Beint í leiðarkerfi vefsins.
Viku ferðir og tveggja vikna tvískiptar ferðir, þar sem dvalið er fyrstu vikuna á Valle Del Este og seinni vikuna á Mar Menor.
ATH: 40.000 kr.(óendurkræft, þegar vika er liðin frá bókun) staðfestingargjald til að festa ferðina og restina 6 vikum fyrir brottför. EINUNGIS ER ER HÆGT AÐ NOTA VILDARPUNKTA ÞEGAR FERÐIN ER BÓKUÐ Á NETINU. þegar bókað er á skrifstofu er bókunargjald 2.500 kr. á mann og ekki er hægt að nota Vildapunkta.
Þegar við hjónin ákváðum að fara á Mar Menor áttum við von á góðu hóteli og góðum golfvelli.
Það sem við fengum fór fram úr okkar björtustu vonum. Strax fyrsta daginn spiluðum við 9 holur og síðan liðu dagarnir alltof fljótt á þessum frábæra stað. Hótelið og umhverfi þess er glæsilegt, maturinn er sá langbesti sem við höfum fengið í nokkurri golfferð. Fararstjórn Peter Salmons, skipulagning og aðbúnaður til fyrirmyndar og ekki skemmdi fyrir að heimsækja Saurines golfvöllinn og upplifa t.d. hvernig það er að pútta á flötum sem eru líkastar því sem sést á PGA völlum.
Við hjónin þökkum fyrir frábæra ferð, með skemmtilegum hóp og það er öruggt að við ferðumst áfram með Vita ferðum eins og undanfarin ár.
Guðmundur Sigurvinsson og Kristín Dagný Magnúsdóttir GR. 25 apríl til 2 mái 2012
"Frábært Hótel með rúmgóðum herbergjum, flottum mat og góðri þjónustu. Í okkar huga vorum við ekki bara á fimm stjörnu Hóteli heldur vorum við einnig með fimm stjörnu fararstjórn undir handleiðslu Peters Salmon. Það var hugsað um okkur frá morgni til kvölds".
Jón S. Garðarsson og Anna S. Ásgeirsdóttir GR. Október 2011
Mar Menor er suður af af Alicante í Murcia héraðinu og u.þ.b. 100 km. frá flugvellinum í Alicente. Sjá kort
InterContinental Mar Menor Golf Resort & Spa er 5* lúxus hótel við fjölbreyttan 18 holur golfvöll.
Völlurinn er frekar opinn með breiðum brautum, vel staðsettum glompum og nokkrum vatna hindrunum. Það sem gerir völlinn ennþá skemmtilegri er gríðarleg fjölbreyttni og mismunandi erfitleikastuðull á milli brauta. Auðvelt er að ganga völlinn því hann er frekar flatur. Af hvítum teigum er völlurinn 6153m, frá gulum 5802 og af rauðum 5101m. Fyrsti teigur Mar Menor vallarins er beint fyrir utan hótelið. Fyrsti rástími á spiladögum er 08:50 á M. Menor.
Saurines golfvöllurinn verður spilaður einu sinni í viku. Þetta er glænýr völlur (opnaði í nóv. 2010), sannkölluð Jack Nicklaus perla. Þetta er eyðimerkurvöllur með mikið af séreinkennum eins og sandöldum og er virkilega þess virði að spreyta sig á. Fyrsti rástími á spiladögum er 08:30 á Saurines.
Sérlega glæsileg heilsulind hótelsins heillar eftir góðan 18 holu hring á golfvellinum. Golfskálinn ásamt lítilli golfverslun er í einum enda hótelsins og þar er veitingastaður og bar. Í 10 mín. göngufjarlægð er Spánskur veitingastaður sem heitir Tapas La Tropical sem býður sérlega góða tapas rétti og góða þjónustu. Við hlið hans er skemmtistaður/bar sem heitir Mombasa og þar er oft líflegt fram eftir nóttu.
Rétt utan við sundlaugagarðinn, við hlið Clove barsins, er hægt að ganga út úr hótelgarðinum og þá blasir við ágætis matvöruverslun og hraðbanki.
| Flugnr. | Áfangastaður | Brottför | Koma |
| FI 582 | Keflavík - Alicante | 07:30 | 14:00 |
| FI 583 | Alicante - Keflavík | 14:50 | 17:20 |

Splunkunýtt, glæsilegt 5* deluxe hótel það glæsilegasta sem gerist á þessu svæði með 18 holu golfvöll við bæjardyrnar. Við hótelið er góður sundlaugagarður með sundlaug og heilsulind hótelsins er í heimsklassa. Góður veitingastaður er á hótelinu og skemmtilegur írskur bar sem heitir "The Clove" þar er oft spiluð lifandi tónlist og sýnt frá íþróttaleikjum á skjá.