Beint í leiðarkerfi vefsins.
ATH: 40.000 kr.(óendurkræft, þegar vika er liðin frá bókun) staðfestingargjald til að festa ferðina og restina 6 vikum fyrir brottför. EINUNGIS ER ER HÆGT AÐ NOTA VILDARPUNKTA ÞEGAR FERÐIN ER BÓKUÐ Á NETINU. þegar bókað er á skrifstofu er bókunargjald 2.500 kr. á mann og ekki er hægt að nota Vildapunkta.
Innifalið á Islantilla:
„Vildi láta þig vita hvað við vorum ánægð með ferðina til Islantilla.
Allt til fyrirmyndar á staðnum, góð þjónusta, völlurinn góður og sanngjarnt verð á öllu. Ekki má gleyma Sigga sem stóð sig með mikilli prýði".
Björn Ingólfsson og Anna María Jóhannesdóttir - april, 2010
„Við vorum að koma úr frábærri ferð til Islantilla. Veðrið var frábært og Siggi fararstjóri er alveg einstakur. Frábær náungi, sem er alltaf til í að gera allt til að farþegum líði sem best og húmorinn aldrei langt undan. Hótelið og maturinn var fínn. Kærar þakkir fyrir frábæra ferð, við förum örugglega aftur með ykkur í golfferð".
Björn Erlingsson og Heiða Gunnarsdóttir, april 2010
Islantilla er í Andalucia héraði ekki svo langt frá landamærum Portúgals. Frá Faro flugvelli til Islantilla eru u.þ.b. 90 km Sjá kort.
Það er ekki að ástæðulausu sem Islantilla Golf hefur notið ómældra vinsælda farþega okkar sl. ár. Margir sækja þangað ár eftir ár enda hentar völlurinn kylfingum með mismunandi getu og flestum líkar afar vel hinar breiðu brautir og stóru flatir vallarins.
Islantilla Golf Resort Hotel er paradís fyrir afslöppun og uppáhaldsíþróttina golf. Glæsilegt 205 herberbergja hótel með vel innréttuðum og hlýlegum herbergjum, bar, veitingahús, og heilsulind svo eitthvað sé nefnt.
27 holu golfvöllur hótelsins er með gott æfingasvæði til að æfa höggin og stutta spilað á bæði púttflöt og flöt til að vippa inná. Klúbbhúsið er beint á móti hótelinu.
Í Islantilla bænum er lítill verslunarkjarni og þar er m.a. apótek, skóverslun og matvöruverslun.
Stemmning á Islantilla - skoðaðu myndir

Islantilla Golf Hotel er 205 herbergja 4* hótel. Frá hótelinu er fallegt útsýni, ýmist yfir golfvöllinn eða til sjávar. Gestamóttaka er á jarðhæð, ásamt veitingasal, úti-og innibar og fallegri verönd. Við hótelið er útisundlaug, útiveitingastaður (grill) upphituð innilaug, gufubað, heilsurækt (Spa), kaffitería, hárgreiðslustofa og góð sólbaðsaðstaða.