Beint í leiðarkerfi vefsins.
ATH: 40.000 kr.(óendurkræft, þegar vika er liðin frá bókun) staðfestingargjald til að festa ferðina og restina 6 vikum fyrir brottför. EINUNGIS ER ER HÆGT AÐ NOTA VILDARPUNKTA ÞEGAR FERÐIN ER BÓKUÐ Á NETINU. þegar bókað er á skrifstofu er bókunargjald 2.500 kr. á mann og ekki er hægt að nota Vildapunkta.
ALLT INNIFALIÐ hefur svo sannalega slegið í gegn. Kylfingum fanst ótrúlega þægilegt að geta geymt peningaveskið heima í orðsins fyllstu merkingu. Marismas er líflegur staður þar sem margt er um manninn og mikið fjör.
"Við hjónin fórum til El Rompido og gistum á Marismas íbúðir 22 apríl 2010. Það var einstaklega gaman og mjög vel að öllu staðið. Við prófuðum nýtt tilboð þar sem var allt innifalið. Íbúðarhótelið kom vel út og við þurftum aldrei að taka upp veskið eins og stóð í auglýsingunni. Maturinn og öll aðstaða var til fyrirmyndar. Einar Lyng var farastjóri og stóð sig vel eins og alltaf. Við erum búin að ferðast með Peter Salmon síðan hann byrjaði með golfferðir og er þetta ein af betri ferðum sem við höfum farið, þó þær hafi allar verið góðar".
Friðgeir Guðnason GR og Kristín Ragnarsdóttir GR
Frá flugvellinum í Faro til El Rompido eru 104 km (sjá kort).
ALLT INNIFALIÐ og þú getur hreinlega skilið peningaveskið eftir heima! Allan daginn er matur á boðstólum og allir innlendir drykkir (gos, bjór, léttvín, vatn, áfengi, te og kaffi) á hótelinu eru innifaldir í pakkanum.
ATH: Vatn eða nesti fyrir golfið er ekki innifalið. Fyrir utan morgun- hádegis og kvöldverð er "snakk" þ.e. pylsur, hamborgarar, samlokur, brauð og bakkelsi í boði frá kl. 10:30 - 13:00 og siðdegis frá kl. 15:00 - 18:30. Ótakmarkað magn af innlendum drykkjum eru í boði á milli kl. 10:00 - 23:00. (Sundlaugarbarinn er eini barinn sem er opinn milli 10:30 -18:00. Hótelbarinn er síðan opinn milli 18:00 - 23:00)
ATH: ALLT INNIFALIÐ pakkinn gildir eingöngu á Marismas íbúðahótelinu ekki í klúbbhúsinu eða á El Rompido hótelinu.
Gist er í vel útbúnum íbúðum með einu svefnherbergi, svölum, eldhúsi, stofu og baðherbergi. Byggingin er aðeins nokkra metra frá El Rompido hótelinu, klúbbhúsinu og tveimur 18 holu golfvöllum.
Golfvellirnir eru 2, norðurvöllur og suðurvöllur. Báðir vellirnir, sem eru gæðavellir eru beint fyrir utan dyrnar og henta öllum kylfingum. Falleg náttúra og víða af völlunum er glæsilegt útsýni yfir Atlantshafið.
Tvö góð æfingasvæði sem eru með fjölbreytta aðstöðu til æfinga á bæði stutta spilinu og lengri höggunum er alveg upplagt er að nota á morgnana áður en farið er á vellina.

Marismas Club er íbúðahótel með 305 íbúðir. Byggingin er aðeins nokkra metra frá El Rompido hótelinu, klúbbhúsinu og tveimur 18 holu golfvöllum. Á gististaðnum er veitingastaður, bar, tvær sundlaugar, sundlaugabar og smávöruverslun. Gestir okkar sem búa á Marismas eru í "Allt innifalið" pakka. Það er mikið líf og fjör á þessum gististað og eru franskir skemmtarar sem sjá um að haldi uppi gleðinni. Á nánast hverju kvöldi er eitthvað um að vera, sýning eða dansæfingar á barnum. Þessi gisting hentar einstaklega vel fyrir hópa sem vilja fjör og stemmningu á kvöldin. Gestum Marismas stendur til boða að nota Spa 5* El Rompido hótelsins gegn 10 Evrum á dag eða 7 daga pakka á 35 evrur.