Beint í leiðarkerfi vefsins.
Einstakt tækifæri sem enginn má missa af! Golfferð til Madeira 22.-31. okt. í beinu leiguflugi með Icelandair. 5* lúxus hótel og einstaklega fallegur 18 holu golfvöll við bæjardyrnar. Miðbær Funchal er aðeins í 10 mínútna akstursleið frá hótelinu. Verð
ATH: 40.000 kr.(óendurkræft, þegar vika er liðin frá bókun) staðfestingargjald til að festa ferðina og restina 6 vikum fyrir brottför. EINUNGIS ER ER HÆGT AÐ NOTA VILDARPUNKTA ÞEGAR FERÐIN ER BÓKUÐ Á NETINU. þegar bókað er á skrifstofu er bókunargjald 2.500 kr. á mann og ekki er hægt að nota Vildapunkta.
Við undirituð fórum í 10 daga ferð til Madeira með VITAgolf 10. Apríl. Ferðin á eftir að verða okkur mjög minnisstæð. Fararstjórnin var til fyrirmyndar hjá Þórdísi Geirs. Golfvöllurinn sem við spiluðum er mjög fallegur í um 500 metra hæð yfir sjávarmáli með mikið landslag í brautum og flötum. Golfskálinn er skemmtilegur og útsýnið alveg stórkostlegt, en þaðan sást vel yfir borgina. Hótelið er skemmtilegt, lítið, friðsælt og öll þjónusta til fyrirmyndar. Þriggja rétta kvöldverðirnir í pakkanum voru hver öðrum betri. Við getum með sanni mælt með golfferð til Madeira. Peter Salmon hefur þarna hitt í mark, bara frábært.
Andrés Ágúst Guðmundsson og Sædís Guðmundsdóttir (GVS)
Hin portúgalska eldfjallaeyja, Madeira liggur vestur af ströndum Afríku og er heimur út af fyrir sig. Hitabeltisloftslag, friðsæld, náttúrufegurð, veðursæld og fjölbreytt mannlífið er heillandi. Frá flugvellinum í Madeira er aðeins 15 mínútna akstur að Palheiro 5* lúxushótelinu sem okkar gestir gista á í þessari ferð. Sjá kort
Hotel Casa Velha do Palheiro er 5* lúxushótel í ekta portúgölskum/enskum byggingastíl. Á hótelinu er rólegt og yfirvegað andrúmsloft um leið og lúxus og þægindi blandast saman. Veitingastaður hótelsins er þekktur fyrir einstaklega góðan mat. Þrátt fyrir góðan mat á hótelinu er ekki hægt að sleppa ferð í miðbæ Funchal, aðeins 10 mínútur frá hótelinu (ókeypis skutlbíll), til að upplifa bæjarstemmninguna og veitingahús þau þrjú kvöld sem matur er ekki innifalinn.
Við hótelið er einstakur blóma- grasagarður með blóm og jurtir allstaðar að úr heiminum. 45 þúsund gestir heimsækja garðinn á hverju ári.
Palheiro 18 holu golfvöllurinn er fallegur, vel hirtur með einstöku útsýni yfir bæinn Funchal og hafið. Völlurinn er hæðóttur og við mælum eindregið með að pantaður sé golfbíll þegar ferðin er bókuð. Golfbíll kostar 135 evrur (ca. 22.000 kr. á mann) m.v. tvo í bíl ótakmarkað í 10 daga. Klúbbhúsið og fyrsti teigur er u.þ.b. 3ja mínútna akstur frá í skutlbíl sem gengur frá hótelinu. Til viðbótar við aðal völlinn er skemmtilegur 6 holu æfingavöllur sem heitir "The Academy Course". Holurnar 6 eru 15,25,30,75,152, og 302 metra á lengd.
Flugupplýsingar
| FI 1518 | 22. okt | Keflavík - Funchal | 16:15 | 21:55 |
| FI 1519 | 31. oktl | Funchal - Keflavík | 14:10 | 19:00 |

Hotel Casa Velha do Palheiro er 5* lúxushótel með 37 einstökum herbergjum. Við hótelið er 18 holu glæsilegur golfvöllur með unaðslegu útsýni yfir Funchal borgina og til sjávar.
Einnig umlikur hinn frægi 200 ára gamli Palheiro grasagarðurinn hótelið í allar áttir. Gestir hótelisins geta skoðað garðinn án endurgjalds.
Veitingastaður hótelsins þykir mjög góður og huggulegur barinn er í aðal byggingunni. Sundlaugagarður með upphitaðri laug, heilsurækt með sauna, gufubaði og tækjasal er fyrir gesti að kostnaðarlausu.