Golfskóli - Spánn

Golfskóli - Spánn

Golfskóli á Matalascañas. Hentar hvaða kylfingi sem er!

  • 31. mar. - 9. apr. - 9 nætur - Matalascañas - UPPSELT/BIÐLISTI
  • 16. - 27. apr. - 11 nætur - Matalascañas - 5 SÆTI LAUS
  • 27. - 08. maí - 11 nætur - Matalascañas - UPPSELT/BIÐLISTI

Vinsældir golfskólans aukast með hverju árinu sem líður undir öruggri handleiðslu  PGA golfkennara!

Golfskólinn var stofnaður árið 1997 og á þeim 14 árum höfum við komið hundruðum kylfinga af stað í íþróttinni.

6 daga golfskóli kostar 34.000 kr. á mann.  Bókist sem aukakostur í bókunarvél.

Ummæli frá nemendum:

„Við hjónin höfum farið í þrjár ferðir til Spánar í Golfskólann, þar sem við höfum notið frábærrar kennslu meistaranna Ólafs Jóhannessonar og Inga Rúnars Gíslasonar.

Auk kennslu í að halda rétt á kylfunum, velja réttar kylfur og ná „hinni einu réttu“ sveiflu, er í skólanum markvisst farið yfir golfreglur og lögð áhersla á mikilvægi þess að sýna tillitssemi á vellinum og virða tímamörk.

Ekki má gleyma „frímínútunum“ sem gerast ekki betri. Við mælum með Golfskólanum fyrir alla og hvetjum þá sem eru að byrja í golfi að fara í skólann og læra réttu handtökin og reglurnar - helst áður en þeir fara út á völl að spila.

Það eykur sjálfstraustið þegar maður þekkir leikreglurnar! Þeir sem eru búnir að spila lengi ættu einnig að hafa skólann í huga, því alltaf má bæta sig. Þetta er skemmtilegasti skóli sem við höfum verið í - og svo getur maður alltaf farið aftur og fínpússað snilldina!! - kærar þakkir fyrir okkur“!
Guðrún Snæbjörnsdóttir og Guðni S. Gústafsson

Við erum á Facebook


Margir af nemum skólans koma ár eftir ár og bæta við kunnáttuna og þeir sem eru að taka sín fyrstu skref geta stoltir farið af stað á golfvöllinn eftir dvöl í golfskólanum.

Um golfskólann:

Skólinn skiptist niður í sex kennsludaga. Kennsla fer fram fyrir hádegi, byrjar um kl. 9 og kennt fram til hádegis með einu kaffihléi. Eftir hádegi spila nemendur skólans golf saman.

Markmið golfskólans er að allir nemendurnir nái færni í grunnatriðum golfsveiflunnar, vippsins og púttsins og að þeir geti leikið golf á góðum hraða og haft gaman af. Farið er yfir golfreglurnar, umgengnisreglur, siðareglur og hvernig forgjafarkerfið virkar, að ógleymdum einum mikilvægasta þætti golfsins, andlega þættinum, sem felur í sér jákvætt viðhorf og góða lund gagnvart leiknum og meðspilurum.

Öll kennslan fer fram á léttan og skemmtilegan hátt þar sem allt er gert til að kylfingnum líði sem best. Markmið skólans er að gera þátttakendur að betri kylfingum um leið og þeir skemmta sér.

Golfskólinn er fyrir alla kylfinga, ekki einungis fyrir byrjendur. Kennsluefni skólans er jafn mikilvægt byrjendum sem lengra komnum. Kylfingar með allt niður í 8 í forgjöf koma í skólann til að auka á kunnáttu sína.

Ekki er nauðsynleg að koma með fullt golfsett. Það er nóg að koma með 4-5 kylfur t.d. 7 járn, fleygjárn (PW), eina trékylfu og pútter. Golfskó eða þægilegan skófatnað. Snyrtilegur klæðnaður einkennir golfíþróttina og því ekki leyfilegt að klæðast gallabuxum og fótboltatreyju á golfvellinum.

Nemendur fá skólabók þar sem farið er yfir alla þá þætti sem teknir eru fyrir í skólanum.

Þeir sem útskrifast fá Diploma því til staðfestingar.

Gott að vita:
  • Hámarksfjöldi eru 20 nemendur, skiptist í 2 hópa
  • 2 PGA kennarar stjórna skólanum
  • Kennt er í 5 daga í vikuferðum og 6 daga í 12 daga ferð. Kennt er frá
    ca. kl. 09:00 á morgnana til hádegis með einu kaffihléi
  • Hópurinn spilar golf saman seinni part dagsins (frjálst val)
  • Það er ekki nauðsynlegt að koma með fullt golfsett - hægt er að leigja
    sett sem kostar ca. 10  evrur á dag.
  • Nægilegt er að taka 4 - 5 kylfur eða t.d. 7 járn, fleygjárn (PW) eina
    trékylfu og pútter
  • Golfskó (allir golfvellir setja kröfu um golfskó)
  • Snyrtilegan golfklæðnað, sjá nánar hér
  • Nemendur fá golfbolta til notkunar í skólanum, en þurfa að vera með
    eigin bolta á vellinum (hægt að kaupa á staðnum).

Sjáumst hress í golfskólanum!

Með kveðju
Ingi Rúnar
og Óli



Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar