Tenerife - Gott fólk 60+

Tenerife - Gott fólk 60+

Ferð 17. - 31. janúar í 14 nætur.

Farþegar geta valið á milli tveggja gististaða, Parque Santiago og H10 Conquistado.

Skemmtanastjóri er Hjördís Geirsdóttir

Einstök veðursæld!

Eyjan Tenerife er vinsæll ferðamannastaður með einstaka veðursæld og góðan aðbúnað. Evrópubúar flykkjast þangað allan veturinn. Mikið úrval er af góðum hótelum og veitingastöðum, verslanir eru á hverju strái og nánast allt við hendina.


Tenerife er skemmtileg blanda af ferðamannastað þar sem allt er til alls, auk þess blómstrar hin spænska menning heimamanna með tilheyrandi matargerð, mannlífi og fallegum arkitektúr.


Sól og sandur er auðvitað í stóru hlutverki á Tenerife og það er engin tilviljun að Íslendingar kjósa að fara þangað aftur og aftur. Þannig að vertu viss um að gleyma ekki sundfötunum og sólarolíunni - en mundu jafnframt að Tenerife hefur upp á svo margt annað að bjóða líka.

Um Tenerife

Tenerife tilheyrir eyjaklasa Kanaríeyja og er sú stærsta þeirra. Eyjarnar mynduðust fyrir þremur milljónum ára í eldgosi, en á Tenerife er eldfjallið Teide, sem gaus síðast árið 1909. Teide er hæsta fjall Spánar og gnæfir tindurinn upp í 3,7 km hæð og setur mikinn svip á landslagið.


Tenerife er í ekki nema rúmlega 300 kílómetrar fjarlægð frá Sahara-eyðimörkinni en hitinn er nú sem betur fer mun mildari og þægilegri en þar. Höfuðborgin heitir Santa Cruz de Tenerife og er jafnframt fjölmennasta borgin. Gististaðir VITA eru allir á suðurströndinni í strandbæjunum Las Americas og Costa Adeje, sem liggja saman.

Parque Santiago

17. - 31. janúar í 14 nætur
Verð frá 165.850 kr.* og 15.000 Vildarpunktar
á mann m.v. 2 í stúdíóíbúð.
*Verð án Vildarpunkta: 175.850 kr.
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting og íslensk fararstjórn.

H10 Conquistado

17. - 31. janúar í 14 nætur
Verð frá 196.188 kr.* og 15.000 Vildarpunkar
á mann m.v. 2 í herbergi
*Verð án Vildarpunkta 206.188 kr.
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting og íslensk fararstjórn.

 
 

H10 Conquistador 

H10 Conquistador er gott  fjögurra stjörnu hótel, vel staðsett á Playa de las Américas. Hótelið telur sex hæðir, hefur 448 herbergi og stendur við strönd. Við hótelið er fallegur garður, með tveimur sundlaugum, barnalaug, leiksvæði fyrir börn, snakkbar og veitingastað.

(+)nánar

Parque Santiago  

Gott og eftirsótt íbúðahótel á líflegum stað við Playa de las Americas ströndina á Tenerife. Þar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Fjölskyldufólk og ungt fólk á öllum aldri unir sér í frábærum sundlaugargörðum, við ströndina og svo er örstutt að skreppa í búðir á veitingastaðinn eða hvert annað sem hugurinn leitar.

(+)nánar

Kort af gististöðum

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar