fbpx My Story Hotel Augusta | Vita

My Story Charming Hotel Augusta
3 stars

Vefsíða hótels

My Story Hotel Augsta er gott 3 stjörnu hótel á mjög góðum stað í miðbæ Lissabon. Hótelið er við Augusta Street, einni fallegustu göngugötu borgarinnar. Hótelið var opnað og endurgert árið 2018. Á hótelinu er bar og veitingastaður þar sem morgunverðarhlaðborðið er, ásamt alþjóðlegum réttum í hádegisverð og kvöldverð. 

Herbergin eru 46 talsins, þau eru frekar lítil en snyrtileg og vel búin með sjónvarpi,loftkælingu og smábar. Herbergin eru hljóðeinangruð til að tryggja gestum góða hvíld.  Á baðherberginu er sturta, hárþurrka og sápur frá RITUALS.  Frítt þráðlaust internet.

São Jorge’s kastalinn er í um 15 min fjarlægð. Helstu viðkomustaðir og kennileiti sem þarf að heimsækja í borginni eru í grenndinni og aðeins er um fimm mínútna ganga í næstu neðanjarðarlestarstöð.

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: 30 mín

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunmatur

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun