Beint í leiðarkerfi vefsins.
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein af ástæðunum fyrir því er að fáir ferðast jafn mikið og fólk á þessum aldri en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
Þess vegna stofnaði VITA ferðaklúbbinn Gott fólk 60+ með það að markmiði að bjóða lífsglöðum ferðalöngum á allra besta aldri hagstæðar ferðir og góða þjónustu. Félagar í klúbbnum fá 5.000 kr. afslátt af völdum ferðum sem VITA skipuleggur á vegum klúbbsins auk áskriftar að ársfjórðungslegu fréttabréfi.
Í ferðum á vegum klúbbsins eru skemmtanastjórar. Þeir sjá til þess að ferðalangar hafi sífellt eitthvað skemmtilegt fyrir stafni. Sem dæmi má nefna göngutúra og spilakvöld þar sem tekið er í spil eða spilað er bingó. Skemmtikvöld eru aldrei langt undan þar sem hópurinn fer út að borða og dansar saman. Að sjálfssögðu eru reglulegir leikfimistímar með æfingum við allra hæfi til að liðka og hressa upp á líkamann. Dagskrá skemmtanastjóra getur verið misjöfn eftir ferðum og hvað er í boði á hverjum stað, en víst er að hún er ávalt fjölbreytileg og skemmtileg.