Hagnýtar upplýsingar

Hagnýtar upplýsingar - Selva Val Gardena

Dagsferðir í Selva með fararstjórum

Fararstjórar okkar í Selva fara með gesti í skipulagðar ferðir um skíðasvæðin séu aðstæður og áhugi fyrir hendi. Breytilegt er eftir vikum í hvaða ferðir verður farið og einnig ræðst það af veðri og vindum. Ferðirnar eru þátttakendum að kostnaðarlausu nema þar sem taka þarf rútur eða þyrlu. Þann kostnað munu þátttakendur sjá sjálfir um að greiða. Allir sem koma í þessar ferðir ferðast á eigin ábyrgð.

Ferðirnar í Selva eru eftirfarandi:

Col Raiser: Skíðað niður brunbrautina frægu frá Ciampinoi niður til St. Cristina.  Haldið upp til Col Raiser með neðanjarðarskíðalest og síðan með lyftum upp á Seceda í 2.500 metra hæð.  Skíðum þaðan til Ortiseim, niður klettariðið og gegnum skóginn. Þetta er skíðabrautbraut sem er 10,5 km löng og fallhæð er 1.230 m.  Stoppað í Önnutal til hressingar. Hádegisverður snæddur í „Dannakofa“ (Danielshütte), en kofinn er staðsettur í miðri skíðabrekkunni.  Athugið að þessi ferð er alls ekki fyrir byrjendur.

Marmolada jökull – hæsti tindur Dolomitanna: Flogið með þyrlu á jökulinn og síðan skíðað heim. Heimleiðin er löng og skemmtileg. Jökulbrekkan er um 10 km löng og er það ógleymanlegt ævintýri að skíða um jökulsvæðið. Heimleiðin liggur svo um skíðabæinn Arabba. Ferð þessi er fyrir miðlungsskíðafólk og betri.

Sella Ronda: Fjallið Sella liggur fyrir botni Val Gardena dalsins og ganga þrír aðrir dalir að fjallinu. Skíðað er réttsælis eða rangsælis í kringum fjallið með viðkomu í fjallakofum og skíðabæjum. Heildags ævintýraferð sem gefur fólki yfirsýn yfir stærð skíðasvæðisins og mikilleik fjallanna. Ekki fyrir byrjendur.

Edelweiss Tal: Hálfdagsferð í þennan fallega hamradal. Skíðað úr Passo Gardenaskarðinu niður í átt til Corvara og síðan upp í Edelweiss Tal með gondólum. Skemmtileg og létt ferð fyrir alla.

Lagazoui: Löng og nokkuð strembin skíðaferð en afar skemmtileg.  Farið er gegnum Passo Gardena niður til Corvara og síðan yfir fjöllin fyrir innan Corvara. Eftir um tveggja tíma skíðaferð tökum við rútur sem kosta 7-10 evrur á mann upp að tindinum Lagazoui (2.800 metra hár) og erum þá stödd í skarðinu fyrir ofan Cortina.  Rútuferðin tekur 10 – 15 mín. Af tindinum er skíðað niður Hamradal, 14-15 km leið í átt að bænum Armentarola. Við stoppum á veitingastað í gilinu sem fyrir nokkrum árum var valinn einn af tíu bestu veitingastöðum í Dolomitunum. Þegar komið er niður á dalbotninn erum við dregin af hestum í átt að lyftunum.

Hagnýtar upplýsingar

Flugið:

Morgunflug með Icelandair til Verona og eftirmiðdagsflug til baka. Flugið tekur u.þ.b. 4 klst. Nákvæmir flugtímar eru í bókunarvélinni. (Ferðaleit).

Akstur við komu:

Hópferðabílar flytja farþega VITA frá flugvellinum í Verona til Selva. Ferðin tekur um það bil þrjár klst. og eru fararstjórar með í för. Á leiðinni fara fararstjórar yfir allt það helsta varðandi hótel og skíðalönd.  Ekki er leyfilegt að hafa mat um hönd í bifreiðum og ekki heldur drykki í glösum.


Hótelin:

Við komu á hótel þarf að afhenda vegabréf og er því skilað síðar sama kvöld eða daginn eftir. Við komu í matsal fyrsta kvöldið er rétt að bíða eftir þjóni eða yfirþjóni og er fólki þá vísað  til borðs sem það hefur síðan út vikuna.  Drykkjarföng getur fólk geymt milli daga. Morgunverður stendur frá kl. 7:30 eða 8:00 til kl. 9:00 eða 10:00 (aðeins mismunandi milli hótela).  Kvöldverður er frá kl. 18:30 eða 19:30 til kl. 21:00 eða 21:30. 

Mismunandi er hvenær heilsuaðstaða hótela er opin, en yfirleitt opnar hún um kl. 16:00 og er opin til kl. 18:30 til 19:30. Aðgangur barna yngri en 14-15 ára er yfirleitt bundin því að þau séu í fylgd foreldra og þess gætt að ekki er um leiksvæði að ræða. Einstaka hótel leyfa ekki börn  á heilsusvæðinu. 

Allir gestir eru hvattir til að nota öryggishólf á herbergjum. Yfirleitt er ekki minibar á herbergjum en víðast hvar er hægt að fá einn slíkan sé þess óskað. Mörg hótelanna hafa kæliskápa í herbergjum.  Kranavatnið á hótelunum er gott og öllum er óhætt að drekka það. Flest hótelin sem VITA býður upp á eru með þráðlaust net á jarðhæð sem gestir geta fengið aðgang að gegn greiðslu.

