fbpx Dynastic hotel, Benidorm | Vita

Dynastic Hotel
4 stars

Vefsíða hótels

Fjögurra stjörnu hótel rétt hjá hótel Melia Benidorm sem margir þekkja. Levante ströndin er aðeins í 5-7 mínútna göngufjarlægð og allt um kring má finna iðandi mannlíf og úrval veitingastaða.

Á hótelinu er góð aðstaða eins og glæsileg heilsulind þar sem m.a er stór innisundlaug, líkamsræktaraðstaða, nuddpottur og ýmislegt fleira.  Móttakan er opin 24 klst.

Þarna er einnig veitingastaður, snarl-bar ásamt píanóbar, hárgreiðslu- og snyrtistofa, barnaklúbbur og barnaleiksvæði svo eitthvað sé nefnt.

Garðurinn er ekki stór en þar eru tvær útisundlaugar og ágætis sólbaðsaðstaða.

Öll herbergi eru fallega innréttuð og eru með sjónvarpi, síma, öryggishólfi, loftkælingu og litlum ísskáp. Baðherbergi eru með hárþurrku og helstu snyrtivörum.  Í boði eru bæði tvíbýli classic og superior eða fjölskylduherbergi sem hentar vel tveimur fullorðnum og tveimur börnum.  

Hægt er að velja um að vera með eingöngu morgunmat innifalinn, hálft fæði eða allt innifalið. Allur matur er reiddur fram af hlaðborði.

Góður kostur fyrir fjölskyldur og þá sem vilja vera með allt innifalið.

Fjarlægðir

  • Frá strönd: 600 metrar

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun