Beint í leiðarkerfi vefsins.
„Við mælum heilshugar með Matalascañas - frábær staður, yndislegur golfvöllur og góð þjónusta. Ingi Rúnar og Óli eru skemmtilegir fararstjórar og fyrsta flokks golfkennarar“.
María Aðalbjarnardóttir og Pétur Birgisson, apríl 2009.
„Við vildum bara koma því til skila að ferðin var í alla staði mjög ánægjuleg. Gott hótel, frábær golfvöllur, góður matur og síðast en ekki síst alveg frábærir fararstjórar. Ingi Rúnar, Óli og Einar Lyng eru einhverjir bestu golf-fararstjórar sem hægt er að hugsa sér, áreiðanlegir og svo eru þeir líka svo kátir og skemmtilegir“.
Guðbjörg Alfreðsdóttir og Ásmundur Karlsson, okt. 2009
Matalascañas er í héraðinu Andalucia, skammt frá landamærum Spánar og Portúgals, 110 km frá Sevilla flugvelli. Sjá kort
Bærinn Matalascañas er við ströndina og er sumardvalastaður Spánverja. Skammt frá er skemmtilegur bær El Rocio en þar hafa margar hinna svökölluðu „kúrekamynda“ verið teknar upp, enda götur og hús eins og vinsælt er í þeim kvikmyndum.
Hótelið ykkar Tierra Mar er við ströndina og er einstaklega heimilislegt 4* hótel þar sem íslendingum hefur alltaf liði vel. Herbergin eru rúmgóð og öll með sjávarsýn.
Golfvöllurinn Dunas de Donaña er skemmtilegur 18 holu völlur, blanda af links og skógarvelli. Fjölbreyttnin á milli brauta gerir hringinn spennandi og bæði afbragðs kylfingar og þeir sem styttra eru komnir geta tekist á við völlinn og haft mikla ánægju af. Þar sem völlurinn er fremur flatur er samtímis auðvelt að vera gangandi og njóta sín í kyrrðinni og fallegri náttúrunni.
Völlurinn er í göngufæri frá hótelinu en þaðan gengur bíll og sér um að aka kylfingum á milli hótels og vallar.
Stórt og gott æfingasvæði og glæsilegur golfskáli. Eftir golfhring er vinsælt að sitja á svölum golfskálans þaðan sem skemmtilegt útsýni er yfir völlinn og gaman er að fylgjast með kylfingum sem eru að koma inn á bæði 9. og 18 flöt.
Flugupplýsingar
Rástímar og fl.
Veðurspá

Tierra Mar hótelið er í Matalascañas á Atlantshafsströnd Spánar, um 100 km. frá Sevilla flugvelli. Gestamóttaka er á jarðhæð, ásamt veitingasal og bar. Öll herbergi okkar gesta eru með sjávarsýn. Á hótelinu er inni-og útisundlaug, heilsurækt, sauna, hárgreiðslustofa og minjagripaverslun. Hótelgarðurinn er mjög notalegur og sér vel yfir ströndina neðan við hótelið.