Skíðapassar:

Verðskrá: (Super dolomi ski passi):

Fullorðnir:
6 daga passi: 241 evrur tímabilið 5.feb til 3. mars og 212 evrur 21.jan til 4.feb.

Eldri borgarar (fæddir fyrir 26. nóv. 1946)
6 daga passi: 217 evrur fyrir tímabilið 5.feb. til 3.mars og 191 evru 21.jan til 4.feb.

Börn (fædd eftir 26 nóv. 1995)
6 daga passi: 169 evrur fyrir tímabilið 5.feb. til 3.mars og 149 evrur 21.jan til 4.feb

Börn 8 ára og yngri
(fædd eftir 26. nóv. 2003, í fylgd með foreldrum)
Passi fæst án endurgjalds

Gott að hafa í huga þegar farið er í fjallið:

Muna skal að hafa með varaáburð og sólarvörn. Það taka ekki allir veitingastaðir í fjöllunum við greiðslukortum og því gott að hafa reiðufé með í för. Skylda er fyrir alla 14 ára og yngri að hafa skíðahjálma. Að sjálfsögðu er mælt með því að allir noti hjálm.

Góð sólgleraugu og skíðagleraugu eru nauðsynleg. Skíðagrímu er gott af hafa ef spáð er köldu veðri.  Aldrei skal stöðva undir blindhæð. Muna skal að skíða með aðgát og hafa í huga að sá sem er neðar í brekkunni á alltaf réttinn.  Ekki drekka kranavatn á veitingastöðum eða lyftustöðvum í fjallinu. Ráðlagt er að vera alltaf með símanúmer fararstjóra í farsímanum - ef eitthvað skyldi bera útaf.

Skíðaleigur:

Fjölmargar skíðaleigur eru í Selva en VITA hefur gert samning við skíðaleiguna „Snow and fun“ sem staðsett er í kjallaranum í sama húsi og apótekið í bænum.  Þessi leiga býður upp á ný og nýleg skíði, allt frá miðlungs skíðum til toppskíða.  Þá er einnig gott úrval af skíðaskóm.

Hægt er að skipta einu sinni í vikunni um skíði ef ske kynni að upphaflegu skíðin séu ekki að henta.  Einnig er fólki boðið upp á að kaupa tryggingu ef skíðum sé stolið.  Á efri hæð skíðaleigunnar er verslun með góðar skíða- og útivistarvörur. Farþegar VITA fá afslátt af vörum og þjónustu „Snow and fun“. Til að fá afsláttinn nægir að láta vita að verið sé að ferðast með VITA.

Skíðaskóli:

Við mælum með „Ski factory“ sem er stærsti skíðaskólinn í Selva.  Við skólann starfa tæplega 200 kennarar sem allir eru mjög reyndir og vel menntaðir. Skólinn er staðsettur í brekkunni þar sem fólk kemur skíðandi niður í bæ. 

Fararstjórar VITA aðstoða á sunnudagsmorgnum kl. 9:00 við innritun í skólann. Byrjendur ættu skilyrðislaust að fara í skíðaskólann og fá kennslu í grunnatriðum skíðaíþróttarinnar. Einnig mælum við hiklaust með því að allir þeir sem skammt eru á veg komnir fari í kennslu.  Hægt er að skrá sig í bekkjarkennslu eða einkakennslu.  Bekkjarkennslan stendur frá kl. 10:00-13:00.  Börn er hægt að skrá allan daginn, þ.e. frá kl. 10:00-16:00.

Skoðaðu verðið:

Annað:

Farangur: Hver farþegi má hafa með sér 20 kg af farangri auk handfarangurs. Handfarangur má vera handtaska og taska að hámarki 6 kg og samanlögð lengd, breidd og hæð hennar má ekki vera meiri en 115 cm. Snjó- og skíðabúnað má flytja sem venjulegan farangur án endurgjalds. Eitt snjó- eða skíðasett er leyfilegt á hvern farþega en ef farið er yfir þau mörk verður yfirvikgargjald innheimt. Sjá nánar á síðu Icelandair.

Ungabörn, sem ekki eiga rétt á eigin sæti, mega hafa meðferðis 10 kg og að auki samfellanlega barnakerru. Frekari upplýsingar um farangur er að finna hér.

Tímamismunur: Ítalía er einni klukkustund á undan Íslandi á veturna og tveimur tímum á undan á sumrin.

Mynt: Evra. Sjá gengi hér.

Hraðbankar: Mjög víða.

Greiðslukort: Lang flestir þjónustuaðilar og verslanir á Ítalíu taka öll helstu kreditkort. Ekki er hægt að treysta því að hægt sé að greiða fyrir vöru eða þjónustu með debetkorti, en að sjálfsögðu er hægt að taka pening út úr hraðbönkum, hvort sem er út á kredit- eða debetkort.

Spa: Yfirleitt bjóða ítölsku skíðahótelin upp á spa-aðstöðu. Ætlast er til að fólk sitji á handklæðum í sauna-baðinu og það haft í huga að spa-svæðið er fyrst og fremst hvíldarsvæði en ekki leikvöllur barna. Á sumum hótelum er aldurstakmark í spa-aðstöðuna sem miðast við 14 ára aldur.


Kort af gististöðum

Vissir þú ...

... að eigandi Chalet Portillo hótelsins í Selva varð heimsmestari á skíðum í Portillo í Chile árið 1966. Skíðin hans hanga uppi á vegg á hótelinu.

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar