Beint í leiðarkerfi vefsins.
Gott þriggja stjörnu „superior" hótel þar sem eigendur hótelsins, Armin fjölskyldan hugsaa af einstakri natni um gesti sína. Hótel Armin er við aðalgötuna í Selva og um 400 metrar eru að Ciampinoi kláfnum, sem gengur upp á skíðasvæðið í Selva. Hótelið er með litla hótelskutlu og geta gestir pantað far með bílnum.
Herbergin eru rúmgóð og nýuppgerð. Baðherbergi eru falleg ýmist með sturtu eða baði. Þau eru öll með síma, sjónvarpi og hárþurrku. Tvíbýli eru með svölum, en ekki eru svalir á eins manns herbergjum.
Á hótelinu er bar og maturinn er fyrsta flokks. Hótelgestir á Armin koma þangað aftur og aftur, ekki síst til að borða hinn ljúffenga mat sem á borðum er og njóta hinnar persónulegrar þjónustu, sem er aðalsmerki hótelsins.
Glæný heilsulind er á hótelinu með gufubaði, heitum potti og notalegu hvíldarherbergi. Greiða þarf fyrir afnot af heita pottinum.
Str. Mëisules 161, Selva Gardena