VITA - Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík, Ísland - Sími: 570 4444 - Fax: 570 4460 - info(hjá)vita.is - © VITA 2009
Beint í leiðarkerfi vefsins.
Stórfínt þriggja stjörnu hótel sem er á frábærum stað við kennslubrekkurnar í Selva. Það er ekki ofsögum sagt að það megi beinlínis skíða út og inn af hótelinu - svo nálægt brekkunum er það. Á hótel Serena fæst þægileg gisting á góðu verði.
Herbergi hótelsins eru vistleg og góð og hönnuð fyrir tvo gesti, en hægt er að fá aukarúm fyrir þann þriðja. Rétt er að taka fram að öll rúm á hótelinu eru 194 sentímetrar á lengd svo að hávöxnum ferðalöngum er bent á að skoða aðra gistimöguleika.
Hótelið býður upp á fjölbreyttan morgunverð og mjög góðan kvöldverð. Tiltölulega lítil en engu að síður stórfín heilsuaðstaða er á hótelinu.
Str. Puez 22
I-11011 Selva / Wolkenstein Val Gardena
Italy