Hagnýtar upplýsingar

Hagnýtar upplýsingar - Val di Fiemme

Hagnýtar upplýsingar

Flugið:

Morgunflug með Icelandair til Verona og eftirmiðdagsflug til baka. Flugið tekur 4:15 klst.

Akstur við komu:

Hópferðabílar flytja farþega VITA frá flugvellinum í Verona til Val di Fiemme. Leiðin er 173 km og tekur ferðin um það bil tvær og hálfa klst. og er fararstjóri með í för. Á leiðinni er farið yfir það helsta varðandi hótel og skíðalönd. Ekki er leyfilegt að hafa mat um hönd í bifreiðum og ekki heldur drykki í glösum.

Skíðapassar:

Verðskrá (Skipass Fiemme - Obereggen):

Gott að hafa í huga þegar farið er í fjallið:

Muna skal að hafa með varaáburð og sólarvörn. Það taka ekki allir veitingastaðir í fjöllunum við greiðslukortum og því gott að hafa reiðufé með í för. Skylda er fyrir alla 14 ára og yngri að hafa skíðahjálma. Að sjálfsögðu er mælt með því að allir noti hjálm.

Góð sólgleraugu og skíðagleraugu eru nauðsynleg. Skíðagrímu er gott af hafa ef spáð er köldu veðri. Aldrei skal stöðva undir blindhæð. Muna skal að skíða með aðgát og hafa í huga að sá sem er neðar í brekkunni á alltaf réttinn. Ekki drekka kranavatn á veitingastöðum eða lyftustöðvum í fjallinu. Ráðlagt er að vera alltaf með símanúmer fararstjóra í farsímanum - ef eitthvað skyldi bera útaf.

Skíðaleigur og skíðaskólar:

Fararstjóri gefur upplýsingar um skíðaleigur og skíðaskóla á svæðinu.

Annað:

Farangur: Hver farþegi má hafa með sér 20 kg af farangri auk handfarangurs. Handfarangur má vera handtaska og taska að hámarki 6 kg og samanlögð lengd, breidd og hæð hennar má ekki vera meiri en 115 cm.

Ungabörn, sem ekki eiga rétt á eigin sæti, mega hafa meðferðis 10 kg og að auki samfellanlega barnakerru. Frekari upplýsingar um farangur er að finna hér.

Tímamismunur: Ítalía er einni klukkustund á undan Íslandi á veturna og tveimur tímum á undan á sumrin.

Mynt: Evra. Sjá gengi hér.

Greiðslukort: Lang flestir þjónustuaðilar og verslanir á Ítalíu taka öll helstu kreditkort. Ekki er hægt að treysta því að hægt sé að greiða fyrir vöru eða þjónustu með debetkorti, en að sjálfsögðu er hægt að taka pening út úr hraðbönkum, hvort sem er út á kredit- eða debetkort.

Spa: Yfirleitt bjóða ítölsku skíðahótelin upp á spa-aðstöðu. Ætlast er til að fólk sitji á handklæðum í sauna-baðinu og það haft í huga að spa-svæðið er fyrst og fremst hvíldarsvæði en ekki leikvöllur barna. Á sumum hótelum er aldurstakmark í spa-aðstöðuna sem miðast við 14 ára aldur.


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar