Este:
  • Beint áætlunarflug með Icelandair
  • Flugvallaskattar
  • Flutningur golfsetts (hámark 15kg)
  • Akstur milli flugvallar og hótels
  • Gisting
  • Fullt fæði*
  • Ótakmarkað golf með golfbíl alla daga (háð brottfarar- og komutíma).
  • Fararstjórn.
*Fullt fæði er morgun- og kvöldverðarhlaðborð á hótelinu og hádegisverður er í klúbbhúsinu skv. matseðli sem er m.a. hamborgari, klúbbsamloka, spagetti, salat og Paella.
Ummæli frá farþegum:
Við höfum verið í frábæru fríi hér á Valle del Este, golfvöllurinn og allar aðstæður til golfiðkunnar fyrsta flokks og hótelið eins og best verður á kosið. Heilsulind og líkamsræktaraðstaða er mjög góð, veitingastaðirnir fyrsta flokks og aðstaða öll eins og maður vill hafa það á góðum dögum. Valle del Este svæði bíður upp á frábært veðurfar dásamlegan mat og gestrisni. Þetta er frábær staður til að njóta lífsins, spila golf og safna kröftum, við hjónin mælum eindregið með fríi á Valle Del Este fyrir hvern sem er. Takk fyrir frábæra daga".
Einar Þorvarðarson (framkvæmdastjóri HSI) og Rúna Kristinsdóttir, júni 2010
Um Valle del Este:
Við Miðjarðarhafsströnd Spánar á milli borganna Murcia og Almeria er sannkölluð golfperla. Stutt er til næstu bæja, Vera ca. 5 mín. akstur og ca. 10. mín. akstur er til Garrucha. "Frá flugvellinum í Alicante er u.þ.b. 2ja og hálfs tíma akstur til Valle del Este. Sjá kort
Fyrsti teigur er beint fyrir utan hótelið ásamt æfingasvæði. Góð sundlaug til að henda sér í eftir hringinn, veitingastaður, bar og verslun með einstakega smekklegar og flottar golfvörur og svo sjálfur golfvöllurinn er beint fyrir utan hótelið.
Gestum líður afar vel á hótelinu sem er með björt herbergi og alla aðstöðu sem til þarf m.a. glæsileg heilsulind/Spa. Lítil verslunarmiðstöð er við hliðina á hótelinu og þar er m.a. lítil kjörbúð, kaffihús og nokkrir litlir veitingastaðir. Valle del Este er draumur hvers kylfings, einstaklega fallegur og nokkuð krefjandi golfvöllur. Valle del Este er virkilega skemmtilegur valkostur fyrir alla kylfinga.
Flugupplýsingar
Flugnr. Áfangastaður Brottför Koma
FI 582 Keflavík - Alicante 07:30 14:00
FI 583 Alicante - Keflavík 14:50 17:20

Gististaðir - Valle del Este - Spánn

Valle del Este 

Hótelið opnaði í október 2004 og er glæsilegt í alla staði. Gestamóttaka er á fyrstu hæð og þaðan er gengið út á verönd og gleðst þá auga kylfingsins þegar þessi skemmtilegi og fjölbreytilegi golfvöllur blasir við. Á neðstu hæðinni er bar, veitingastaður og verslun þar sem einstaklega smekklegar golfvörur eru seldar.

(+)nánar

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar