Oswald

Oswald

Glæsilegt og nýlega uppgert  fjögurra stjörnu hótel sem hefur notið mikilla vinsælda hjá Íslendingum síðustu ár. Hótelið er stórt og tilkomumikið og allur aðbúnaður er fyrsta flokks.  Hótel Oswald er við aðalgötuna í Selva.

Herbergi hótelsins eru afar hlýleg og hönnuð þannig að falleg viðarhúsgögnin fá að njóta sín. Hægt er að fá herbergi fyrir allt upp í fjóra gesti. Þess má geta að kæliskápar eru inni á öllum herbergju, en herbergin voru öll endurnýjuð fyrir fjórum árum.

Hótelið er staðsett um 400 metra frá Champinoi skíðakláfnum og svo er hótelið með lítla skíðarútu  sem gestir geta tekið í lyftuna, en þá þjónustu þarf að panta fyrirfram. Verslanir má finna handan götunnar og skíðarútan stoppar fyrir framan hótelið á nokkurra mínútna fresti.

Veitingasalur hótelsins er sérstaklega glæsilegur, en stutt er síðan hann var endurnýjaður og ávallt er lagður ríkur metnaður  að bjóða eingöngu fyrsta flokkst mat.

Á hótelinu er glæsileg heilsulind þar sem hægt er að komast í gufuböð, nuddpott, ilmbað, ljósabekki og ýmislegt fleira. Þá er boðið upp á ýmsar vellíðunar- og slökunarmeðferðir gegn gjaldi. Á hótelinu er einnig lítið leikherbergi fyrir yngstu kynslóðina.

Innifalið er hálft fæði

 

Fjarlægðir

Flugvöllur:
2,5 klst. akstur frá Verona flugvelli
Miðbær:
Er í miðbænum
Lyfta:
400 m
Veitingastaðir:
Á hóteli og allt um kring
Matvöruverslanir:
50 metrar

Aðstaða

Fjöldi hæða:
5
Gestamóttaka:
Líkamsrækt:
Barnaleiksvæði:
Heilsulind:
Veitingastaðir:
Nettenging:
Já gegn gjaldi
Lyfta:
Bar:

Vistarverur

Herbergjategund:
Hótelherbergi
Fæði:
Morgunverður og kvöldverður
Svalir/Verönd:
Sjónvarp:
Sími:
Nettenging:
Já gegn gjaldi
Hárþurrka:
Öryggishólf:
Ísskápur:
Skipt á rúmum:
2 x í viku
Handklæðaskipti:
Daglega og eftir þörfum
Þrif:
Daglega

Heimilisfang

Via Mëisules 140
I-39048
Selva Val Gardena


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar