Beint í leiðarkerfi vefsins.

Hótel Somont er fallegt fjögurra stjörnu hótel, ofarlega í bænum Selva. Það er frábærlega vel staðsett við skíðabrekku sem liggur frá einu stærsta skíðasvæðinu niður í miðbæ.

Hótel Savoy er nýlegt og einstaklega glæsilegt hótel þar sem dekrað er við hótelgesti. Staðsetning er frábær og hægt að skíða frá hótelinu í næstu lyftu og renna sér beint heim í lok dags.

Glæsilegt og nýlega uppgert fjögurra stjörnu hótel sem hefur notið mikilla vinsælda hjá Íslendingum síðustu ár. Hótelið er stórt og tilkomumikið og allur aðbúnaður er fyrsta flokks. Hótel Oswald er við aðalgötuna í Selva.

Mjög gott fjögurra stjörnu hótel sem er staðsett miðsvæðis í Selva, beint á móti Ciampinoi-lyftunni. Óhætt er að fullyrða að allar vistarverur séu hinar glæsilegustu á Aaritz og er hótelið tilvalið fyrir þá sem vilja virkilega dekra við sig á meðan dvölinni stendur.

Hótel Garni Dolomié þriggja stjörnu plús og er er einkar vel staðsett rétt. Er steinsnar frá skíðabrekku sem liggur frá einu stærsta skíðasvæðinu niður í miðbæ.

Hótel Garni Giardin er notalegt þriggja stjörnuSuperior hótel sem er staðsett ofarlega í Selva. Það er vel staðsett við eina vinsælustu skíðabrekkuna sem liggur frá stærsta skíðasvæðinu niður í miðbæ. Hótelið var allt endurnýjað árið 2006.

Hótel Garni Miara er gullfallegt þriggja stjörnu hótel við Freina skíðabrekkurnar, 50 metra frá skíðalyftu. Fimm mín gangur er í miðbæ Selva og hægt að skíða heim.

Des Alpes er stórt 3ja stjörnu hótel við aðalgötuna í Selva. Það er við hliðina á hótel Armin og um 400 metrar eru að skíðakláfnum Ciampinoi. Skíðarútan stoppar um 50 metra frá hótelinu.

Hótel Linder er mjög huggulegt þriggja stjörnu hótel sem er vel staðsett í miðbæ Selva og er tveggja mín. gangur að Ciampinoi skíðalyftunni. Hótelið er fjölskyldurekið og tekur hlýlegt og heimilislegt viðmót á móti gestum við komu.

Gott þriggja stjörnu „superior" hótel þar sem eigendur hótelsins, Armin fjölskyldan hugsaa af einstakri natni um gesti sína. Hótel Armin er við aðalgötuna í Selva og um 400 metrar eru að Ciampinoi kláfnum, sem gengur upp á skíðasvæðið í Selva. Hótelið er með litla hótelskutlu og geta gestir pantað far með bílnum.

Stórfínt þriggja stjörnu hótel sem er á frábærum stað í Selva, rétt við kennslubrekkurnar. Það er ekki ofsögum sagt að það megi beinlínis skíða út og inn af hótelinu - svo nálægt brekkunum er það. Á hótel Serena fæst þægileg gisting á góðu verði.
Europa er 2ja stjörnu fjölskyldurekið pension á besta stað í Selva, staðsett gegnt skíðakláfnum Ciampinoi.