Beint í leiðarkerfi vefsins.
"Ég efast um að betri staður sé til í heiminum með eins góða og fjölbreytta golfvelli, gistingu, mat og vín og það sem er að finna á Garden Route svæðinu í Suður Afríku.
Dagskráin sem hér er sett saman í þessari stórkostlegu golfferð er sú mest spennandi sem ég hef gert hingað til. Ég skoðaði þetta sjálfur allt saman í byrjun sept. í ár og veit að viðskiptavinir okkar verða í skýjunum að upplifa allt sem þessi ferð hefur í boði. Ég hlakka mikið til að leiða íslenskan golfhóp um þetta svæði, það verður alveg hreint ótrulegt golfævintýri."
Peter Salmon, fararstjóri.
Svæðið sem við heimsækjum heitir "The Garden Route", og er talið það fallegasta í S.Afríku.
Flogið verður alla leið til George og þar verður gist á þremur mismunandi "Golf Resort" og spilað verður golf á 6 stórkostlegum golfvöllum í ferðinni. Gott er að nefna strax að allir staðir og golfvellir sem við heimsækjum er aldrei í meira en í 1 klst akstursfjarlægð. Ýmsar skoðunarferðir verða í boði þegar út er komið, vínsmökkun, kvöld safarí og dagsferð um svæðið svo nokkuð sé nefnt.
Áætluð dagskrá:
05. feb. - Flogið með Icelandair til London kl. 08:30 lent í Heathrow kl. 11:30. Flug áfram til Johannesburg með South African Airlines er kl. 18:00. (um 10 klst flug)
06. feb. - Flug frá London lendir kl. 07:15 í Johannesburg. Flug áfram til George með innanlandsflugi SAA er kl. 09:15 og lendir í George kl. 11:30. Það er aðeins 10 mín. akstur frá flugvellinum til Hyatt hótelsins í Oubaai þar sem við gistum 8 fyrstu nætur ferðarinnar. Þeir sem vilja, geta spilað golf með golfbíl (innifalið) eftir innritun á hótelið.
Hótelið er algjör lúxus í gegn og okkar herbergi eru öll í aðalbyggingu hótelsins. Ernie Els golfvöllurinn við hótelið, er frekar opinn með stórkostlegu útsýni ýmist til sjávar eða til fjalla og nokkrar gullfallegar brautir við sjóinn. sjá myndir.
Hyatt hótelið er með góð sambönd við nokkrar vínekrur á svæðinu og við stefnum á að vera með eitt, tvö, eða fleiri vínsmökkunarkvöld á hótelinu.
07. feb. - Golf á Oubaai kl. 08:30 - hægt er að spila ótakmarkað golf alla daga á Oubaai að kostnaðarlausu, en eingöngu ef rástímar eru lausir eftir hádegi. Golfbílar eru innifaldir í Oubaai.
08. feb. - Golf á Oubaai kl. 08:30
09.feb. - Golf á Oubaai kl. 08:00
10. feb. Golf á Pinnacle Point "The Pebble Beach of South Africa" sem er staðsett í Mossel Bay (um 45 mín. akstur frá Oubaai) kl.12:00. Ótrúlega fallegur golfvöllur staðsettur alveg við Indlandshaf nánast því ólýsanleg fegurð. Látum myndirnar tala!
11. feb. Golf á Oubaai kl. 08:30. Sídegis verður í boði kvöld Safarí með "Bush Grillveislu". Ferðin mun kosta um 900 rand (c.a.15,000 kr á mann). Sjá nánar
12. feb. Golf á Oubaai kl. 08:40
13. feb. Golf á Oubaai kl. 08:40
14. feb. Eftir morgunverð er lagt af stað til Simola (1klst. frá Oubaai. Á leiðinni verður í boði skemmtileg dagsferð um þetta gullfallega svæði. Dagsferðin er valkvæð og mun kosta um 900 rand (c.a.kr 15,000 á mann) með hádeisverði. (Nánari upplýsingar um þessa ferð á kynnangarfundi fyrir brottför). Við innritum okkur inn á Simola Golf Resort um kvöldið þar sem við gistum næstu 8 nætur.
Á Simola gistum við í lúxus svítum með ótrúlegu útsýni yfir gullfallegan og bráð skemmtilegan golfvöll sem hannaður er af Jack Nicklaus sjálfum.
