Westin Resort & Spa, Whistler

Westin Resort & Spa, Whistler

Westin Whistler hotel & Spa er mjög gott 4 stjörnu hótel og er eitt best staðsetta skíðahótelið í Whistler. Er  rétt fyrir ofan aðal skíðakláfinn Whistler Mountain og í 2ja til 3ja mínútna göngufæri frá hinum líflega og heillandi miðbæ í Whistler.  Hótelið er í tveimur álmum, sem eru tengdar saman með verslunargötu innandyra. Gestamóttakan er  flott, rúmgóð og  með þægilegri setustofu.  Allar vistarverur eru með vel búnu eldhúsi, arni og flatskjá. Hótelið er allt nýlega endurnýjað.

Nálægt Whistler Mountain skíðakláfnum setur hótelið upp tjald á veturna þar sem hótelgestir geta tekið af sér skíðin og sér starfsmaður hótelsins um að koma þeim heim á hótel. 

Skíðalyftan Whistler Mountain er um 200 metra frá hótelinu og 50 metrar eru að göngugötunum í miðbænum  þar sem verslanir,  barir og kaffihús eru á hverju horni

Heilsulind, snyrtistofa, tækjasalur, lítil útisundlaug og nuddpottur.  Stór verslunargata innan hótelsins með sportbúð, minjagripaverslun,  listmunasölur, skíðaleigu, hraðbanka og Sushi veitingastað. Á  hótelinu er líka góður (en frekar dýr) veitingastaður þar sem hægt er að kaupa morgunverð og kvöldverð, bar með sjónvarpsskjám, aðgangur  að tölvum og stórar setustofur.

Stúdíó og íbúðir eru  419 talsins.
Vita er með „Studio Junior suites“ á samningi. Í þeim er fullbúið eldhús með uppþvottavél, ísskáp, snakki til sölu, örbylgjuofni og kaffivél.
Arinn, gott rúm með sæng, sófi, straujárn og strauborð, öryggishólf  og 32“flatskjár með bíómyndum og mörgum sjónvarpsrásum, einnig þráðlaust internet.
Ágætt baðherbergi með baðkari, sturtu, hárþurrku og snyrtispegli.  Á nokkrum hæðum er gossjálfsali, þvottavél og þurrkari.

Skíðageymlan er niðri, en í  Whistler eru eingöngu skíðin geymd í skíðageymslum hótelanna. Fólk tekur skóna með sér uppá herbergi.

Heilsulindin er á tveimur hæðum og alls kyns nudd og dekurmeðferðir í boði, gegn gjaldi.  Einnig tækjasalur, nuddpottur og sauna. Sundlaugin er pínulítil og að hluta innan dyra. Er ekki alltaf opin á veturna, fer eftir veðri.

Westin Whistler er fyrirtaks hótel og fínn kostur fyrir skíðafólk.

Fjarlægðir

Miðbær:
50-100 metrar
Lyfta:
Við hótelið
Veitingastaðir:
á hóteli og í miðbæ
Matvöruverslanir:
10 mínútna gangur

Aðstaða

Fjöldi hæða:
8
Gestamóttaka:
já,opin allan sólarhringinn
Sundlaug:
Líkamsrækt:
Heilsulind:
Veitingastaðir:
Nettenging:
já, gegn gjaldi
Lyfta:
Bar:

Vistarverur

Herbergjategund:
Studio junior suite
Fæði:
ekkert fæði
Svalir/Verönd:
Loftkæling:
Sjónvarp:
Sími:
Nettenging:
já, þráðlasut net gegn gjaldi
Hárþurrka:
Öryggishólf:
Minibar:
Ísskápur:
Kaffivél:
Örbylgjuofn:
Skipt á rúmum:
Daglega
Handklæðaskipti:
Daglega
Þrif:
Daglega

Heimilisfang

4090 Whistler Way, Whistler, BC V0N 1B4, Canada

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar