fbpx Wonder of the Seas | Vita

Wonder of the Seas
5 stars

Vefsíða hótels
  • pin Created with Sketch.

Wonder of the Seas er í fimmta skipið  " flokknum Oasis Class“  hjá skipafélaginu Royal Caribbean Cruise Line, en honum tilheyra stærstu skemmtiferðaskip heims. Þau eru orðin sex í þessum flokki og er Wonder of the Seas næst stæðst og nýjast . Skipin eru fljótandi ævintýraheimur þar sem ýmsar nýjungar sjá dagsins ljós eins og garðinn friðsæla Central Park um miðbik skipsins með kaffihúsum og veitingastöðum. Afturþilfarið Boardwalk minnir á Tivolí með hringekju, ísbúð og ekta amerískum „Diner“. Vatnleikhúsið Aquapark er aftast á skipinu og er undravert að horfa á meistara í dýfingum sýna listir sínar undir fögrum tónum. Vel er hugsað um fjölskyldur og bæði krakkar, unglingar og fólk á öllum aldri geta leikið sér og spreytt sig í ævintýraþrautum, klifurveggjum, öldulaugum og hverju sem hugurinn girnist. Veitingastaðir og kaffihús, þar á meðal Starbucks. Einnig er göngugatan Royal Promenade og þar má finna m.a. kaffihús,pizzastað, pub auk verslana. Svo ekki sé minnst á Stúdíó B sem er skautasvell þar er hægt að fara á skauta auk glæsilegra sýninga á meðan á siglingu stendur. 

Wonder of the Seas  fór í sína jómfrúarferð í janúar 2022. Skipið er 236.857 lestir og um 362,12 metrar á lengd og með rými fyrir allt að 6.410 farþega. Áhöfnin telur tæplega 2400 manns. Heilsulindin Vitality at Sea, Spa & Fitness Center býður uppá allt hugsanlegt dekur og að sjálfsögðu fylgir tækja- og íþróttasalur. Spilavíti, verslanir og alls 20 barir og veitingastaðir.

Klefarnir eru alltaf með tveimur rúmum sem hægt er að hafa saman eða setja náttborð á milli og hafa þannig tvö rúm og einnig klefar fyrir allt að fjórum farþegum, þá tveir fullornir og tvö börn.Flestir eru þeir með setkrók með sófa og skrifborði, kæliskáp (hægt að panta drykki gegn gjaldi og nota sem smábar), öryggishólfi og sjónvarpi. Hægt er að bóka skoðunarferðir, horfa á kvikmyndir og panta herbergisþjónustu í klefann í gegnum sjónvarpið. Baðherbergi er með sturtu, snyrtivörum, baðsloppum og hárþurrku. Herbergisþjónusta er opin allan sólarhringinn.

Á sundlaugarþilfarinu eru fjöldinn allur af sundlaugum og heitum pottum ásamt stóru skemmtilegu barna sundlaugar svæði. Líf og fjör er við sundlaugarnar alla daga og fram á kvöld þar sem reggie tónlistinn ræður völdum á meðan þjónarnir bjóða upp á litskrúðuga karíbahafs koktaila. 

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Sundlaugabar
  • Barnasundlaug
  • Líkamsrækt
  • Heilsulind
  • Bar
  • Veitingastaður
  • Skemmtidagskrá

Vistarverur

  • Herbergi
  • Minibar
  • Loftkæling
  • Öryggishólf
  • Sjónvarp
  • Hárþurrka

Fæði

  • Fullt fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun