Aaritz

Aaritz

Mjög gott fjögurra stjörnu hótel sem er staðsett miðsvæðis í Selva, beint á móti Ciampinoi-lyftunni. Óhætt er að fullyrða að allar vistarverur séu hinar glæsilegustu á Aaritz og er hótelið tilvalið fyrir þá sem vilja virkilega dekra við sig á meðan dvölinni stendur.

Hótelstjórinn leggur allt kapp á að skapa þægilegt og afslappandi andrúmsloft og má segja að gestir upplifi þá stemningu um leið og gengið er inn í móttökusal hótelsins, en þar er stór og notaleg setustofa þar sem ávallt er kveikt upp í arninum þegar hótelgestir koma heim af skíðum og úrval drykkja er á hótelbarnum. Frá setustofunni liggur glæsilegur stigi uppí veitingasalinn, sem er á 2.hæð hótelsins.

Maturinn á hótelinu þykir mjög góður en hálft fæði er innifalið í gistingunni. Hægt er að velja á milli tvenns konar herbergja. Annars vegar er hægt að fá hefðbundið tveggja manna herbergi sem er mjög makindalegt og stílhreint. Hins vegar er hægt að fá betra herbergi (superior) sem eðlilegra er stærra og betur útbúið. Með aukarúmum gesta mest fjórir gestir gist í einu og sama herberginu.

Öll önnur aðstaða á hótelinu er fyrsta flokks. Á hótelinu er líkamsræktaraðstaða, ágæt sundlaug, sauna, blautgufa og hvíldarherbergi.

Fjarlægðir

Miðbær:
Í miðbænum
Lyfta:
10 m
Veitingastaðir:
Á hóteli og allt um kring
Matvöruverslanir:
100 metrar

Aðstaða

Fjöldi hæða:
5
Gestamóttaka:
Líkamsrækt:
Heilsulind:
Veitingastaðir:
Nettenging:
Já gegn gjaldi
Lyfta:
Bar:
Innilaug:

Vistarverur

Herbergjategund:
Hótelherbergi
Fæði:
Morgunverður og kvöldverður
Svalir/Verönd:
Sjónvarp:
Sími:
Nettenging:
Í premium og confort herb
Hárþurrka:
Öryggishólf:
Minibar:
Skipt á rúmum:
2 x í viku
Handklæðaskipti:
7 x í viku
Þrif:
7 x í viku

Heimilisfang

via Meisules
229-I-39048 Selva Gardena
Italy


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar