Beint í leiðarkerfi vefsins.
Fararstjórar okkar í Madonna fara með gesti í skipulagðar ferðir um skíðasvæðin séu aðstæður og áhugi fyrir hendi. Breytilegt er eftir vikum í hvaða ferðir verður farið og einnig ræðst það af veðri og vindum. Ferðirnar eru þátttakendum að kostnaðarlausu nema þar sem taka þarf rútur eða þyrlu. Þann kostnað munu þátttakendur sjá sjálfir um að greiða. Allir sem koma í þessar ferðir ferðast á eigin ábyrgð.
Ferðirnar í Madonna eru eftirfarandi:
5 Laghi og Pradalago: Skíðað saman vítt og breitt um þessi skemmtilegu svæði og borðað saman í hádeginu á skemmtilegum stað. Eftir hádegið eru allir frjálsir og fer hver sína leið eftir að fararstjórar hafa farið með fólki yfir heimleiðina.
Grostë: Farið upp með Pradalago lyftunni og ferðast yfir á Grostë svæðið sem er létt og þægilegt og hentar öllum. Svæðið skoðað fram til hádegis en þá snæða allir saman og njóta útsýnis og matar. Eftir hádegi er frjáls dagskrá og þess notið að skíða í fallegu umhverfi og frábæru svæði.
Marileva og Folgarida: Skemmtileg og heillandi ferð þar sem þessir þrír fallegu og skemmtilegu dalir eru heimsóttir. Langar og breiðar brekkur heilsa skíðamönnum og fylla huga og sál gleði og ánægju. Skemmtilegustu brekkurnar skíðaðar tvisvar áður en farið er til hádegisverðar. Eftir hádegisverð er skíðað saman á svæðinu þar til haldið er heim. Frábær ferð sem allir hafa ánægju af.
Spinale: Farið upp með Spinale lyftunni og skíðað frá Spinale yfir á Grostë, frá Grostë til Pradalago og síðan endað á Laghi. Þægileg og skemmtileg ferð sem allir geta notið.
Við komuna til Verona taka fararstjórar á móti gestum og er síðan haldið með rútum til Madonna. Ferðin tekur um þrjár klst. og er stoppað einu sinni á leiðinni svo fólk geti farið á snyrtingar og fengið sér hressingu.
Í bílunum fara fararstjórar yfir það helsta sem hafa þarf í huga í komandi skíðaviku, bæði hvað varðar hótelin, bæjarlífið og skíðalöndin. Athugið að ekki er leyfilegt að vera með opin drykkjarföng eða mat í rútunum.
Við komu á hótel þarf að afhenda vegabréf og er því skilað síðar sama kvöld eða daginn eftir. Við komu í matsal fyrsta kvöldið er rétt að bíða eftir þjóni eða yfirþjóni og er fólki þá vísað til borðs sem það hefur síðan út vikuna. Drykkjarföng getur fólk geymt milli daga. Morgunveður stendur frá kl. 7:30 eða 8:00 til kl. 9:00 eða 10:00 (aðeins mismunandi milli hótela). Kvöldverður er frá kl. 18:30 eða 19:30 til kl. 21:00 eða 21:30.
Mismunandi er hvenær heilsuaðstaða hótela er opin, en yfirleitt opnar hún um kl. 16:00 og er opin til kl. 18:30 til 19:30. Aðgangur barna yngri en 14-15 ára er yfirleitt bundin því að þau séu í fylgd foreldra og þess gætt að ekki er um leiksvæði að ræða. Einstaka hótel leyfa ekki börn á heilsusvæðinu.