Simola er ekki nema 5 mín. akstur frá smábænum Knysna þar sem nokkrir skemmtilegir veitingastaðir og búðir eru við höfnina. Hótelið er með skutlbíl til Knysna allan dag til 23:00.
15. feb. - Golf á Simola kl. 08:30, golfbílar innifaldir. Aukagolf er hægt að kaupa fyrir 320 rand (c.a. 5.400 kr á mann með golfbíl)
16. feb. - Golf á Simola kl.08:30
17. feb. - Golf á Simola kl.08:30
18. feb. - Golf á Knysna Golf Club kl. 09:30 (um 5 mín. akstur frá hótelinu). Eingöngu hægt að spila með kylfusvein sem kostar 140 rand (um 2.300 kr.) eða ganga sjálfur með kerru.
19. feb. - Golf á Simola kl.08:30
20. feb. - Golf á Simola kl.08:30
21. feb. - Golf á Simola kl. 08:30
22. feb. - Eftir morgunverð kveðjum við Simola og ökum sem leið liggur til Fancourt um 1 klst. akstur, þar sem við gistum síðustu 4 nætur ferðarinnar. Fancourt (smellið á mínus flipann undir "click here to show text" og þá opnast hreifimyndir frá staðnum sem vert er að skoða).
Fancourt hefur verið valið "Besta Golf Resort" í heimi oftar en einu sinni - það segir allt sem þarf. Við munum gista í Manor House standard herbergjum sem eru smekklega innréttuð, rúmgóð og mjög notaleg.
Eftir innritun á hótelið eigum við rástíma á Montagu á Fancourt vellinum kl.14:00.
Það er skilyrði á Fancourt að hafa kylfusvein (verðið fer eftir gæðum kylfusveinsins sem valinn er, en þeir kosta frá 140 - 180 rand eða 2.300 til 3.000 kr.á hring) Einnig er hægt að leiga golfbíl á Fancourt sem kostar 320 rand (um 5,400 kr. á hring) en það er skilyrði að hafa 1 kylfusvein með í hverjum golfbíl.
23. feb. - Golf á Outeniqua, Fancourt kl.09:10
24. feb. - Golf á Montagu, Fancourt kl.09:00
25. feb. - Golf á Outeniqua, Fancourt kl.09:10
26. feb. - George flugvöllur er aðeins í 10 mín. akstursfjarlægð frá Fancourt. Flugið okkar til Johannesburg fer kl. 14:15 og lendir í Johannesburg kl.16:30. Áframhaldandi flug til London með South African Airlines er kl.21:45 og er lent í London kl.07:20 þann 27 feb.
Ágætt er að nefna að Jóhannesburg flugvöllur er glæsilegur. Þar er splunkuný bygging sem er með fjölmörg skemmtileg veitingahús og verslanir. Okkar biðtími þar verður ekki leiðinlegur.
27. feb. Flug heim til Íslands frá London með Icelandair er kl. 13.00 og lent í Keflavík kl.16.00
Verð:
749,500 kr. á mann í tvíbýli.
Aukagjald fyrir einbýli 225.500 kr.
Án golfs dregst frá 75.000 kr.
Innifalið:
Flug á almennu farrými (economy class) og flugvallarskattar.
Allur akstur á milli flugvalla, hótela og golfvalla í S. Afríku.
Flutningur á golfsetti ( Icelandair 3.900 kr. hvora leið, nema meðlimir í Icelandair Golfers, frítt.)
8 nætur á Hyatt hóteli Oubaai í deluxe herbergi með morgunverði og 250 rand (c.a.4,000) inneign á herbergi uppí drykki, hádegis- eða kvöldverð daglega.
1 golfhringur með golfbíl á komudegi og 6 dagar ótakmarkað golf með golfbíl á Ernie Els golfvellinum á Oubaai.
1 golfhringur með golfbíl á Pinnacle Point.
8 nætur í deluxe svítu á Simola Golf Resort með morgunverði.
6 golfhringir með golfbíl á Jack Nicklaus Signature golfvellinum á Simola.
1 golfhringur á Knysna Golf Club.
4 nætur með morgunverði á Fancourt í standard herbergi.
4 golfhringir á Fancourt.
Farastjórn.
Bókanir, staðfestingagjald og lágmarksfjóldi:
Eingöngu er hægt að bóka þessa ferð hjá golfdeild VITA í síma 5704458/9. Staðfestingagjald er 200,000 kr. á mann sem er óendurkræft.
Lágmarksfjöldi í þessa ferð er 20 manns, hámark er 28 manns.
HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR