Shandrani, Wellenss and family hotel, Val di Fiemme

Shandrani, Wellenss and family hotel, Val di Fiemme

Mjög gott fjögurra stjörnu hótel í Val de Fiemme dalnum. Hótelið stendur við þjóðveginn í skógi vöxnum hlíðum rétt fyrir neðan skíðasvæðin. Allt er til alls á hótelinu, herbergin eru rúmgóð og henta bæði einstaklingum, fjölskyldum og hópum prýðilega. Hægt er að fá allt frá tveggja til fimm manna herbergi.

Skíðarútan stoppar fyrir framan hótelið og það tekur sjö til tíu mínútur að aka á Pampeago svæðið, þar sem langar og skemmtilegar brekkur bíða þín. Þegar komið er heim á hótel eftir góðan skíðadag er upplagt að nýta tímann til að skella sér í sund og nota heilsulindina á hótelinu. Þar er heitur pottur, gufuböð og líkamsræktarsalur. 

Hótelbarinn er fínn og maturinn þykir mjög góður og glæsilega fram borinn. Mikið er gert úr svæðisbundinni matargerð og talsvert af matnum kemur frá svæðinu í kring. Þar er meðal annars hægt að fá mjög góðan ítalskan mat og úrvals vín frá héraðinu.

Morgun- og kvöldverðarsalurinn er fallegur og þjónustan er fyrsta flokks. Þegar komið er heim af skíðasvæðinu er boðið upp á léttar veitingar og óáfenga drykki eins og heilsusamlegt te, aldinsafa og kaffi.

Herbergin eru falleg og búin helstu þægindum. Öll með baðkari eða sturtu, öryggishólfi, síma, hárþurrku, smábar og gervihnattasjónvarpi. Flest herbergin eru með svölum.

Hótelið er mjög gott fyrir allt skíðafólk sem vill njóta náttúrufegurðar og þæginda á hótelinu á milli þess sem það skíðar á frábærum skíðasvæðum.

 

 

Fjarlægðir

Miðbær:
10 mín akstur
Lyfta:
10 mín akstur
Veitingastaðir:
á hóteli

Aðstaða

Fjöldi hæða:
4
Gestamóttaka:
Líkamsrækt:
Heilsulind:
Veitingastaðir:
Nettenging:
Gegn gjaldi
Lyfta:
Bar:
Innilaug:

Vistarverur

Herbergjategund:
Herbergi
Fæði:
Hálft fæði (morgunverður og kvöldverður)
Sjónvarp:
Sími:
Nettenging:
Gegn gjaldi
Hárþurrka:
Öryggishólf:
Minibar:
Skipt á rúmum:
2 - 3 x í viku
Handklæðaskipti:
Daglega
Þrif:
Daglega

Heimilisfang

Via Pampeago 36, 38038 Tesero, Localitá Stava, Trentino, Italy


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar