Beint í leiðarkerfi vefsins.
Erum að vinna í 17 og 22 daga pakka í jan. og feb. 2013 sem við stefnum á að setja í sölu í júní.
Þessar ferðir er eingöngu hægt að bóka á skrifstofu VITAgolf sími: 570 4458. Við bókun greiðist 150.000 kr. staðfestingargjald á mann (óendurkræft). Eftirstöðvar þarf að greiða í síðasta lagi 6 vikum fyrir brottför.
Vildarpunktar eru ekki í boði.
Ferðin til Mexico var stórkostleg í alla staði. Heima golfvöllurinn var 27 holur með fjölbreyttum brautum og grínin voru stór og góð. Fórum einnig á magnaðan völl sem liggur að hluta með ströndinni, það var mikil upplifun. Golfið var frábært. Þetta er í fyrsta sinn sem ég hef haft kylfusvein og var fljótur að venjast því. Það sem kom okkur skemmtilega á óvart er hvesu heimamenn eru vingjarnlegir, þjónustan frábær, þjónar á hverju strái og allt innifalið, maður verður þó að muna eftir að gefa þjórfé. Maturinn var mjög góður og maturinn á klúbbhúsinu er betri en maður á að venjast í klúbbhúsum erlendis. Það kom einnig á óvart hvað veðrið var gott 20-25 stiga hiti og sól allan tímann og engar flugur. Þetta er langt ferðalag en er þess virði. Tímasetningin frábær, komast í golf og sólina þegar það er hávetur á Íslandi.
Ásgeir Ásgeirsson feb. 2012
Það var með nokkuri eftirvæntingu sem við fórum í ferðin til Mexíkó í feb. 2012. En við urðum ekki fyrir vonbrigðum. Öll aðstaða var frábær og fólkið sérstaklega almennilegt. Hægt var að velja um 6 veitingastaði sem allir voru mjög góðir en matur og drykkir voru innifaldir í ferðinni. Mazatlan í Mexíkó er staður sem hiklaust er hægt að mæla með.
Gissur Jóhannsson og Gyða Þórðardóttir GR
Flug með Icelandair til og frá Seattle með sköttum.
Gisting í eina nótt á flugvellinum í Seattle
Flug með Alaska Airlines til og frá Mazatlan með sköttum
Akstur á milli flugvalla og hótela í Mazatlan
Gisting í Mazatlan
"*Allt innifalið - sjá skýringu hér fyrir neðan"
Fjóra daga vikunnar er ótakmarkað golf á El Cid golfvellinum, með flutningi frá hóteli (ca.5 mín.)
Einu sinni í viku 18 holur á Marina Golf með golfbíl og flutningi frá hóteli (ca. 5 mín.)
Einu sinni í viku 18 holur á Estrella með golfbíl og flutningi frá hótelinu (ca. 40 mín.)
Gisting í tvær nætur í miðbæ Seattle.
Fararstjórn
*"ELITE allt innifalið" er ekki venjulegur "allt innifalið" pakki. "ELITE allt innifalið" þýðir allur matur m.a. risarækjur, humar, sushi, dýrustu steikar bitarnir. allir innlendir drykkir og þekkt erlend vörumerki eins og Jameson viskí, Smirnoff vodka og Budweiser bjór er í boði án viðbótargjalds á öllum El Cid hótelunum, öllum sundlaugabörum og strandbörum tengdum þeim og í klúbbhúsinu á El Cid golfvellinum. (herbergisþjónusta er ekki innifalin).
Hér fyrir neðan eru nokkrir matseðlar og vínlisti til að kynna hversu mikil fjölbreyttnin er.
Ath. Þetta eru einungis sýnishorn af framboði sem getur breyst án fyrirvara.
Ekki innifalið:
Á El Cid golfvellinum:
Golfkerra - kostar 8 USD fyrir daginn.
Golfbíll - kostar 20 USD á mann á hring.
Kylfusveinn - kostar 20 USD hringinn+þjórfé ca. 10 USD.
ATH! ekki er gerð krafa um kylfusvein né golfbíl til að spila El Cid völlinn.
Drykkir og veitingar á golfvöllunum.
Herbergisþjónusta á hótelinu er ekki innifalin.
