El Rompido - Spánn

El Rompido - Spánn

36 holur í fallegri náttúru á El Rompido!

Innifalið á El Rompido:
  • Beint leiguflug með Icelandair
  • Flugvallaskattar 
  • Flutningur golfsetts (hámark 15kg) 
  • Akstur milli flugvallar og hótels  
  • Gisting 
  • Morgun- og kvöldverðarhlaðborð 
  • Ótakmarkað golf með kerru alla daga (háð brottfarar- og komutíma
  • Fararstjórn.
Ummæli frá farþegum: 

"Þann 27. apríl 2007 fórum við 10 golfarar frá Seyðisfirði í annað sinn á El Rompido og vorum þar í 10 daga . El Rompido er orðinn sælureitur golfarans hvort sem forgjöfin er 9,7 eða 36,0. Nú er kominn annar 18 holu golfvöllur, Norðurvöllur sem er virkilega góður og ótrúlegt hversu þroskaður og flottur hann er nú þegar. Hótelið er frábært og mikill kostur að hafa klúbbhúsið við hliðina. Þakka fyrir frábæra ferð á El Rompido nú í vor."
Ómar Bogason - GSF

Um El Rompido:

Það er auðvelt að njóta dvalarinnar á El Rompido á frábæru 5* hóteli í einstaklega fögru umhverfi. Maturinn er fjölbreyttur og ljúffengur og tveir skemmtilegir 18 holu golfvellir, Suður- og Norður völlur, sem falla einstaklega vel að fallegri og óspilltri náttúrinni.

Hótel El Rompido er glæsilegt 5* hótel með smekklega innréttuðum herbergjum búin öllum nútíma þægindum. Sameiginleg aðstaða er mjög góð með flottum bar á neðstu hæðinni þar sem gaman er að hittast á kvöldin. Lítil og notaleg heilsulind er á hótelinu.

Til smábæjarins El Rompido er aðeins 5 mín. akstur og þar eru nokkrir veitingastaðir sem bjóða ljúffenga spánska rétti. Einnig er stutt til bæjarins Cartaya, ca. 7 mín. akstur. Frá flugvellinum í Sevilla eru 135 km   (sjá kort).


Gististaðir - El Rompido - Spánn

El Rompido  

Hótel El Rompido er glæsilegt 5* hótel, staðsett við 2 gæða golfvelli. Gestamóttakan er á fyrstu hæð ásamt bar og þaðan er gengið út á verönd. Á hótelinu eru tveir barir, veitingasalur, fullbúinn heilsurækt, gufubað, lítil innilaug, útilaugar, tennis- og fótboltavellir auk annarrar afþreyingar. Skammt frá hótelinu er bjartur og nýtískulega hannaður golfskáli með verslun, veitingasal og svölum með glæsilegu útsýni yfir völlinn. Æfingasvæðið er rétt við golfskálann og þaðan er örstutt á fyrsta teig. Skjólgóður sundlaugargarður og sólbaðsaðstaða. Örstutt frá hótelinu er kjörbúð.

(+)nánar

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit


Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar

Inspired by Iceland