fbpx Barceló Margaritas, Playa del Inglés | Vita

Barceló Margaritas, Playa del Inglés
4 stars

Vefsíða hótels

Barceló Margaritas hótelið var allt enduruppgert árið 2022. Hótelið er vel staðsett á ensku ströndinni og býður upp á tvær útisundlaugar barnasundlaug, líkamsræktarstöð og Crossfit undir berum himni með einkaþjálfara. Boðið er uppá skemmtidagskrá á daginn og á kvöldin. Einnig er í boði ókeypis strætó til Maspalomas- og Playa del Inglés strandanna. Maspalomas golfvöllurinn er 2,2 km frá hótelinu og Playa del Ingles ströndin er í 1,9 km fjarlægð.

Á hótelinu eru samtals 322 herbergi, hjónaherbergi 35fm sem leyfir mest 3, fjölskylduherbergi 45fm sem leyfir mest 3 fullorðna og 1 barn og hjónaherbergi Deluxe 45fm sem er eingöngu fyrir fullorðna. Öll herbergin eru innréttuð með einföldum en fallegum innréttingum. Öll gistirýmin eru með loftkælingu og gervihnattasjónvarpi.

Hótelið er með hlaðborðsveitingastað sem framreiðir alþjóðlegan mat. Hægt er að velja um hálft fæði eða allt innifalið.
Hálft fæði innifelur morgunverð og kvöldverð.
Allt innifalið innifelur morgunverð, hádegisverð og kvöldverð af hlaðborði, alla drykki á opnunartíma og snakk.

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: 30 km
  • Frá strönd: 1,9 km
  • Veitingastaðir: Allt um kring

Aðstaða

  • Sturta
  • Sundlaug
  • Barnasundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Barnaleiksvæði
  • Gestamóttaka
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Þráðlaust net

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka
  • Herbergi

Fæði

  • Allt innifalið, Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun