Gloria - Tyrkland

Gloria - Tyrkland

GLORIA - Eitt af bestu golfresortum í Evrópu - 5* lúxus.

  • 18.  - 29. okt. - 11 nætur - Verð
Innifalið á Gloria:
  • Beint leiguflug með Icelandair
  • Flugvallaskattar
  • Flutningur golfsetts (hámark 15kg)
  • Akstur milli flugvallar og hótels
  • Gisting
  • Morgun- og kvöldverðarhlaðborð
  • 10 golfhringir
  • Fararstjórn.

ATH: Gestir á Serenity hótelinu geta snætt á  "la carte" veitingahúsum hótelsins sér að kostnaðarlausu (drykkir ekki innifaldir).

Ummæli farþega:

"Við hjónin höfum spilað golf víða, m.a í Ameríku, Írlandi, Spáni, en þriðja ferðin okkar til Gloria Golf Resort er ferðin sem stendur uppúr. Nýtt stórglæsilegt hótel, þar sem dekrað er við mann frá morgni til kvölds. Frábærir veitingastaðir og topp þjónusta. Golfvellirnir þrír eru hverjum öðrum glæsilegri, og best hirtu vellir sem við höfum komið á. Gloria er staðurinn sem stendur uppúr í golfinu".
Þráinn Ársælsson, Matreiðslumeistari og Anna Guðný Ásgrímsdóttir.


Um Antalya - Gloria:

Frá flugvellinum í Antalya er um 40 mín. akstur að Gloria Golf Resort sem samanstendur af þremur 5* hótelum og tveimur 18 holur golfvöllum og einum 9 holu.

Gloria Serenity er lúxushótel í algjörum sérflokki.  Allur aðbúnaður á Gloria Golf Resort er fyrsta flokks. Hótelin eru hvert öðru glæsilegra, golf á þremur stórskemmtilegum golfvöllum, ljúffengur og fjölbreyttur matur á mismunandi veitingastöðum, heilsulindir og frammúrskarandi þjónusta.

Golfvellirnir Gloria Old and Gloria New eru báðir 18 holu vellir og Gloria Verde er 9 holu völlur.

Undanfarið hafa golfferðirnar okkar til Tyrklands slegið rækilega í gegn. Það er álit margra að Tyrkland sé einn besti golfáfangastaður sem íslenskum kylfingum býðst á erlendri grundu.

Ný þjónusta - Kylfingar á hreinum bíl.

 


Gististaðir - Gloria - Tyrkland

Gloria Serenity 

Glæsilegt  5*+ lúxushótel á tyrknesku Ríveríunni við stærsta golfsvæði Tyrklands, 45 holur. Hótelið er hannað í fallegum nýtískulegum byggingastíl og er ævintýraveröld út af fyrir sig. Á hótelinu eru 4 veitingahús m.a. franskt, asískt og grískt. Serenity Sanitas Spa býður fjölda mismunandi dekurmeðferða, t.d. andlitsnudd, fótanudd að ógleymdu tyrkneska baðinu, Hamman, sem er unaðsleg upplifun. Fyrir framan hótelið er falleg Miðjarðarhafsströndin. Við hótelið eru tvær stórar sundlaugar og einnig innilaug.
(+)nánar

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar