Beint í leiðarkerfi vefsins.
Golfvöllurinn á Portmarnock er dæmigerður linksvöllur frá náttúrannar hendi, hannaður af þýska kylfingnum Bernhard Langer. Árið 2009 var völlurinn kosinn besti völlur Írlands af Golf Digest tímaritinu.
Portmarnock er keppnisvöllur og hafa margir af frægustu kylfingum heims spilað völlinn. Þar hafa verið haldin mörg stórmót eins og "The Ladies Irish Open".
Hótelið, 4* er byggt af "Jameson Whiskey" fjölskyldunni og á sér sögu allt til ársins 1847. Í upphaflegu byggingunni er Jameson barinn þar sem kylfingar geta slappað af eftir golfhringinn. Á hótelinu er veitingastaður og bar. Herbergin eru vel búin öllum þægindum.
Flugupplýsingar
FI 1508 5. apríl Keflavík - Dublin 07:20 10:40 FI 1511 9. apríl Dublin - Keflavík 22:00 23:30
Frá flugvellinum í Dublin til hótelsins er u.þ.b. 20 mín akstur. Sjá kort
Fararstjóri í ferðinni er Signhild Borgþórsdóttir sem vinnur fyrst og fremst á skrifstofu VITAgolf og er mörgum farþegum okkur kunn eftir 16 ára starf. Signhild fór með hóp til Írlands um páskana í fyrra og fékk besta páksaveður sem komið hefur í mörg ár.