Greiða þarf fyrir farangur og golfsett hjá Alaska Airlines (20 USD stk. hvora leið, greiðist við innritun)
Flutningur á golfsetti með Icelandair (frítt fyrir meðlimi í Icelandair Golfers)
Akstur frá flugvellinum í Seattle á hótel í miðbænum
Morgunverður á hótelum í Seattle
"Í febrúar 2011 gisti ég í viku á El Cid Marina Beach hótelinu í Mazatlan, Mexíkó. Mazatlan er notalegur, heimilislegur og skemmtilega "sveitó" - mér leið rosalega vel þar allan tímann. Mexíkanar eru einstaklega vingjarnlegt fólk, golfvellirnir fjölbreyttir og skemmtilegir og veðrið var alveg dásamlegt. Ég tel að Mazatlan sé mjög skemmtilegur og spennanadi vetraráfangastaður fyrir okkar viðskiptavini. Ég er viss um að það er ekki hægt að bjóða sambærilegan pakka, fyrir sama verð, annars staðar í heiminum. Það er hreint ótrúlegt hvað er innifalið í þessari ferð".
Peter Salmon
El Cid samanstendur af 4 hótelum og El Cid Golf and Country Club golfvellinum og klúbbhúsinu. Þau eru öll í aðeins í 5 mín. fjarlægð hvort frá öðru og ókeypis skutlbíll gengur á milli.
Í kringum El Cid hótelin er mikið ferðamannalíf en aðeins 10 mín. frá er hinn mexikanski bær Mazatlan. Í Mazatlan er hægt að finna hina táknrænu mexikósku menningu og hið daglega líf innfæddra.
Hér er hægt að lesa meira um Mazatlan. Dagana 16. - 21. febrúar 2012 er eitt mest sótta "Carnival" í Mexíkó og okkur er sagt að það séu mikil forréttindi að fá að vera í Mazatlan á þessum dögum.
Í ferðinni spilum við 3 golfvelli. El Cid Country Club sem er fjölbreyttur og skemmtilegur 27 holu völlur þ.a. 18 holu skógarvöllur og nýjasti hlutinn sem eru 9 holur umkrindar vatni hannaðar af Lee Trevino sjálfum er ekki síður skemmtilegar. Golf Marina sem er innan við 5 mín. frá hótelinu er splunkunýr 18 holu völlur algjör andstaða við El Cid völlinn því að Golf Marina er gerður af manna höndum meðan El Cid er byggður í ósnortinni náttúru. Þriðji völlurinn, Estrella del Mar er í u.þ.b. 40 mín. aksturs fjarlægð frá hótelinu, er stórkostlegur golfvöllur, fallega staðsettur við ströndina með einstöku útsýni yfir Kyrrahafið af mörgum brautum vallarins.
Gaman er að nefna að El Cid hótelkeðjan rekur stæsta skoðunarferðafyrirtækið í Mazatlan sem heitir Pronatours og er staðsett á okkar hóteli. Margar spennandi og áhugaverðar ferðir eru í boði. Snemma í ferðinni verður Peter með bæjarferð til Mazatlan sem er algjörlega ómissandi (ekki innifalið). Á Marina Beach hótelinu eru leikhúskvöld sjá upplýsingar
Upplýsingar um öryggi í Mexikó.
Frá flugvellinum í Mazatlan á hótel El Cid Marina Beach er 40 mín. akstur. Sjá kort
Veðurspá
Flugáætlun:
04. febrúar FI 681 Keflavík - Seattle 16:55 - 16:40
05. febrúar AZ 0210 Seattle - Mazatlan 10:05 - 15:20
18. febrúar AZ 0205 Mazatlan - Seattle 14:55 - 18:30
20. febrúar FI 680 Seattle - Keflavík 15:30 - 06:45+1 (daginn eftir)
26. febrúar AZ 0205 Mazatlan - Seattle 14:55 - 18:30
28. febrúar FI 680 Seattle - Keflavík 15:30 - 06:45+1 (daginn eftir)
ATH. Allir Íslendingar þurfa vegabréfsáritun til Bandaríkjanna. Sjá leiðbeiningar.
Það þarf ekki vegabréfsáritun til Mexíkó.
Nokkrum dögum fyirr brottför mun Peter halda kynningarfund um ferðina og fara yfir ýmis hagræn atriði er varðar ferðina.

El Cid Marina Beach hótel er við ströndina í Marina hverfinu í Mazatlan. Beint fyrir utan hótelið er falleg smábátahöfn. Við hótelið eru 2 góðir sundlaugagarðar og kyrrlát einkaströnd. Á hótelinu er bar, veitingastaður, matvöru- og minjagripaverslun og læknastofa.