Allir gestir eru hvattir til að nota öryggishólf á herbergjum. Yfirleitt er ekki minibar á herbergjum en víðast hvar er hægt að fá einn slíkan sé þess óskað. Mörg hótelanna hafa kæliskápa í herbergjum. Kranavatnið á hótelunum er gott og öllum er óhætt að drekka það. Flest hótelin sem VITA býður upp á eru með þráðlaust net á jarðhæð sem gestir geta fengið aðgang að gegn greiðslu.,
Gott að hafa í huga þegar farið er í fjallið:
Muna skal að hafa með varaáburð og sólarvörn. Það taka ekki allir veitingastaðir í fjöllunum við greiðslukortum og því gott að hafa reiðufé með í för. Skylda er fyrir alla 14 ára og yngri að hafa skíðahjálma. Að sjálfsögðu er mælt með því að allir noti hjálm.
Góð sólgleraugu og skíðagleraugu eru nauðsynleg. Skíðagrímu er gott af hafa ef spáð er köldu veðri. Aldrei skal stöðva undir blindhæð. Muna skal að skíða með aðgát og hafa í huga að sá sem er neðar í brekkunni á alltaf réttinn. Ekki drekka kranavatn á veitingastöðum eða lyftustöðvum í fjallinu. Ráðlagt er að vera alltaf með símanúmer fararstjóra í farsímanum - ef eitthvað skyldi bera útaf.
Fararstjórar aðstoða gesti eftir fremsta megni þegar verslað er við skíðaleigur og/eða skíðaskóla. Skíðaskólinn og skíðaleigan „5 Laghi“, sem einmitt er staðsett við 5 Laghi-lyftuna og einnig við Pradolago-lyftuna, hafa reynst Íslendingum vel. Skólinn hefur á að skipa góðum og þægilegum kennurum sem reynst hafa gestum afar vel. Skíðakostur á leigunni er góður og þjónustan er þægileg. Farþegar VITA fá afslátt af vörum og þjónustu „5 Laghi“. Til að fá afsláttinn nægir að láta vita að verið sé að ferðast með VITA.
Farangur: Hver farþegi má hafa með sér 20 kg af farangri auk 10 kg skíðaútbúnaðar og handfarangurs. Handfarangur má vera handtaska og taska að hámarki 6 kg og samanlögð lengd, breidd og hæð hennar má ekki vera meiri en 115 cm. Ungabörn, sem ekki eiga rétt á eigin sæti, mega hafa meðferðis 10 kg og að auki samfellanlega barnakerru. Frekari upplýsingar um farangur er að finna hér.
Tímamismunur: Ítalía er einni klukkustund á undan Íslandi á veturna og tveimur tímum á undan á sumrin.
Mynt: Evra. Sjá gengi hér.
Hraðbankar: Mjög víða.
Greiðslukort: Lang flestir þjónustuaðilar og verslanir á Ítalíu taka öll helstu kreditkort. Ekki er hægt að treysta því að hægt sé að greiða fyrir vöru eða þjónustu með debetkorti, en að sjálfsögðu er hægt að taka pening út úr hraðbönkum, hvort sem er út á kredit- eða debetkort.
Spa: Yfirleitt bjóða ítölsku skíðahótelin upp á spa-aðstöðu. Ætlast er til að fólk sitji á handklæðum í sauna-baðinu og það haft í huga að spa-svæðið er fyrst og fremst hvíldarsvæði en ekki leikvöllur barna. Á sumum hótelum er aldurstakmark í spa-aðstöðuna sem miðast við 14 ára aldur.
„Við gengum í mörg ár með þær ranghugmyndir að skíðaferðir til útlanda væru bara fyrir flinka skíðamenn með fullar hendur fjár en uppgötvuðum svo í vetur okkur til ánægju og yndisauka að svo er alls ekki. Við slógum til og skelltum okkur í viku á skíði til Madonna di Campiglio í ítölsku ölpunum. Þrátt fyrir að hafa verið nýliðar í útlenskum skíðabrekkum vorum við fljót að komast á bragðið og rata um svæðið sem liðast í ótal og miserfiðar brekkur og tengileiðir. Við skemmtum okkur konunglega í faðmi fallegra fjalla og fíns félagsskapar og erum staðráðin í að fara aftur."
- Steinunn Garðarsdóttir og Eggert Marinósson.