"Golf and the city"!

"Golf and the city"!

Köben kallar - alvöru golf við alvöru borg!

Fimmtudag - sunnudags:

  • 26. - 29. apríl - 3 nætur - 4 golfhringir - UPPSELT
  • 03. - 06. maí - 3 nætur - 4 golfhringir - UPPSELT
  • 10. - 13. maí - 3 nætur - 4 golfhringir (stelpuferð)*
  • 17. - 20. maí - 3 nætur - 4 golfhringir
  • 25. - 28. maí - 3 nætur - 4 golfhringir - Föstudagur - mánudags (hvítasunnan)


*Fararstjóri í stelpuferðinni er Anna Björk Birgisdóttir. Hún er að skipuleggja dagsskrá fyrir þessa skemmtilegu ferð og mun hún liggur fyrir þegar nær dregur. Anna Björk spilaði völlinn í haust og gisti á hótelinu og var yfir sig hrifin af hvoru tveggja.  Ef einhverjar spurningar vakna um ferðina er hægt að senda tölvupóst til Önnu: annabb@mmedia.is

Innifalið:
  • Beint flug með Icelandair út kl. 07:45 - 12:45, heim 19:45 - 20:55
  • Flugvallaskattar
  • Gisting
  • Morgunverður
  • 18 holur á dag með golfkerru
Ekki innifalið:

Akstur til og frá flugvelli, (leigubíll aðra leið kostar u.þ.b. 145 DKK.)
Fararstjóri (nema í stelpuferð)

Þrátt fyrir að Royal Golf Club í Köben sé krefjandi völlur er hann rosalega skemmtilegur og frábærlega vel hannaður. Völlurinn er mjög snyrtilegur og öll umgjörð er til fyrirmyndar. Að hafa hið glæsilega Bella Sky hótel hinu mengin við götuna og miðbæinn u.þ.b. 10 mín frá gerir þessar ferðir alvöru "golf and the city". Við hjá VITAgolf erum afar stolt að geta boðið eins glæsilegar og spennandi helgarferðir eins og þessar. God fornøjelse!
Peter Salmon, framkvæmdastjóri VITAgolf

Í samvinnu við stjórnendur "Royal Golf Club Copenhagen", hefur VITAgolf gert einstakan samning fyrir íslenska kylfinga. Beint á móti golfklúbbnum og hinum megin við götuna er hótelið sem gist verður á, hið glæsilega 23 hæða hótel Bella Sky. Það tekur innan við 10 mín. að keyra frá flugvellinum á hótelið. Akstur frá hótelinu og niður í miðbæ tekur u.þ.b. 10 mín. í leigubíl. Einnig er hægt að taka Metro og er stoppistöð á bakvið hótelið, ferðin tekur u.þ.b. 10 mín.

Um Royal Golf Club:

Royal Golf í Köben sem opnaði í maí 2010 er kærkomin nýjung fyrir borgina. The Royal Championship völlurinn á Royal Golf Club er mjög skemmtilegur og einstaklega vel hannaður. Hann er krefjandi vegna þröngra brauta og mikið landslag er á flötum. Það er nokkuð óvenjulegt, en samt mjög sniðugt, að það eru 6 teigar í boði frá 6.600m á aftasta teig niður í 4.316m á fremsta teig. Völlurinn er flatur og auðveldur í göngu en þrátt fyrir það er engin braut eins sem undirstrikar frábæra hönnun vallarins, enda spennandi að mæta á hvern teig. Til viðbótar við þennan glæsilega golfvöll er fallegt klúbbhús, stórt æfingasvæði og golfverslun á tveimur hæðum.

Royal Golf í Köben er í mjög háum gæðaflokki og útskýrir hið almenna flatargjald sem er um 22.000 kr. fyrir hringinn! Við hliðina á Championship vellinum er 9 holu völlur sem heitir City golf. Á þeim velli er mikil umferð og það er mjög erfitt að fá rástíma.

Rástímar:
Komudagur        Frá kl. 15:00
Dagur 1             Frá kl. 08:30
Dagur 2             Frá kl. 09:00
Brottfarardagur  Frá kl. 11:00

Ferðirnar eru án fararstjóra. Þegar farþegar koma á hótelið á fyrsta degi og eru búnir að ganga frá farangrinum á herbergi, liggur leiðin á golfvöllinn sem er hinu megin við götuna. Fulltrúi golfklúbbsins mun taka á móti okkar gestum og útvegar þeim rástíma fyrsta hringinn. Gestir bera ábyrgð á því að melda sig í klúbbhúsinu í frátekna rástíma fyrir hvern dag sem VITAgolf hefur tekið frá. Hægt er að geyma golfsettið í klúbbhúsinu meðan á dvöl stendur.

Á síðasta degi eftir morgunverð og útritun af hótelinu mælum við með að gestir fari með farangur í klúbbhúsið þar sem aðstaða er til að fara í sturtu, skipta um föt, og hoppa uppí leigubíl fyrir heimflug.

Hámarksfjöldi í hverri ferð eru 24 manns nema í stelpuferðinni þá er pláss fyrir 36 hressar stelpur.


Gististaðir - "Golf and the city"!

Bella Sky Hotel 

Bella Sky hótel er stórkostlegt háhýsi sem er kennileiti í nýjum bæjarhluta Kaupmannahafnar Örestaden. Bella Sky er stærsta hótel skandinavíu, 23 hæðir og 812 glæsileg, nýtískuleg herbergi í norrænum stíl. Húsgögnin eru frá þekktum hönnuðum og er hvert herbergi með gluggum sem varpa einstakri byrtu inná hvert herbergi með tilheyrandi ljósadýrð.

(+)nánar

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar